Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2007, Qupperneq 62

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2007, Qupperneq 62
FÖSTUDAGUR 16. FebRúAR62 Helgarblað DV að lokum Tvenns konar blogg Góður skiln- aður er að verða í bloggi. Annars vegar eru nafn- greindir, sem skrifa undir fullu nafni og eru lesnir. Hins vegar eru nafn- lausir, sem skrifa fyrir vini og ætt- ingja eða til að fá útrás. Ótrúlega margir hinna síðarnefndu eru geðveikir, svo sem sjá má af skrif- um þeirra, til dæmis á Barnalandi. Hinir fyrrnefndu bera suma hinna síðarnefndu á bakinu með því að leyfa þeim að skrá nafnlausar athugasemdir neðan við sín skrif. Með því eru hinir nafngreindu að taka ábyrgð á hinum nafnlausu. Siðferðileg ábyrgð hvílir á öllu nafnlausu bloggi, fyrst hjá eiganda síðunnar, síðan hjá netmiðli og síðast hjá netþjóni. Nafnlaust lýðræði Mér finnst sumir þeir, sem blogga undir fullu nafni, telja sér sóma að athugasemdum nafn- leysingja fyrir neðan. Þær sýni, að einhverjir lesi bloggið. Betri aðferð til að sýna mikilvægi sitt er að birta tölur um notkun. Sjaldnast skipta athugasemdir nokkru máli. Þær eru upphrópanir, sem bæta engu nyt- samlegu við upphaflega textann. Nafnlaust lýðræði er snöggtum lakara en nafngreint lýðræði. Ég held, að nafngreindum bloggur- um væri fremur sómi af að birta eingöngu athugasemdir þeirra, sem skrifa undir fullu nafni. Þannig stuðluðu þeir að bættu bloggi, vitrænni umræðu í sam- félaginu. Netmiðlar lúta lögum Fjölmiðlar og aðrir, sem gefa út netmiðla af ýmsu tagi, eiga að gefa blogg- urum auðveld- an kost á að birta eingöngu athugasemdir undir fullu nafni. Þar með væri ábyrgð vísað frá netþjónum, netmiðlum og viðurkenndum bloggurum yfir á hendur fólks, sem nú felur geðveiki sína undir nafnleysi. Það mundi sleppa athugasemdun- um eða vanda þær betur. Hvort tveggja er góður kostur. Dóm- venja hefur skapazt um, að lög um prentmiðla gilda um ljós- vakamiðla og munu því einnig gilda um netmiðla, þótt á það hafi ekki reynt. Fyrir rest er prentarinn ábyrgur, það er að segja netþjónninn. jonas@hestur.is Lægðirnar rata hingað norðureftir Skil ekki bloggara, blogga þeir ekki mest hver um annan? „Eftir um 10 daga tímabil framan af febrúar þar sem lægðirnar hafa verið á austurleið langt fyrir sunnan Ísland, má segja að veðrið hafi skipt um fasa. Lægðirnar í febrúar eru oft ansi öflug- ar og leita þær nú lengra norðureftir eða í áttina til okkar. Sú fyrsta er nokk- uð djúp og útlit fyrir að hún fari bein- ustu leið yfir landið á föstudag og laug- ardag. Um leið verður hún heldur að grynnast,“ segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur. Það kólnar um skamma hríð á laug- ardagskvöld að sögn Einars, aðallega á Norðurlandi og Vestfjörðum og sums staðar mun snjóa á þeim slóðum. „Hins vegar mun næsta lægð nálg- ast óðfluga og um miðjan dag á sunnu- dag er gert ráð fyrir suðaustan slagveð- ursrigningu sunnanlands og vestan og síðar um daginn einnig norðan- og austanlands.” Nánast er snjólaust á landinu á láglendi, reyndar nokkur snjór á Aust- fjörðum og eins með suðausturströnd- inni. Sá snjór er hins vegar á hröðu undanhaldi þessa dagana. „Menn geta síðan gert sér í hugarlund hvort þetta sé nærri meðalveðráttu þessa árstíma þegar vetrarríkið á að vera í hámarki! Í hlýindunum á sunnudag, þarf að fara upp í rúmlega 1.000 metra hæð þar sem úrkoman fellur sem snjór, þar fyrir neð- an annað hvort sem slydda eða rigning. Al- mennt séð er síðan ekki að sjá annað en að í næstu viku megi reikna með áframhaldandi hláku lengst af,” segir Einar Sveinbjörnsson. ...Helgu Möller að hafa verið í Icey-flokknum. Helga á það sameiginlegt með... ...Heiðari Jónssyni að hafa verið flugfreyja. Heiðar á það sameigin- legt með... ...Guðmundi í Byrginu að hafa lent í kynlífshneyksli. Guðmund- ur á það sameiginlegt með... ...Reyni Traustasyni að vera alltaf með kúrekahatt. Reynir á það sameiginlegt með... ...Kio Briggs að hafa verið tekinn með eiturlyf í tollinum. Kio Briggs á það sameiginlegt með... ...Gunnari Jónssyni að hafa unnið sem dyravörður. Gunnar á það sameiginlegt með... ...Davíð Þór Jónssyni að hafa verið í þættinum kallarnir.is. Davíð á það sameiginlegt með... ...Steini Ármanni að hafa verið Radíusbróðir. Steinn á það sameiginlegt með... ...Eiríki Haukssyni að vera rauðhærður. Tengsl Thalía, leikfélag Menntaskól- ans við Sund, frumsýndi þann 13. febrúar leikritið Rómeó og Júlíus. Leikstjóri uppfærslunnar er Sigur- jón Kjartansson leikari. Sigurjón hefur ekki leikstýrt sviðsverki áður og naut aðstoðar Halldórs Gylfason- ar leikara á endasprettinum. „Róm- eó og Júlíus er leikrit sem krakkarn- ir bjuggu til í sameiningu og fengu mig til að leiða þau í gegnum það. Halldór herti skrúfurnar á þessu stórmerkilega verki og gerði það straumlínulagað.” Þrátt fyrir að titill verksins beri í sér skírskotun í Róm- eó og Júlíu er ekki um frekari teng- ingu að ræða. „Um miklar ástir er ekki að ræða milli aðalpersónanna” segir Sigurjón. „Þetta er ferðalag og fjallar um ungan mann sem vakn- ar í landi sem heitir Kaos og lendir á ferðum sínum þar í ýmsum ævin- týrum.” Nánar vill Sigurjón ekki tjá sig um framvinduna: „Því meira er eiginlega ómögulegt að segja.” Er ekki að skipta um starf „Ég hef leikstýrt fyrir sjónvarp, einni syrpu af Tvíhöfða og auglýs- ingum og get ekki verið annað en sáttur. Drögin að leikritinu voru lögð síðastliðið haust og æfingar hófust upp úr því. Krakkarnir stóð- ust álagið og frumsýningin tókst í alla staði vel. Þetta var eðalhóp- ur um 25 nemenda sem lét vel að stjórn og skilaði sínu fullkomlega. Hvað sviðsleikstjórn áhrærir segir Sigurjón að hann sé ekki að skipta um starf. „Ég er ekki með neina leik- stjórnardrauma og engan metnað til leikstjórnar á sviði, en geri þetta ef með þarf. Mér tókst þokkalega upp og þetta er skemmtilegt verk og vel heppnað.” Sigurjón leikur þessa dagana í Abbababb eftir dr. Gunna. „Ég hef nú fyrst og fremst verið að læra þar því María Reyndal leik- stjóri hefur kennt mér heilmikið,” segir Sigurjón. „María Reyndal, hún er hress.” kolbeinn@dv.is Sigurjón Kjartansson er þekktur fyrir ýmislegt annað en leik- stjórn. Hann er best þekktur sem annar helmingur Tvíhöfða auk þess sem hann hefur leikið í kvikmyndum og auglýsingum. Í leik- ritinu Rómeó og Júlíusi sýnir hann á sér nýja hlið. Sigurjón Kjartansson leikstjóri „Ég er ekki með neina leikstjórnardrauma og engan metnað til leik- stjórnar á sviði, en geri þetta ef með þarf.“ Ævintýri í Kaos Frá frumsýningu Rómeós og Júlíusar veðrið um Helgina ritstjorn@dv.is LauGaRDaGuR 2 0 3 3 4 SuNNuDaGuR 5 4 2 0 3 6 4 3 0 24 1 5 3 4 6 10 5 8 5 5 5 3 515 15 13 18 2 5 10 8 5 2 23 Eiríkur Hauksson á það sameiginlegt með ...
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.