Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2007, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2007, Síða 30
föstudagur 23. mars 200730 Sport DV Hávaxinn og sterkur „Hörður fannar er hávax- inn, sterkur og hann er mjög fljótur á fótunum, þó hann sé stundum aðeins of bráður,“ segir rúnar sigtryggsson þjálf- ari Harðar hjá akureyri. „svo er hann mjög öflugur línumaður og sterkur sóknarlega ekki síð- ur en varnarlega. Hann er 23 ára og á framtíðina fyrir sér. Ef hann dettur ekki inní landsliðið þá er eithvað að, “ segir rúnar að lok- um en þess má geta að rúnar var sjálfur eitt sinn burðarmaður í íslenska landsliðinu og veit því hvað hann syngur. Mikill keppnismaður „Ásgeir er mikill keppnis- maður og leggur sig alltaf 100% fram,“ segir Bjarki sigurðsson þjálfari Ásgeirs hjá aftureld- ingu. „Hann er ávallt til í hlusta og hlustar vel. Hann er að læra, er ennþá ungur og er ekki búinn að ná fullum tökum á sínum varnarleik en er viljugur að læra. Hann er einn af þessum mönn- um sem maður vill helst ekki lenda í klóm á. Hann getur tekið vel á, er stór og mikill og sjálfur hefur hann sett sér það markmið að verða einn af bestu varnar- mönnum á landinu,“ segir Bjarki að lokum um línumanninn sinn. forvitnilegt verður að sjá Ásgeir á næsta tímabili á meðal þeirra bestu en afturelding er komið upp í dHL deildina. Einn af okkar leiðtogum „Ingvar Árnasson hefur vax- ið alveg gríðarlega í vetur,“ seg- ir Óskar Bjarni Óskarsson þjálfari Vals. „Hann spilaði aðeins í fyrra en hann er klárlega einn af okkar leiðtogum núna. Ingvar má vera grimmari að berja á andstæðingunum, þetta er karlmannsíþrótt. Hann hefur góðan skilning og er í framför en til að fara á næsta stig þarf hann að berja meira frá sér. Ég vil meina að Ingvar sé einn af varnarleiðtogum landsins. Hann er bara tvítugur og er bú- inn að stjórna okkar vörn gríðar- lega vel og er tilbúinn að leggja mikið á sig. Hann er skynsamur í alla staði, ég held að honum séu allir vegir færir og hann á að geta farið ansi langt. Það er ekkert grín að vera tvítugur og vera að stjórna vörn. Hann hefur allt í þetta og hefur tekið skrefið úr því í að vera efni- legur í að vera góður varnarmað- ur mjög vel. Hann er á réttri leið.“ Kínamúrinn „Kínamúrinn eins og við köllum hann,“ segir Óskar Bjarni Óskarsson þjálfari Vals. „Ægir kemur úr körfuboltanum en var þó í handbolta í yngri flokk- unum. Hans styrkleiki er sá að hann er stór og tekur mikið til sín. Hann er gríðarlega góður að verja skot andstæðinga, og ég vil meina að hann eigi mikið inni. Hann á bara eftir að verða betri og betri. Hann hefur verið að glíma við smávægileg meiðsli og því trúi ég að hann verði enn öflugri eftir næsta sumar. Hann er alltaf að bæta sig. Hann get- ur farið langt í þessu ef hann vill það.“ Ægir lék lengi körfubolta en snéri aftur á handboltavöllinn eftir töluverða útlegð. Óskar seg- ir að það hjálpi Ægi töluvert að hafa bakrunn úr körfunni. „öll þessi fótavinna og ýmis- legt annað hjálpar að sjálfsögðu. Það sem er gott við Ægi er að hann stendur sig vel þegar mest á reynir. Ég bíð spenntur eftir að sjá hann í einhvers konar Evr- ópukeppni, sem vonandi gerist á næsta ári,“ segir Óskar en Vals- menn eru efstir í dHL deildinni. Íslenska landsliðið í handbolta á nokkra frábæra varnar- menn. Þó eru nokkrir komnir á aldur og er því ekki úr vegi að skoða hverjir gætu staðið sína plikt í varnarleik lands- liðsins þegar fram líða stundir. Nafn: Ægir Hrafn Jónsson Félag: Valur „Getur farið langt í þessu ef hann vill það.“ Óskar Bjarni Óskarsson Nafn: Hörður Fannar Sigþórsson Félag: Akureyri „Ef hann dettur ekki inní landsliðið þá er eitthvað að.“ Rúnar Sigtryggsson Nafn: Ásgeir Jónsson Félag: Afturelding „Hefur sett sér það markmið að verða einn af betri varnarmönnum á Íslandi.“ Bjarki Sigurðsson. Nafn: Ingvar Árnason Félag: Valur „Ég held að honum séu allir vegir færir.“ Óskar Bjarni Óskarsson FraMtíðar varnarMEnn íslEnsKa landsliðsins í Handbolta Þessir voru einnig tilnefndir: Hrafn Ingvarsson UMFA, Kári Kristjánsson Haukum, Haukur Sigurvinsson Fylkir Sigurgeir Árni Ægisson HK, Andri Berg Haraldsson Fram og Gunnar Harðarsson Valur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.