Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2007, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2007, Síða 19
DV Helgarblað föstudagur 16. febrúar 2007 19 vorum á gönguferð framhjá Mýr- arhúsaskóla heyrði ég í Herberti Guðmundssyni söngvara á hljóm- sveitaræfingu. Hann var sönnun þess að það væri líf fyrir utan veggi Bjargs. Geturðu ekki skilað frá mér kveðju til Hebba og þakkað honum fyrir að hafa varpað gleði á gleði- snautt líf unglingsstúlku fyrir fjöru- tíu árum?“ Þvoði barnafötin úr ísköldu vatni Samtímis Valgerði á Bjargi var færeyska stúlkan Marion, sem fjall- að var um í blaðinu í síðustu viku. „Marion var yndisleg stúlka. Einu sinni gleymdist að læsa úti- dyrahurðinni, svo við Marion stru- kum og fórum heim til frænku hennar. Eftir að hún hafði gefið okkur að borða mætti Auður Eir ásamt lögreglukonu og við vorum illu heilli fluttar aftur á Bjarg.“ Valgerður man vel eftir syni Marion, sem hún segir hafa dvalið á Bjargi í um það bil viku eða ríf- lega það. „Starfskonurnar á Bjargi ætluðu að hafa drenginn hjá sér, en það var útilokað því hann grét stans- laust, enda vildi hann fá mjólk hjá móður sinni. Þær gáfust því upp og Marion fékk að hafa hann hjá sér. Ein minning hefur setið föst í mér frá þessum tíma fyrir fjöru- tíu árum. Það var þegar ég kom að Marion, sárlasinni í þvottahúsinu að þvo fötin af barninu. Ég spurði hana hvers vegna hendurnar á henni væru fjólubláar. Þá höfðu starfskonurnar ekki leyft henni að nota heita vatnið svo hún var að þvo fötin upp úr ísköldu vatni. Ég sótti óhrein föt af mér og stalst til að þvo barnafötin úr heitu vatni.“ Dagurinn sem drengurinn var tekinn af Marion er Valgerði ógleymanlegur. „Ég sat inni á herbergi hjá mér þegar ég heyrði grátinn í barninu og Marion. Þá var ein starfskon- an mætt og tók barnið af Marion með valdi. Marion féll algjörlega saman, en sagði mér að drengur- inn væri að fara til móður sinnar og hún fengi hann þegar hún kæmi til Færeyja. Síðar fékk ég staðfest að barnið hefði verið sent til barna- verndarnefndar í Þórshöfn og Mar- ion fékk aldrei að sjá það...“ Valgerður segist ekki hafa verið beitt ofbeldi á Bjargi utan tvisvar sinnum. „Í annað skiptið sagði ég í fífla- skap að ég nennti ekki í kennslu- stund, en sneri svo við og ætl- aði inn á herbergið mitt að sækja skólabækurnar. En það var of seint, ein starfskonan hafði misst stjórn á sér og dró mig á hárinu niður stig- ann. Í annað skipti fór ég í taug- arnar á einhverri þarna þannig að hún hrinti mér á stigahandriðið og ég var öll blá og marin. Eitt kvöld- ið þegar ég var að festa svefn kom ein kvennanna inn til mín, kyssti mig á kinnina og það var greinilegt að hún ætlaði sér að gera eitthvað meira. En ég var vakandi, sneri mér við og rak henni rokna löðrung. Mín skoðun er sú að þessar konur hafi að sumu leyti verið sadistar,“ segir hún ákveðin. „Sá matur sem ég man mest eftir voru fiskibollur í brúnni sósu sem við fengum nokk- uð oft og nokkrum sinnum sá ég að bollurnar voru myglaðar.“ Séra Hjalti var lífgjöfin mín Þegar Valgerður fór vestur til fermingarundirbúnings bað prest- urinn í Stykkishólmi, séra Hjalti Guðmundsson, hana að bíða eftir tímann. „Hann spurði hvernig mér liði á Bjargi og ég sagði honum að það væri eins hægt að drepa mig og láta mig vera þar. Hann sagðist myndi sjá til þess að ég færi aldrei aftur á Bjarg, þangað hefði ég ekkert að gera. Séra Hjalti var lífgjöfin mín, ég fer aldrei ofan af því,“ segir Val- gerður. „Eftir að ég hafði lesið DV um síðustu helgi sagði ég börnun- um mínum frá reynslu minni og bar undir þau hvort ég ætti að segja opinberlega frá. Minningarnar streymdu fram eins og flóðbylgja. Þau hvöttu mig til að segja sögu mína: „Segðu frá því sem þú get- ur, svona mál má ekki þagga nið- ur“, sögðu þau. Vistin á Bjargi var harmleikur. Þetta var ekki mann- eskjulegt umhverfi.“ Ómanneskjulegur harmleikur „Í annað skiptið sagði ég í fíflaskap að ég nennti ekki í kennslustund, en sneri svo við og ætlaði inn á herbergið mitt að sækja skólabækurnar. En það var of seint, ein starfskonan hafði misst stjórn á sér og dró mig á hárinu niður stigann. Í annað skipti fór ég í taugarnar á einhverri þarna þannig að hún hrinti mér á stigahandrið- ið og ég var öll blá og marin.“ stelpurnar á bjargi DV Fréttir föstudagur 9. febrúar 2007 19 „Þetta mál hefur hvílt þungt á mér í fjörutíu ár en nú get ég ekki þag- að lengur. Umfjöllun DV um Breiðu- víkurmálið gerði það að verkum að minningarnar streymdu fram. Það voru ekki bara ungir piltar sem upp- lifðu að þeir sem áttu að aga þá eyði- lögðu líf þeirra.“ Matthildur Hafsteinsdóttir er kona á sextugsaldri sem hefur boðað mig á sinn fund. Frá því DV kom út í síð- ustu viku með frásögnum ungra pilta sem dvöldu vestur í Breiðuvík við skelfilegt ofbeldi, hefur hún vart get- að sofið. Hún vill segja sína upplifun af stúlknaheimilinu Bjargi, sem rekið var af Hjálpræðishernum vestur á Sel- tjarnarnesi í tvö og hálft ár. Því heimili var lokað eftir að nokkrar stúlknanna höfðu greint frá dvöl sinni þar. Þangað var frænka Matthildar send frá Fær- eyjum fjórtán ára að aldri og dvaldi þar í eitt ár. „Minningarnar um Marion frænku mína hafa haldið fyrir mér vöku,“ segir Matthildur og hefur greinilega undirbúið vel hverju hún vill koma á framfæri.“Frásagnirnar af ofbeldinu í Breiðuvík heltóku mig og ýfðu upp sárar minningar. Við Marion vorum systradætur. Mæður okkar voru fær- eyskar, en móðir mín flutti ung til Íslands ásamt annarri systur sinni. Marion frænka mín var tveimur árum yngri en ég, fædd síðla árs 1951. Við sáumst fyrst þegar ég heimsótti fjöl- skylduna í Þórshöfn í Færeyjum þeg- ar ég var þrettán ára.“ Bjarg var fangelsi Marion, þá tæplega ellefu ára, dökkhærð með gneistandi brún augu, sýndi stóru frænku sinni heimabæ sinn. Í minningunni ber smitandi hlátur hennar hæst. „Marion var alltaf hlæjandi og lífs- gleði hennar hafði áhrif á alla sem voru nálægir. Hún var afskaplega fjörug og hafði mikla útgeislun“ seg- ir Matthildur. „Þegar ég var sextán ára var ég komin í sambúð með Hinriki Jóni Magnússyni, sem var eiginmað- ur minn til dauðadags fyrir þremur árum. Við bjuggum í agnarlitlu húsi við Grettisgötu og þangað bárust mér fregnir af því að Marion frænka mín væri komin til dvalar á Bjargi. Skýr- ingin sem mamma hennar hafði gefið var sú að Marion væri óstýrilát og það þyrfti að aga hana. Hún hefði valið Bjarg, því það væri rekið á kristilegum nótum, en Anna, mamma Marion, starfaði með Frelsishernum í Fær- eyjum. Marion hvorki reykti né drakk eftir því sem ég best vissi og ég skildi ekki hvers vegna mamma hennar hefði sent hana til vistar á Bjargi.“ Matthildur taldi sig vel geta haft litlu frænku sína hjá þeim Hinriki og þau héldu á Skódanum sínum rak- leiðis vestur á Seltjarnarnes til fundar við frænkuna. „Það fyrsta sem ég sagði við Hinrik þegar við höfðum hringt bjöllunni var að það væri engu líkara en við vær- um að koma í fangelsi. Við heyrðum hringl í lyklum enda voru stelpurn- ar læstar inni. Lyklakippan var stór og þung og sú sem opnaði því lengi að finna rétta lykilinn. Andlitið sem mætti okkur í dyrum Bjargs þennan fyrsta dag var andlit hinnar norsku Kröte, sem spurði með þjósti hverja við vildum hitta. Bjarg var ekkert ann- að en fangelsi. Marion fékk þó að vera hjá okkur tvær eða þrjár helgar í fyrstu, en svo breyttist viðhorfið í garð fjölskyldunnar og okkur var meinað að heyra í og hitta Marion... „ Stórt sár í sálinni „Starfsstúlkurnar voru allar norsk- ar, fyrir utan Auði Eir Vilhjálmsdótt- ur, sem réði mestu um daglegt starf Bjargs,“ segir Matthildur. „Ég man alltaf fyrsta fund okkar Auðar Eirar. Þá kom ég að heimsækja Marion og ætlaði upp á herbergið hennar en Auður Eir blokkeraði stigann upp og sagði mér að fara inn í viðtalsherberg- ið. Ég sá því aldrei herbergið henn- ar Marion þetta ár sem hún dvaldi á Bjargi. Þetta var ekki heimili. Þetta var fangelsi. Þessi staður gerði stúlkurn- ar ekki að betri manneskjum held- ur eyðilagði líf þeirra flestra. Ég hef hitt margar þeirra og það var ótrúlegt að heyra frásagnir þeirra af lífinu á Bjargi. Dvölin á Bjargi hefur skilið eft- ir stórt sár í sálu þeirra.“ Marion gaf Matthildi engar skýr- ingar á því hvers vegna hún hefði ver- ið send að Bjargi, aðrar en þær að mömmu hennar líkaði ekki við kær- astann hennar. Hún hélt sannleikan- um leyndum, þangað til hann varð ekki lengur umflúinn. Marion var barnshafandi. „Mér fannst sérkennilegt hvað Marion var í ljótum og víðum fötum,“ segir Matthildur. „Eftir að ég varð eldri og þroskaðri, geri ég mér grein fyrir hvers vegna hún sagði mér aldrei að hún ætti von á barni.Hún hagaði sér í raun eins og barn sem hefur ver- ið misnotað; það þegir yfir verknaðin- um.“ Um upphaf stúlknaheimilisins að Bjargi segist séra Auði Eir Vilhjálms- dóttur svo frá í ævisögu sinni, Sól- in kemur alltaf upp á ný, sem Edda Andrésdóttir skráði: „...mér sem fleirum þótti vanta hér skólaheimili fyrir stúlkur svo að þær fengju tíma til að átta sig á því sem hafði farið úrskeiðis í lífi þeirra, þar sem þær kæmust inn í reglulegt nám, tækju próf og héldu sína góðu leið í lífinu, Ég var lögreglukona þegar þetta var og þótti úrræðin sem þeim stúlkum buðust ekki mikil en að þau yrðu og gætu verið meiri.“ „Vond verk í nafni Drottins“ Matthildur getur ekki leynt andúð sinni á séra Auði Eir og segir starfsem- ina á Bjargi dæmi um vond verk, unn- in í nafni Drottins. „Ég söng með kirkjukórnum á Flateyri um margra ára skeið og það get ég sagt þér að það aðfangadags- kvöld sem ég sá að það var séra Auður Eir sem hafði verið fengin til að leysa séra Lárus af, þá gekk ég út. Í minni kirkju er ekki pláss fyrir hræsnara. Þegar Marion fæddi son sinn haustið 1967 fóru mamma og systir hennar á Fæðingardeildina og ætluðu að grípa inn í líf þeirra. En þær komu of seint. Móðir Marion hafði greinilega svipt dóttur sína sjálfræði og falið Auði Eir allt vald yfir henni.“ Í viðtalsbókinni við séra Auði Eir Vilhjálmsdóttur er frásögnin á þessa leið: „...færeyska stúlkan sem rætt var við í blaðinu (Þjóðviljanum 20. okt- óber 1967) hafði reynst barnshaf- andi þegar hún kom á skólaheimil- ið. Var barn hennar flutt til Færeyja eftir fæðingu í samráði við móður- ömmu þess og barnaverndaryfir- völd í Færeyjum. Í viðtalinu í Þjóð- viljanum var lýst aðdraganda þess að stúlkan kom á skólaheimilið og dvölinni sem lauk með því að hún “strauk“....“ „Hún strauk ekkert,“ segir Matt- hildur. „Henni var rænt af mann- inum mínum, Hinriki Jóni og vini hans og komið fyrir á heimili Ragn- ars Stefánssonar jarðskjálftafræðings og foreldra hans á Sunnuvegi. Gísli Gunnarsson, kennari við Austur- bæjarskólann kenndi vinkonu einn- ar stúlkunnar á Bjargi, sem sagði honum frá aðstæðum og hann fór að kanna þær. Síðar kom Gunnlaug- ur Þórðarson, lögfræðingur að mál- inu, en hann átti sæti í Barnavernd- arráði.Það var staður þar sem fram fór fangelsun og frelsissvipting ungl- ingsstúlkna. Það var ekki eins og þessar stúlkur væru einhver vand- ræðabörn samfélagsins. Þær voru bara of óstýrilátar fyrir foreldra sína, sem vildu losna við þær.“ „Endalok heimilisins voru ekki flókin; þau réðust einfaldlega af upp- lognum sögum“, segir séra Auður Eir í bókinni. „Við höfðum verið rænd til- trúnni; við hefðum aldrei getað hald- ið áfram og okkur hefði aldrei dottið það í hug.“ Mörgum mun misbjóða sannleikurinn Marion sneri aftur að Bjargi eft- ir fæðingu sonar síns. Gjörbreytt ung stúlka að sögn Matthildar. „Glaða stúlkan var horfin að ei- lífu,“ segir Matthildur. „Þegar Bjargi var lokað nokkrum vikum síðar eftir að upp komst hvernig búið hafði ver- ið að bjargarlausum unglingsstúlk- unum fór Marion heim til Færeyja. Henni hafði verið lofað að hún fengi soninn þegar hún kæmi heim. Hann sá hún aldrei. Marion varð eins og skugginn af sjálfri sér. Hún kvaldist þá stuttu ævi sem hún átti eftir, en hún lést fertug að aldri úr krabbameini. Eftir að nýfæddur sonurinn var tekinn af henni hvarf lífslöngun hennar með öllu. Það er ekki hægt að gera ljótari hlut en þann að taka nýfætt barn af móður. Það gerði kona sem er prest- ur og rekur sérstaka Kvennakirkju. Mig hryllir við þessu. Bjarg var ekki stúlknaheimili. Það var fangelsi fyrir saklaus börn. Þegar saga Bjargs verð- ur gerð opinber – og þess er ekki langt að bíða – mun mörgum misbjóða, því get ég lofað.“ Földu Marion Meðan mál stúlknanna á Bjargi voru rannsökuð var gripið til þess ráðs að fela Marion Gray á stað þar sem hennar yrði örugglega ekki leitað. Ragnar skjálfti man vel eftir þessari unglingsstúlku. „Gísli Gunnarsson, sem var góð- ur vinur minn bað mig og foreldra mína að taka Marion að okkur tíma- bundið,“ segir Ragnar Stefánsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, betur þekktur sem Ragnar „skjálfti“ jarðskjálftafræðingur. „Gísli taldi af ýmsum ástæðum best að Marion væri á heimili þar sem hennar yrði ekki leitað og hún gæti verið örugg meðan mál hennar upplýstust bet- ur. Gísli vissi að hún hafði ekki átt góðar stundir á Bjargi.“ Ragnar segir Marion hafa dvalið hjá sér og foreldrum sínum í nokk- urn tíma. „Ég kunni ágætlega við þessa stúlku og ég átti ómögulegt með að skilja hvers vegna hún var lok- uð inni á stúlknaheimili. Hún kom vel fyrir sjónir og það var gaman að ræða við hana.“ Sagði hún þér frá syni sínum sem hún fæddi og hafði verið tekinn af henni? „Nei, þessar fréttir koma mér alveg að óvörum,“ segir Ragnar og undrunin leynir sér ekki í rödd hans. „Hún talaði að vísu mest við móður mína, því við pabbi vor- um í vinnu á daginn og það má vel vera að hún hafi trúað mömmu fyr- ir þessu. Okkur fannst öllum Mar- ion vera indælisstúlka og var mjög til friðs á heimili okkar. Mér fannst Gísli vera að gera mjög góða hluti því ég gat ekki séð nokkra ástæðu fyrir því að hún væri vistuð á Bjargi. Mér skildist að fjölskylda henn- ar í Færeyjum væri afskaplega sið- vönd og ástæða þess að þau hefðu sent hana á Bjarg væri sú að hún hefði ekki hagað sér nægilega vel að þeirra mati. En þessi frétt um að hún hafi verið barnshafandi og eignast son hér á landi, skýrir margt fyrir mér. Ég hafði spurnir af Marion síðar og svo virðist sem hún hafi orðið hálfgert rekald eftir lífs- reynslu sína hér á Íslandi.“ Stefán Bjarnason, faðir Ragnars, staðfestir að fjölskyldan hafi fallist á að veita Marion húsaskjól og hún hafi verið elskuleg stúlka. „Ég vissi af fæðingu sonarins, en man ekki hvort hún sagði mér sjálf af henni eða einhver annar,“ segir Stefán. Aðspurður hvort Gunnlaugur Þórðarson lögfræðingur hafi komið á heimilið til að taka skýrslu af Mar- ion segist Stefán muna eftir manni sem kom á heimilið til að ræða við hana. „Hvort það var Gunnlaugur heit- inn Þórðarson veit ég ekki, en Mar- ion var nokkuð brugðið við komu þessa manns. Hún fór að gráta því hún taldi að verið væri að sækja sig og flytja aftur á Bjarg. Umræddur maður fullvissaði hana um að hann væri þarna til að hjálpa henni og fór mjög rólega að henni og talaði hlý- lega við hana.“ Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir var mest var áberandi í sambandi við Bjargsmálið. Á henni stóðu öll spjót þegar málið var rannsakað og á hana er hart deilt í viðtölum í DV í dag. „Af hverju ertu að fara að skrifa um þetta?“ spyr hún þegar haft var samband við hana síðdegis í gær. „Ég skal segja þér hvað ég vil segja. Við settum þetta heimili á stofn. Þetta var skólaheimili.“ Og fór þar fram einhver kennsla? „Þú hefur enga þekkingu á þessu máli og hefur engan rétt á að hringja í mig og krefjast svara. Ég nenni ekki að tala um þetta... Ég nenni þessu ekki lengur.“ Auður Eir segir að vissulega hafi verið mikið um þetta mál fjall- að á sínum tíma, en segir: „Mig langar ekkert inn í þessa umræðu aftur. Þetta er ekkert grín, ég ræddi þetta á sínum tíma og vil ekki ræða þetta frekar.“ Þegar vitn- að er í frásögn Marion Gray, sem birtist í Þjóðviljanum 20. október 1967 og varð í raun Bjargi að falli svarar Auður: „Þetta var alls ekki eins og Marion lýsir þessu. Við settum þetta heim- ili á stofn, þetta var skólaheimili. Ég vil ekki tjá mig um þetta mál, ég gerði það á sínum tíma frá morgni til kvölds. Það getur vel verið að ég svari öðrum á morgun um málið. Það er langbest að lifa lífi sínu í sátt við góða veðrið. Þú verður að finna þitt hjarta og hvernig það slær,” sagði prestur Kvenna- kirkjunnar, séra Auður Eir Vil- hjálmsdóttir og kvaddi. valur@dv.is „Tala ekki um þetta“ Ragnar „skjálfti“ Stefáns- son og foreldrar hans skutu skjólshúsi yfir Marion „Ég hafði spurnir af henni síðar og svo virðist sem hún hafi orðið hálfgert rekald eftir lífsreynslu sína hér.“ Bjarg var fangelsi Vond verk unnin í nafni Drottins Matthildur Hafsteinsdóttir segir stúlkur sem dvöldu á bjargi hafa verið beittar andlegu ofbeldi. Sátt við veðrið „Það er langbest að lifa lífi sínu í sátt við góða veðrið,“ segir séra auður eir Vilhjálmsdóttir. DV Fréttir föstudagur 9. febrúar 2007 17 Stelpurnar á bjargi tóku nýfætt barnið af örvilnaðri móðurinni Helvíti á jörðu Harðræði, innilokun og frelsissvipting va r hluti þess sem þessar unglingsstúlkur þurftu að þo la. Þeim var komið fyrir á Bjargi, sem var heimili r ekið af Hjálpræðishernum, og nú fjörutíu árum s íðar kraumar enn hatur og beiskja í þeim kon um sem þar voru vistaðar. DV hefur fundið gögn u m starfið á Bjargi og birtir hér hluta þeirra og viðtö l við fólk sem þekkir vel til þess sem þar fór fram. Framhald á næstu opnu föstudagur 9. febrúar 200718 Fréttir DV Stelpurnar á bjargi „Má móðir taka dóttur sína og láta vista hana í húsi, þar sem hún má varla fara út í tvö ár, bara vegna þess að stúlkan var of lengi úti eitt kvöld?“ Fyrir fjörutíu árum var þessari spurningu var beint til Gísla Gunnarssonar, prófessors í sagn- fræði, sem þá kenndi félagsfræði við Gagnfræðaskóla Austurbæjar. Umfjöllunarefni kennslustundar- innar var sjálfræði unglinga. „Mér var mjög brugðið og bað stúlkurnar að ræða við mig eft- ir tímann. Þær sögðu mér að um- rædd stúlka væri vistuð á stúlkna- heimilinu Bjargi á Seltjarnarnesi og við sammæltumst um að þegar hún losnaði þaðan, talaði hún við mig. Hún kom til fundar við mig í ágúst árið 1967, ásamt tveimur öðrum stúlkum sem höfðu verið á Bjargi. Þær sögðu mér af aðstöð- unni þar og ég varð skelfingu lost- inn, aðallega yfir einangruninni, sem mér finnst alltaf hafa verið versti hluti Bjargsmálsins. Skoð- un mín á Bjargi var að mestu leyti um einangrunina, bæði á Bjargi og sérstaklega þó þegar stúlkurn- ar þar voru sendar í refsieinangrun eða einangrun við upphaf vistar á ríkisupptökuheimilið í Kópavogi. Einnig að þeim var stöðugt hótað á Bjargi að vera settar í einangrun.“ Í algjörri einangrun Gísli sýnir mér pappíra; heilu möppurnar, sem innihalda skýrslu- tökur af stúlkum sem dvöldu á Bjargi, blaðaúrklippur og afrit bréfa til yfirvalda. Í vitnisburði einnar stúlkunnar, skýrslu sem er vottfest af tveimur lögmönnum standa eftirfarandi orð: „Á ríkisupptökuheimilinu var hún sett í herbergi með einu járn- rúmi. Annað húsgagna var þar ekki... Gluggi var spenntur aftur. Þarna var hún læst inni og fékk aldrei allan tímann að fara út nema til að fara á salerni eða í bað. Mjög slæmt loft var í herberginu og lykt varð þar slæm fljótt. Læs- ing var þannig að bundið var fyrir hurð og skrölti mikið þegar opn- að var. Öll föt hennar voru tekin af henni, nema nærbuxur og henni fengin náttföt til að vera í, eða all- an innilokunartímann, 28/5-4/6 eða 7 daga...“ „Forstöðukona upptökuheim- ilisins, Ólöf Þorsteinsdóttir, tjáði mér að kvenlögreglukonurnar Guðlaug Sverrisdóttir og Auður Eir Vilhjálmsdóttir hafi viljað hafa innilokunina miklu strangari en hún sjálf hefði óskað,“ skrifaði Gísli í skýrslu til yfirvalda 1967. „Það þótti góður undirbúningur á Bjargi að hafa stúlkurnar í einangrun frá fimm upp í tíu daga. Þær fengu ekki að hlusta á útvarp né lesa blöð. Eina lesefnið var kristilegt efni eða hrós um Bjarg. Þær áttu að vera sem mest með sjálfum sér og þeim sagt að, svo ég vitni orð- rétt í eina stúlkuna: „Til að ná best sambandi við Guð í bæn sé þegar maður er einn og hefur engan til að trufla.“ Með einangruninni átti Guð að frelsa þær.“ Gísli Gunnarsson hefur aldrei komið inn á Bjarg, en hann hafði upplýsingar sínar frá fyrstu hendi: „Ég kom í fyrstu að málinu sem „vinsamlegur skoðandi“ og starfs- konur ríkisupptökuheimilisins veittu mér góðfúslega upplýsingar, enda voru þær mótfallnar því að vera notaðar á þennan hátt. Þær fengu síðar skammir fyrir að veita mér upplýsingarnar, þótt ég sem kennari, hafi átt fullan rétt á þeim. Þegar málið fór að vinda upp á sig reyndu starfskonur Bjargs að koma sem mestri sök yfir á konurnar á ríkisupptökuheimilinu og þóttust ekki kannast við neitt, jafnvel þótt það hefðu verið Guðlaug Sverris- dóttir og Auður Eir sem komu með stúlkurnar af Bjargi inn á ríkisupp- tökuheimilið. Þe ar ég kom að málinu hafði Bjarg verið starfrækt í tvö ár en reglan var sú að stúlkur ættu helst að dvelja þar í tvö ár.“ Allir aðrir brugðust Þegar Gísli hafði tekið skýrsl- ur af nokkrum stúlknanna sendi hann málið til fjölmargra aðila. „Allir þeir aðilar fengu bréf og skýrslu mína um einangrun stúlknanna,“ segir Gísli. „Eini mað- urinn sem svaraði mér var bæjar- fógetinn í Kópavogi, sem gerði sína athugun á ríkisupptökuheim- ilinu. Hann var eina yfirvaldið sem brást löglega við. Allir aðrir brugð- ust. Formaður Sálfræðingafélags- ins hafði samband við mig og gaf mér hreinskilnislegasta svar sem ég hef á ævinni fengið: „Við höfum ekki siðferðilegan styrk til að eiga í þessu máli.“ Réttlætiskenndinni misboðið Að sögn Gísla sátu í Barnavernd- arráði Íslands á þessum tíma auk Gunnlaugs: Sveinbjörn Jónsson hæstaréttarlögmaður, sem var for- maður ráðsins, Magnús skólastjóri Hlíðaskóla, séra Gunnar Árnason, prestur í Kópavogi og móðurbróðir séra Auðar Eirar Vilhjálmsdóttur og Símon Jóhann Ágústsson, sem hafði verið í öllum barnaverndarmálum frá því á fjórða áratugnum. „Barnaverndarráð samanstóð því eingöngu af gömlum karl- mönnum. Gunnlaugur var eigin- lega unglambið, 48 ára! Við Sím- on Jóhann vorum vinir, hann hafði kennt mér við háskólann og hann fylgdist með Bjargsmálinu frá upp- hafi. Hann laumaði til mín upplýs- ingum um hvað barnaverndarráð var að gera eða ekki að gera. Á yfir- borðinu var hann stuðningsmaður Bjargs, en hann lék tveimur skjöld- um í þessu máli og aðstoðaði mig dyggilega. Hann var í rauninni eini fagmaðurinn í Barnaverndarráði.“ En hver er ástæða þess að gagn- fræðaskólakennari tekur upp á sitt eindæmi að rannsaka stúlkna- heimilið Bjarg, með þeim afleiðing- um að því er lokað nokkrum mán- uðum síðar? „Réttlætiskennd minni var mis- boðið og þegar ég byrjaði með mál- ið og mætti andstöðu og fjandsemi þá kom upp í mér þrjóska og bar- áttuvilji. Ég sagði við sjálfan mig að ef ég myndi láta málið niður falla, þá myndu fylgismenn Bjargs herja á mig með allt sitt lið og það var ekkert lítið! Ég ákvað að ég yrði að sigra í þessu máli til að geta lifað áfram. Ég var farinn að berjast fyrir minni eigin tilvist sem kennari og sem virtur þegn í samfélaginu.“ Var reynt að stöðva þig? „Já, stöðugt og ég fékk fjölmarg- ar hótanir. Ég vann einn að mál- inu í nær fimm mánuði, með smá- stuðningi frá Símoni Jóhanni og manni sem var fljótur að vélrita. Ég bar málið jafnóðum undir tvo lögfræðinga, sem fylgdust með til að gæta að því að ég væri ekki með neitt ólögmætt í höndunum. Ann- ar þeirra varð síðar virtur prófessor í lögfræði.“ Heiftin engu minni en fyrir fjörutíu árum Gísli segir stúlkurnar hafa verið misjafnlega á sig komnar andlega þegar hann hitti þær. Hann hefur nýverið heyrt í tveimur þeirra sem óskuðu eftir samtali við hann af ástæðum sem fljótlega verða þjóð- inni kunnar. „Heift þeirra í garð Bjargs er ennþá til staðar. Þessar konur eru nú á sextugsaldri og bera enn þá þann heiftarhug til Auðar Eirar Vilhjálmsdóttur og Bjargs og þær gerðu fyrir fjörutíu árum.“ Eftir að Bjargi var lokað, 23. okt- óber 1967 hafði Gísli ekkert sam- band við stúlkurnar í áratugi. „Ég mat það svo að þær vildu fá að vera í friði næstu árin og fá að gleyma þessum tíma. En svo fór hann að rifjast upp fyrir þeim þeg- ar þær urðu fullorðnar konur og margar þeirra orðnar mæður og sumar ömmur“. Kynferðisleg áreitni og of- beldi hefur komið mikið við sögu í Breiðuvíkurmálinu sem mikið er fjallað um þessa dagana. Kom eitt- hvað slíkt til tals í þínum athugun- um? „Ég kannaði aldrei slíkt. Ég lagði áherslu á þann þátt sem sneri að einangrun stúlknanna, sem ég leit alvarlegustu augum. Umræða um slíkt kom hins vegar upp af hálfu stúlknanna, en þær fundu fljótt að ég vildi ekki um það ræða.“ Myndirðu spyrja öðruvísi í dag en þú gerðir fyrir fjörutíu árum? „Ég hygg ekki. Ég var einungis að athuga einangrun.“ Bjargi var lokað 23. október 1967, en rannsókn málsins hófst 18. nóvember. Öll gögn málsins liggja á borðinu fyrir framan okk- ur. Það er eins og talnaþraut að lesa sig í gegnum ferlið. „Málinu var vísað til ráðuneytis í lok nóvember, ráðuneytið sendi það áfram til saksóknara til athug- unar 20. desember. Þaðan fór mál- ið aftur til saksóknara, sem sendi til Barnaverndarráðs sem sendi það til bæjarfógeta, sem sendi aft- ur til saksóknara og þaðan til ráðu- neytis og síðan lýsti ríkissaksókn- ari því yfir í desember 1968 að engin málshöfðun verði að höfðu samráði við menntamálaráðu- neytið. Lögfræðingur Bjargs, Logi Guðbrandsson, lýsti sig ánægðan með þessar málalykt- ir... Barnaverndarráð Íslands var svo lamað fram til ársins 1970 að Gunnlaugur Þórð- arson var gerður að formanni þess og hann var hvatamaður þess að Breiðuvík var lokað.“ Sonurinn tekinn með valdi af móðurinni Var þér kunnugt um að fær- eyska stúlkan, Marion Gray, eign- aðist son sem var tekinn af henni? „Já. Drengurinn fæddist á Fæð- ingarheimili Reykjavíkur og síðar var farið með hann á Bjarg þar sem Marion fékk að gefa honum brjóst í nokkra daga. Þetta veit ég frá Mar- ion sjálfri og stúlkunum sem voru samtímis henni á Bjargi. Forráða- konur Bjargs voru ráðalausar og fyrsta hugmyndin var sú að gefa drenginn til ættleiðingar. Mar- ion neitaði því og þá var leitað til barnaverndarnefndarinnar í Þórs- höfn í Færeyjum sem kvað upp þann úrskurð að barnið skyldi sent til Færeyja til umsjónar nefndar- innar. Drengurinn var tekinn af Marion með valdi.“ Gísli segir að þegar Marion fór síðar til Færeyja hafi henni verið lofað að hún fengi að sjá bar ið sitt ef hún undirritaði skjöl þess efnis að allt sem hún hefði sagt um Bjarg á Íslandi væru ósannindi. „Þegar Marion hafði undirrit- að það plagg var hún meðhöndl- uð sem úrhrak í Færeyjum og fékk aldrei að sjá son sinn.“ Sannleikurinn er skjalfestur Frá því DV hóf umfjöllun um Breiðuvíkurmálið í síðustu viku hafa fjölmiðlar verið undirlagðir af því. Við höfum fengið ábendingar um fleiri mál, þeirra á meðal það sem hér er til umræðu. Telur þú að Bjargsmálið muni rísa upp tvíeflt aftur eins og Breiðavíkurmálið? „Ég veit að það mun gerast,“ svarar Gísli að bragði.“Ég hef heyrt að verið sé að vinna að ítarlegri og áhrifaríkri athugun á þessu máli. Meira get ég ekki um það sagt, ég er bundinn þagnarskyldu.“ Og verður niðurstaða þeirrar athugunar þannig að þú getir tek- ið undir lokaorð Matthildar Haf- steinsdóttur í viðtali í blaðinu í dag að þegar saga Bjargs verði gerð op- inber muni mörgum misbjóða? „Já, ég get tekið undir þau orð. Ég tel tvímælalaust að þær stúlk- ur sem vistaðar voru á Bjargi hafi skaðast sálarlega. Bjargsmálið hvíl- ir á þeim sem skuggi og er kannski neikvæðasta atriði lífs þeirra. Þær voru margar geymdar á Bjargi með samþykki foreldra sinna - þó ekki allar - og inn í málin blandast því uppgjör við foreldrana. Þær vilja ekki ennþá vita allt sem foreldrar þeirra gerðu. Eftir að dómsrann- sókn hófst í málinu og lögreglan fór að taka skýrslur af Bjargsstúlk- unum kom margt hræðilegt í ljós. Sann- leikurinn um Bjarg er skjalfestur og margt um hann er að finna vel geymt í ráðuneyti í Reykja- vík.“ Sama iftin eftir 4 ár AnnA KRiStine blaðamaður skrifar: annakristine@dv.is „Ég tel tvímælalaust að þær stúlkur sem vistaðar voru á Bjargi hafi skaðast sálarlega. Bjargsmálið hvílir á þeim sem skuggi og er kannski neikvæðasta atriði lífs þeirra.“ Kennarinn sem kannaði málin „Mér var mjög brugðið þegar ég heyrði af unglings-stúlkum í einangrun,“ segir gísli gunnarsson,sem hóf rannsókn á starfsemi bjargs fyrir fjörutíu árum. fyrir framan hann á borðinu er ein af þeim möppum sem innihalda skýrslur og viðtöl við stúlkur sem dvöldu á bjargi. Í einangrun fyrir óhlýðni Tvær stúlkur sem höfðu verið vistaðar á Bjargi fóru hörðum orð- um um aðstæður þar og framkomu stjórnenda við stúlkurnar í viðtali sem birtist í tímaritinu Ostrunni í nóvember 1967. Þær lýsa þar meðal annars ofbeldi af hálfu starfskvenna Bjargs, kynferðislegri áreitni og mik- illi hörku. Í viðtalinu segja stúlkurnar að þær hafi verið beittar ofbeldi ef þær hlýddu ekki. Þannig hafi þær til dæmis orðið vitni að því að starfs- konurnar hafi slegið til stúlkna og dregið þær eftir gólfum. Þannig segja þær að ein stúlka hafi verið dregin alla leið niður af efstu hæð niður á jarðhæð þegar hún neitaði að fara niður. Fleiri refsingar komu þó til greina og var beitt. „Ef við mót- mæltum, var okkur hótað að við yrð- um sendar á hælið í Kópavogi eða þá á vandræðaheimili í Danmörku. Þær litu á okkur sem vandræðabörn og lýstu fyrir okkur, hvernig umhorfs væri á þessum vandræðaheimilum í Danmörku. Þær sögðu að þar væru járnbekkir, rimlar fyr- ir gluggum, múrar í kring og annað eftir því.“ Önnur stúlknanna lýs- ir því í viðtalinu hvernig hún var flutt á Upptökuheimilið í Kópavogi og sett í einangrun- arklefa þar eftir að hún flýði af Bjargi. Bróðir hennar hafði þá keyrt hana aftur á Bjarg og tekið loforð af forstöðukon- unni um að hún yrði ekki flutt á upptökuheimilið. Lof- orð sem var ekki virt. „Einu sinni rak forstöðu- konan tunguna upp í mig um leið og hún kyssti mig góða nótt, ég hrökklaðist undan en hún varð bara vandræðaleg og sagði að þetta væri bara leikur,“ segir önnur stúlkan í viðtalinu og hin segir frá því hvernig forstöðukonan hafi farið inn fyrir peysu sína með hendurnar og káfað á bakinu á sér. Neyddar til trúarathafna Þjóðviljinn og Tíminn fjölluðu um flótta Marion Gray frá Bjargi og veru hennar þar í löngum greinum 20. október 1967. Langt viðtal birt- ist við Marion í Þjóðviljanum þar sem hún lýsti upplifun sinni og þá ekki síst hvernig barn hennar var tekið af henni. Marion segir frá því að þegar hún sagði forstöðukonunni að hún væri með barni hafi sú síðarnefnda ekki trúað því. „...hún vildi ekki trúa mér, hún lamdi mig, við lent- um í slagsmálum og svo sagði hún að ég væri ekki frekar ófrísk en hún sjálf. Um kvöldið blæddi hjá mér í klukkutíma.“ Marion segist í við- talinu hafa beðið um að fá að fara til læknis en verið neitað. Síðan hafi liðið langur tími og hún fyrst fengið að fara til læknis þegar barnið var farið að sparka. Þá var Marion komin sjö mánuði á leið. Í umfjölluninni er Bjargi lýst sem ríkisstyrktu uppeldisheim- ili í höndum ofsatrúarflokks. Þar segir meðal annars að eng- inn sálfræðingur starfi við stofn- unina en uppeldisaðferðirnar byggi allar á annarlegri trúfræði, annars vegar séu viststúlkur þvingaðar til að taka þátt í trúar- athöfnum og hins vegar beittar hótunum og refsingum. Barna- verndarráð er sagt hafa lítil af- skipti af Bjargi. Sett í spennitreyju Marion segir frá því að hún hafi verið lokuð inni í klefa í færeyjum í spennitreyju, í fimm daga. Umfjöllun DV 9. febrúar saga Marion gray, sem flýði af bjargi, vakti mikla athygli. Umfjöllun Ostrunnar í nóvember 1967 stúlkurnar segja auði eir Vilhjálmsdóttur, sem þá var lögreglu- kona, hafa sagt að eina leiðin til að ala upp unglinga væri að halda þeim í sífelldum ótta. „...hún vildi ekki trúa mér, hún lamdi mig, við lentum í slagsmálum og svo sagði hún að ég væri ekki frekar ófrísk en hún sjálf.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.