Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2007, Page 34

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2007, Page 34
föstudagur 16. febrúar 200734 Sport DV F aðir þeirra bræðra er Ingv- ar Jónsson. Hann er yfirleitt kallaður faðir körfuboltans í Hafnarfirði eftir að hafa stýrt liði Hauka lengi og náð frábærum árangri jafnt í yngri flokkum sem og í meistaraflokki. Jón og Pétur hafa því stundum verið kallaðir syn- ir körfuboltans í Hafnarfirði. Saman léku þeir lengi með Haukum og urðu bikarmeistarar árið 1996. Jón Arnar segir að þeir bræður hafi nýtt sér ýmsar þjálfunaraðferðir föður síns „Það var margt sem gekk á þegar pabbi var að þjálfa en nánast allan þann tíma sem við vorum undir hans stjórn nutum við velgengni. Það var ábyggilega 90% árangur og auðvitað tekur maður það sem maður lærir við þær aðstæður. Það er margt sem ég hef nýtt mér.“ Pétur tekur í sama streng. „Maður reynir að nota það góða og sleppa því slæma, en það var reyndar þannig að það var lítið slæmt, allavegana að okkar mati. Ég held að við not- um báðir hans stíl og það sem hann gerði í þjálfun okkar.“ Leikmenn/þjálfarar Sem leikmenn voru þeir bræð- ur afar ólíkir á velli. Pétur var bar- áttujaxl af guðs náð, kaldur og var ekkert að hika við hlutina. Jón Arn- ar var hins vegar leiðtogatýpan, ró- legur og yfirvegaður. Hann þótti einn besti bakvörður landsins og lék yfir 100 landsleiki. Pétur hóf þjálf- araferil sinn með Hamri árið 1998 en Jón Arnar hefur þjálfað Hauka og Breiðablik. Hann tók við ÍR-lið- inu af Bárði Eyþórssyni í nóvember 2006. Fróðir menn segja að dæmið hafi snúist við þegar þeir bræður fóru að þjálfa. Hamar/Selfoss undir stjórn Péturs leikur yfirvegaðan bolta, á meðan ÍR-liðið hikar ekkert við hlut- ina og þykir Jón Arnar afar djarfur sem þjálfari þeirra. „Það eru kannski leikmenn sem ráða þessu,“ segir Pétur. „Ef ég væri að þjálfa ÍR-liðið og Jón Arnar að þjálfa Hamar myndi þetta trúlega snúast við.“ Jón Arnar tekur undir orð bróður síns og bætir við, „Maður verður að aðlagast því sem maður hefur hverju sinni og reyna að vinna þannig að maður nái því besta úr mannskapn- um.“ Hafa mæst fjórum sinnum George Byrd hefur lítið æft með liði Hamars/Selfoss vegna smá- meiðsla en Pétur segir að hann verði tilbúinn á laugardaginn. Jón Arnar hefur áhyggjur af flensu sem hefur hrjáð ÍR-liðið en segir þó að allir sín- ir leikmenn muni verða heilir. Þeir Jón Arnar og Pétur hafa mæst fjórum sinnum sem þjálfarar. Staðan er 2-2 en þegar liðin mættust fyrir tæpum mánuði vann ÍR með 23 stiga mun. Pétur segir að lykillinn að sigri sé að hægja á hraða leiksins. „Ef leikurinn verður hægur og lítið skorað, þá eru líkurnar með okkur en ef hann verður hraður og mikið skorað þá hef ég trú á ÍR-liðinu. Hins vegar kunnum við báðir að vinna og að tapa, sérstaklega hvor fyrir öðrum þannig að ég á von á hörkuleik.“ Spila á laugardag George Byrd, vinsæli Bandaríkja- maðurinn í liði Hamars/Selfoss, hef- ur glímt við smávægileg meiðsl en segist verða tilbúinn í slaginn þegar stærsti leikur ársins fer fram á laug- ardag. „Ég er trúlega 80% heill en mun beita mér 100% á móti ÍR. Ég hlakka mjög til leiksins því þó að ég hafi spilað til úrslita um Íslandsmeist- aratitilinn í fyrra með Borgarnesi hef ég aldrei leikið í bikarúrslitum. Ég tapaði í fyrra með Borgarnesi gegn Grindavík í undanúrslitum og ég tók það tap nærri mér. Hamar/Selfoss hefur ekki leikið um bikar frá árinu 2001 og ég held að allt bæjarfélag- ið sé mjög spennt og það verði mikil stemming í höllinni.“ Þó svo að meðalaldurinn í liði Hamars/Selfoss sé ekki hár segir Byrd að hann óttist ekki reynsluleys- ið. „Ég hef reynslu af stórum leikj- um, Lárus (Jónsson) og Svavar (Páls- son) hafa verið frábærir í vetur og þó að liðið sé kannski ekki gamalt er það með smá reynslu á bakinu. Ég er þannig leikmaður að ég hlusta á sam- herja mína og Lárus, Svavar og Pétur þjálfari spiluðu leikinn árið 2001 og þekkja því stemminguna. Ég reyni bara að læra af þeim því þannig leik- maður er ég,“ segir þessi skemmtilegi Bandaríkjamaður að lokum. benni@dv.is rÆÐA EKKI LEIKINN SÍN Á MILLI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.