Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2007, Page 13
DV Fréttir föstudagur 23. mars 2007 13
horft til umhverfissinna
Verslunarfyrirtæki
veðja líka á grænan
Það eru ekki bara stjórnmála-
menn í Bretlandi sem keppast um
að marka flokkum sínum stefnu í
umhverfismálum sem almenningur
treystir. Verslunarfyrirtæki landins
standa nefnilega í álíka baráttu sín
á milli. Um miðjan janúar tilkynnti
Marks&Spencer að allur rekstur fyr-
irtækisins yrði kolefnishlutlaus á
næstu árum. Það þýðir að fyrirtæk-
ið bætir fyrir alla þá koltvíoxíðlos-
un sem rekstur þess veldur með því
að binda kolefni í jarðvegi og gróðri.
Áætlar fyrirtækið að kostnaður-
inn vegna þessa átaks verði um
tvö hundruð milljónir punda á
næstu árum. Nokkrum dög-
um síðar bauð Tesco, stærsta
matvöruverslunarkeðja Bret-
lands, enn betur. Fyrirtækið
ætlar að verja fimm hundr-
uð milljónum punda í græna
neytendabyltingu á næstu
fimm árum sem mun minnka
losun gróðurhúsalofttegunda
verulega. Þetta er umfangs-
mesta umhverfisátak sem breskt
fyrirtæki hefur ráðist í til þessa
samkvæmt frétt The Independent.
Þessa miklu umhverfisvakningu í
breskum verslunarrekstri má rekja
til bandaríska verslunarrisans Wal-
Mart sem tilkynnti fyrir tveimur árum
síðan að fyrirtækið myndi í framtíð-
inni aðeins notast við endurvinn-
anlega orku og draga mjög úr losun
skaðlegra lofttegunda. Wal-Mart á og
rekur Asda, næststærstu matvöru-
verslunarkeðju Bretlands, og hafði
þessi tilkynning þau áhrif þar í landi
að stærstu aðilarnar á matvörumark-
aðnum birtu álíka umhverfisstefnur.
Til dæmis lofaði Tesco að auka nýt-
ingu á sólar- og vindorku og auka
innkaup af innlendum matvæla-
framleiðendum. Umhverfisráðherra
Bretlands þrýsti á síðasta ári á fjögur
stærstu verslunarfyrirtækin í landinu
að grípa til ráðstafana til að minnka
losun koltvíoxíðs.
Gífurlegar breytingar
Þessi metnaðarfulla umhverf-
isstefna fyrirtækjanna kall-
ar á umbyltingu á mörg-
um sviðum í rekstri þeirra.
Á heimasíðu Marks &
Spencer kemur meðal
annars fram að fyrirtæk-
ið ætli að minnka los-
un kolefna um áttatíu
prósent og hætta allri
urðun á sorpi. Til að
ná þessum markmið-
um verður dregið veru-
lega úr notkun umbúða
og vistvænni bílafloti not-
aður. Bæði Marks & Spencer
og Tesco ætla að auka viðskipti
sín við innlenda bændur og mat-
vælaframleiðendur. Þar sem flutn-
ingur á þeim vörum mengar minna
en á matvælum sem flytja þarf með
skipum eða flugvélum milli landa.
Marks & Spencer er nú þegar byrj-
að að merkja sérstaklega öll matvæli
sem flutt eru með flugvélum. The
Economist benti hins vegar á það
nýverið að þessi rök stæðust ekki
við nánari skoðun. Enda er ræktun
grænmetis og ávaxta í mörgum til-
vikum mun orkufrekari í Bretlandi
en sunnar í álfunni. Orkusparnað-
urinn sem fæst af styttri flutninga-
leið dugar því ekki til að vega upp
á móti þeirri umfram orkunotkun
sem fór í ræktunina á norðlægum
slóðum. Hvað sem þessum vanga-
veltum líður ætlar Tesco að auka úr-
val sitt af umhverfisvænum vörum
og selja þær ódýrara en áður. Eins
munu viðskiptavinir í öllum nítján
hundruð verslunum þeirra geta séð
á umbúðunum hversu mikil losun á
gróðurhúsalofttegundum hefur orð-
ið vegna framleiðslu vörunnar. Þetta
mun þó ekki gerast í nánustu fram-
tíð. Stór hluti bresku þjóðarinnar er
meðvitaður um gróðurhúsaáhrif-
in og segir nauðsynlegt að bregðast
við neikvæðri þróun loftslagsmála
vegna þeirra. Hvort þeir kjósendur
og neytendur sem tilheyra þessum
meirihluta eru í raun tilbúnir til að
breyta eigin lífsmynstri og neyslu
til að leggja sitt af mörkum kemur
enn betur í ljós nú þegar þessi loforð
stjórnmálaflokka og verslana verða
efnd. Enda miða mörg þeirra að því
að auðvelda fólki að lifa umhverfis-
vænna lífi en það gerir í dag.
kristjan@dv.is
Grætt á samvisku umhverfissinna
Vond samviska breskra flug-
farþega vegna þeirrar mengun-
ar sem ferðalögum þeirra valda
hefur getið af sér fjölda nýrra
þjónustufyrirtækja í landinu.
Samkvæmt frétt The Economist
bjóðast fyrirtækin til að binda
ákveðið magn af kolefnum fyrir
viðskiptavini sína sem vegur upp
á móti þeirri losun gróðurhúsaloftteg-
unda sem ferðalag þeirra olli. Þannig
verður ferðalangurinn kolefnishlutlaus.
Kannanir sýna að tíundi hver Breti er til í að
íhuga að borga fyrir svona þjónustu. Í grein blaðsins
er hins vegar bent á að starfs-
hættir margra þessara fyrir-
tækja séu vafasamir. Þannig eru
verðskrár þeirra mjög misjafnar
og eins útreikningar á hversu mik-
il losun hafi átt sér stað. Enda skipt-
ir veður og fjöldi farþega miklu máli
hvað þetta varðar. Einnig er ekkert
samræmi milli fyrirtækja um hversu
mikið eitt tré bindur af kolefnum. Verðið
fyrir að bæta upp fyrir losun á einu tonni
af koltvíoxíð getur því hlaupið frá innan við
tvö hundruð krónum og allt upp í tæpar þrjú
þúsund krónur.
Tesco ætlar að verja
fimm hundruð millj-
ónum punda í græna
neytendabyltingu á
næstu fimm árum sem
mun minnka losun
gróðurhúsaloftteg-
unda verulega.
Tesco-verslun Úrval náttúruvænni matvara mun aukast í Bretlandi
standi verslunareigendur við loforð sín.
Marks & spencer
matvara í verslunum
marks & spencer sem
flutt er með flugi er
merkt sérstaklega.