Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2007, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2007, Side 20
Sjö af átta stærstu fyrirtækjunum í Kauphöllinni högnuðust um 325 milljarða króna á síðasta ári. Tekju­ skattgreiðslur þeirra vegna þessa nema 27 milljörðum króna. Að auki gáfu fyrirtækin upp um 27 millj­ arða króna í áætluðum tekjuskatti sem kemur ekki til greiðslu núna og líklega aldrei. Skattarnir sem koma ekki til greiðslu verða því álíka háir og skattarnir sem verða greiddir. Fresta skattgreiðslum Skattarnir sem koma ekki til greiðslu eru að stórum hluta vegna söluhagnaðar af viðskiptum með hlutabréf. Lögum samkvæmt ber fyrirtækjum að greiða 18 prósenta skatt af söluhagnaði. Þau geta hins vegar frestað greiðslu og jafnvel komist hjá henni með endurfjár­ festingum. Hugsunin á bak við þá heimild er sú að félög geti þar með stækkað hraðar og meira en ann­ ars væri. Þess­ ar heimildir hafa fyrirtæk­ in nýtt síð­ ustu ár. Skattlagning söluhagnaðar hef­ ur þó farið nokkuð fyrir brjóstið á fjárfestum sem hafa bent á að sums staðar á Vesturlöndum sé söluhagn­ aður ekki skattlagður. Dæmi um það er Holland. Þar hafa íslenskir fjár­ festar stofnað eignarhaldsfélög um 550 milljarða króna eign sína í félög­ um í Kauphöllinni. Þeir hafa þar af leiðandi ekki þurft að borga skatta af söluhagnaði. Þótt það hafi ekki munað miklu fyrir ríkissjóð meta endurskoðendur ávinninginn fyr­ ir fjárfesta á nokkra milljarða króna samanlagt. Aðrir fjárfestar hafa þurft að end­ urfjárfesta til að komast hjá skatt­ greiðslu. Það breytist þó væntan­ lega á næstunni. Forsætisráðherra hefur boðað breytingar á skattkerf­ inu, meðal annars þannig að sölu­ hagnaður fyrirtækja af hlutabréfa­ viðskiptum verði ekki skattlagður. Þar með er brugðist við hollensku leiðinni. FL Group greiddi enga skatta FL Group greiddi enga skatta síðustu tvö árin þrátt fyrir að hagnast um 60 milljarða króna. Svein­ björn Ind­ riða­ son, fjármálastjóri fyrirtækisins, segir tvær ástæður fyrir þessu. „Ann­ ars vegar átti félagið yfirfæranlegt tap frá fyrri árum. Hins vegar hef­ ur félagið nýtt sér heimild í skatta­ lögum til frestunar á skattgreiðsl­ um vegna hagnaðar af almennum hlutabréfaviðskiptum með því að endurfjárfesta hagnaðinum í hluta­ bréfum.“ Aðspurður sagði Sveinbjörn að fyrirtækið hefði ekki greitt aðra skatta á tímabilinu en benti á að gjaldfærðir skattar fé­ lagsins næmu tæp­ um 900 milljónum króna um síðustu áramót og að rúmar 100 milljónir króna yrðu greiddar í skatta á næsta gjaldatíma­ bili. Einstaklingar borga meira en fyrirtækin Samkvæmt áætlun fjármálaráðuneytis­ ins námu tekju­ skattgreiðslur fyr­ irtækja og annarra lögaðila 31 millj­ arði króna á síðasta ári. Þær höfðu meira en tvöfaldast frá ár­ inu áður þegar þær námu 15 milljörð­ um króna og nær þrefaldast frá árinu 2004. Það ár námu greiðslunar um 11 milljarðum króna. föstudagur 16. febrúar 200720 Fréttir DV BrynjóLFur þór Guðmundsson blaðamaður skrifar: brynjolfur@dv.is græddu 60 milljarða Stjórnendur FL Group nýttu sér reglur um endurfjárfestingu og yfirfærðu tap frá fyrri árum. Niðurstaðan var sú að fyrirtæk­ ið greiddi hefur ekki greitt neinn tekjuskatt síðustu tvö árin þrátt fyrir góða afkomu. og borga nær enga skatta Afkoma og skattgreiðslur helstu stórfyrirtækja 2006 tekjuskattur einstaklinga tekjuskattur lögaðila 62 ,6 69 ,1 78 ,2 10 ,9 15 ,4 31 ,4 2004 2005 2006 Bakkavör straumur-Burðarás FL Group Exista Landsbanki Glitnir Kaupþing 10 1, 1 46 ,3 44 ,7 38 ,5 44 ,6 41 ,5 8, 8 10,1 5,7 3,4 0,8 0,9 4,8 1,2 Hagnaður fyrir skatta skattgreiðslur allar upphæðir eru í milljörðum króna Lýður og Ágúst Guðmundssynir exista hefur hagnast um 80 milljarða króna á tveimur árum. skattgreiðslurnar nema 137 milljörðum króna, meðal annars vegna skipulagsbreytingar þar sem tekjuskatt- skuldbinding lækkaði um 4,4 milljarða. sigurður Einarsson og Hreiðar már sigurðsson búnaðarbankinn skilaði 160 milljarða hagnaði 2005 og 2006. skattgreiðslurnar námu tæpum tíu milljörðum króna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.