Fréttatíminn - 08.10.2010, Page 34
My Secret · Digranesvegi 10 · 200 Kópavogi · S: 527-2777 · www.mysecret.is
Aada er hugsaður til þess að hjálpa fólki við að bæta heilsu og auka
vellíðan. Drykkurinn er auk þess vatns- og þyngdarlosandi og getur
reynst góð hjálp við mígreni, flensu, kvefi, bólgum, gigt, ógleði, ferða-
veiki, þreytu, sljóleika, meltingartruflunum og jafnvel hjálpað til við
að styrkja kynlífið.
Hugsaðu um heilsuna
VIKUSPRENGJA
HJÁ MY SECRET
» AÐEINS ÞESSA VIKU 4.900 kr.
Fæst eingöngu á
Digranesvegi 10,
Kópavogi.
My Secret býður
uppá 5 lítra brúsa af
aada engiferdrykknum
frá 7.-14.október.
Opnunartími mán – fös frá kl. 8 – 16 og laugardaginn 9. okt frá kl. 10 – 14
4 heilsutíminn Helgin 8.-10. október 2010
ÓsátturBörn borða oftast
það sem fyrir þau er sett.
Getty Images Nordic Photos
Bjóddu upp á vatn eða mjólk
með matnum. Gott er að halda
vatni að barninu, þá hefur það
síður tilhneigingu til að sækja
í óhollan mat. Oft er líkaminn
bara þyrstur þegar hann heldur
að hann sé svangur. Kalk er líka
mjög nauðsynlegt fyrir kroppa
sem eru að vaxa en kalk eða
kalsíum er að finna í mjólkur-
vörum, svo sem mjólk og osti.
Einnig er dökkgrænt grænmeti
mjög kalsíumríkt.
Gerðu grænmetið girnilegt!
Skerðu það niður í strimla, t.d
rauðar og gular paprikur sem
eru frekar sætar og getur verið
gott að narta í með mat, sem
og gúrku. Barnið hrífst af útliti
u Númer tvö á listanum er öllu
alþýðlegri og algengari matvara, bananar.
Líkaminn fær orku fljótt úr banönum og
þeir eru góðir fyrir blóðþrýstinginn. Neysla
banana dregur úr hættu á hjartaáföllum.
u Í kjölfarið fylgir feitur fiskur, t.d. lax,
makríll, síld eða sardínur. Í þessum fiski er
mikið af ómega 3-fitusýrum og D-vítamíni.
Lýsið sem margir Íslendingar eru duglegir
að taka á morgnana er vissulega í þessum
flokki. Næst á listanum eru spergilkál
(brokkólí), hnetur, kornmatur úr ómöluðu
korni, plöntustanólester sem minnkar
kólesteról í blóði – og er m.a. viðbætt efni
í nokkrum matvörum, t.d. Benecol sem
margir þekkja hér – sojabaunir, ber og að
lokum rauðir og appelsínulitir garðávextir,
þ.e. gulrætur, grasker, rauður pipar og
sætar kartöflur.
u Þessi matseðill hentar körlum, ekki
síst þeim sem vilja viðhalda vöðvamassa
sínum og fyrirbyggja ýmsa sjúkdóma, t.d.
krabbamein í blöðruhálskirtli og hjarta-
sjúkdóma en þeir sjúkdómar leggja flesta
karla að velli.
u Þessar tíu hollu vörutegundir duga þó
ekki einar og sér, segja sérfræðingarnir.
Lífsstíllinn þarf almennt að vera heil-
brigður, karlarnir þurfa að hreyfa sig og
reykingar eru forboðnar. Karlarnir verða
að átta sig á því að borði þeir hollan mat
bæta þeir frammistöðu sína, hvort heldur
er í vinnu eða svefnherberginu þegar heim
er komið, segir í Jótlandspóstinum. -jh
Maturinn
sem karlar ættu að borða
Topp tíu fyrir karla:
Ostrur
Bananar
Feitur fiskur
Spergilkál
Hnetur
Ómöluð kornvara
Plöntustanólester (er t.d. í Benecol)
Sojabaunir
Ber
Rauðir og appelsínulitir garðávextir
Það þykir lúxus að borða ostrur en kosturinn við þær er hollustan, einkum fyrir
karla. Ostrur ásamt ýmsum öðrum matvörum halda lækninum í hæfilegri fjarlægð,
að því er fram kemur í samantekt bandarískra fæðusérfræðinga sem birt var í
veftímaritinu WebMD og Jótlandspósturinn vísar til. Ostrur eru í fyrsta sæti á lista
sérfræðinganna yfir þær matvörur sem hollastar eru fyrir karla, rétt matreiddar
vel að merkja. Í ostrum er mikið af sinki sem nýtist líkamanum á margan hátt.
Kenndu barninu
þínu góðar
heilsuvenjur
S umum börnum finnst voðalega gott að borða og sækja mikið í kolvetnisríkan mat á meðan varla er hægt að koma bita ofan í önnur. Of þung börn
eiga frekar á hættu að lenda í einelti í skóla og eiga
erfiðara uppdráttar í félagslífi og tómstundum. Mín
reynsla er sú að börn borða oftast það sem fyrir þau
er sett, með misjafnlega góðum árangri þó. Ef ekkert
annað er í boði endar þetta oftast með því að þau narta
í „vonda“ fiskinn eða grænmetið sem sett er á diskinn
og smám saman hættir svo þetta tuð og þau borða fisk
og grænmeti með bestu lyst. Aðalatriðið er að gefast
ekki upp of fljótt, þetta gæti verið þolinmæðisvinna
og tekið einhvern tíma. Með því að hafa fjölbreytta
fæðu í boði, vera með grænmeti með mat og ávaxta-
snarl seinnipartinn ertu ekki aðeins að stuðla að góðri
heilsu hjá barninu þínu heldur ertu að leggja grunn að
góðri framtíð.
Hér koma nokkur góð ráð til að
viðhalda heilbrigði barnsins þíns:
matarins rétt eins og við og
litríkur og skemmtilegur matur
vekur alltaf hrifningu.
Settu barnið í hlutverk. Fáðu
það til að hjálpa til í eldhúsinu,
leggja á borð eða raða á
matarfötin. Með því fær barnið
á tilfinninguna að það eigi þátt
í að elda matinn og borðar
jafnvel frekar það sem er á
boðstólum.
Kenndu barninu að borða
með fullri vitund. Ef setið
er fyrir framan sjónvarp eða
tölvu og borðað er mun meiri
hætta á að borðað sé of mikið
eða lítið. Hugurinn er þá ekki
við matinn heldur eitthvað allt
annað. Þetta virkar alveg eins
hjá börnum; barnatíminn eða
tölvan er ekki góður félags-
skapur á matmálstíma. Með því
að venja börn við þennan ósið
geta skapast vandamál seinna
meir. Það er því mikilvægt að
sitja við matarborðið á meðan
borðað er og þess þá heldur
þegar kemur að því að byrja
daginn. Vaknið aðeins fyrr og
eigið saman góða stund áður
en haldið er af stað út í daginn.
Leyfðu barninu að ráða.
Þegar farið er í búðina,
leyfðu þá barninu að velja sér
ávexti sem það langar að fá
eða smakka. Skerið ávextina
niður í sameiningu, setjið í
skemmtilega og litríka skál
eða raðið á disk, notið jafnvel
flottar servíettur og eigið
saman notalega stund. Það
þarf ekki alltaf að vera nammi
á boðstólum þegar fjölskyldan
hefur kósí-kvöld; oft getur líka
verið sniðugt að poppa og hafa
djús svona spari.
Eins er gott, á meðan allir
eru að venjast breyttum lífs-
stíl, að barnið hafi ekki val um
hvort það ætli að borða ávexti
eða ekki. Bjóðið því heldur tvo
kosti, til dæmis að velja á milli
banana og eplis.