Fréttatíminn - 08.10.2010, Side 60
S ambíóin byrjuðu í fyrra að bjóða upp á beinar óperu-útsendingar frá Metropo-
litan-óperunni í New York. Þessar
sýningar hafa mælst vel fyrir hjá ís-
lenskum óperuunnendum og í ljósi
vaxandi vinsælda hefur verið ákveð-
ið að halda þessum sýningum áfram
í ár. Fyrsta ópera þessa tímabils er
Rínargullið eftir Wagner sem verður
sýnd beint á laugardaginn.
„Við sáum þetta fyrst í Eistlandi
þegar við vorum að skoða miða-
sölukerfi sem við erum að taka
í notkun,“ segir Alfreð Árnason
hjá Sambíóunum. „Við ákváðum
að prufa þetta hérna heima og
sýningarnar slógu í gegn í fyrra.“
Alfreð segir að áhorfendahópurinn
á óperusýningunum sé nokkuð
ólíkur þeim hópi sem helst sækir
bíómyndir og að meirihluti óperu-
gesta í bíó sé 55 ára og eldri.
„Sýningarnar hafa fengið mjög
góðar viðtökur og fólk er ánægt
með þær enda er svo mikið
um góðar nærmyndir í þessum
útsendingum að fólkið í salnum
kemst í raun nær flytjendunum á
sviðinu en þeir sem sitja aftarlega í
sal Metropolitan í New York. Fólk
upplifir því tjáningu söngvaranna
mjög vel, sem er ekki síst mikilvægt
þegar óperur eru annars vegar.
Þessum sýningum er varpað beint í
um þúsund kvikmyndahús um allan
heim og á Íslandi getur fólk þannig
komist í Metropolitan-óperuna fyrir
2.500 krónur sem þykir vel sloppið
miðað við hversu dýrt er í fremstu
sætin í Metropolitan.“
Stefán Baldursson, óperustjóri
Íslensku óperunnar, tekur undir
með Alfreð og segir útsendingarnar
mjög vandaðar og að þær séu hin
besta skemmtun. „Þarna eru
notaðar fjölmargar myndavélar frá
hinum ýmsu sjónarhornum þannig
að maður er í raun meira inni í
atburðarásinni en ef maður sæti
aftarlega í óperuhúsinu. Það sem
gefur þessum beinu útsendingum
síðan aukið gildi er að í hléunum,
sem oft eru tvö, eru viðtöl við
söngvara og leikstjóra og maður fær
að sjá hvað gerist á bak við tjöldin.“
Stefán segist síður en svo líta
á þessar beinu útsendingar sem
samkeppni við Íslensku óperuna.
„Alls ekki. Góðar óperusýningar
auka bara áhuga fólks á óperum og
gera fólk spenntara fyrir því að sjá
óperur hjá okkur á sviði.”
Þegar Metropolitan frum-
sýnir Rínargullið í Sambíóunum
á laugardag hittist þannig á að
Íslenska óperan frumsýnir Rigoletto
eftir Verdi þannig að Stefán verður
að sjálfsögðu á sínum heimavelli
og kemst ekki í bíó. „Þetta kvöld er
óhætt að segja að ég verði virkilega
á staðnum. Rigoletto er ein allra
vinsælasta ópera Verdis og það
hefur verið virkilega gaman að
undirbúa þessa sýningu. Þetta er
allt að smella saman. Við erum með
frábæra söngvara í aðalhlutverkum
þar sem mest mæðir á þeim Ólafi
Kjartani Sigurðarsyni, Jóhanni Frið-
geiri Valdimarssyni og Þóru Einars-
dóttur í hlutverkum Rigoletto,
hertogans og Gildu.“
Þeir sem hafa tryggt sér miða á
frumsýningu Rigoletto og komast
ekki á Rínargullið þurfa ekki að
örvænta því að sýning Metropolitan
verður endursýnd í bíó á miðviku-
daginn.
Þá munu Sambíóin einnig bjóða
upp á beinar útsendingar frá The
National Theatre í London en fyrsta
sýningin þaðan, A Disappearing
Number, verður send út fimmtu-
daginn 14. október. Í kjölfarið fylgja
svo Hamlet, FELA!, Lér konungur,
Frankenstein og Kirsuberjagarður-
inn.
48 bíó Helgin 8.-10. október 2010
Þórarinn
Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Bíó
bíódómur: brim
AukAhlutir
Kletthálsi 15
110 Reykjavík
Sími 577 1717
Þú færð aukahlutina
hjá okkur
opið á laugardögum frá kl. 10.00-14.00
Lausnir fyrir hjóLið þitt
Vesturportshópurinn telur óvenju-
marga urrandi talenta og í þessari
kvikmyndaaðlögun verðlaunaleik-
ritsins Brim sýnir leikhópurinn allur
sínar bestu hliðar undir styrkri leik-
stjórn Árna Ólafs Ásgeirssonar.
Hér tekst áhöfn á litlum ryðdalli
á við lífið um borð eftir að einn úr
hópnum styttir sér aldur í síðasta túr
á undan. Þetta eru sveittir karlpungar,
ólíkir innbyrðis en allir eitthvað dæld-
aðir á sálinni. Og ekki skánar mórall-
inn um borð þegar stúlka tekur pláss
hins látna. Yfir þessum fiskitúr svífur
einhver annarleiki og feigð þannig að
ósköp venjulegur túr breytist smám
saman í siglingu glataðra sálna.
Handritið er til fyrirmyndar, fall-
egt, fyndið og harmrænt, rétt eins
og myndin sjálf sem er blaut, köld,
brimsölt og undurfögur í grámanum.
Þórarinn Þórarinsson
Aðrir miðlar: DV:
Fréttablaðið:
Morgunblaðið:
Sigling þjakaðra sála
Ólafur Kjartan segir það hreint
út sagt frábært að fá tækifæri til
að koma aftur á sinn heimavöll
í Ingólfsstrætinu og syngja eitt
af draumahlutverkunum. „Æf-
ingatíminn er búinn að vera stór-
skemmtilegur og ég held að við
séum með hörkusjó í höndunum.“
Ólafur Kjartan hefur meira en nóg
að gera í Þýskalandi og er þétt-
bókaður. Spurður segir hann að
líf óperusöngvarans í útlöndum sé
ekki ósvipað lífi íslensku atvinnu-
mannanna í knattspyrnu sem starfi
í útlöndum en komi heim af og taki
einn og einn landsleik. „Þetta er
nákvæmlega eins fyrir utan launin
og bílana. Miðað við nýjustu fréttir
er Aron á mun dýrari bíl en ég og
Volvo-inn minn fer ekkert í spyrnu
við Audi-inn hans. Fótboltastrák-
arnir eru með miklu hærri laun
en við söngvararnir skorum hins
vegar miklu fleiri mörk.“
Ólafur Kjartan segir að hann hefði
vel getað haft gott af því að sjá
Rínargullið í bíó hjá Samfeðgum
vegna þess að hann muni syngja í
því í Þýskalandi næsta sumar. „En
það gengur ekki þar sem ég verð á
sviðinu í Íslensku óperunni. Ég hef
ekki enn skellt mér í óperu í bíó en
það er aldrei að vita. Þetta er mjög
skemmtilegt.“
Ólafur Kjartan Sigurðarson
syngur aðalhlutverkið í
Rigoletto
Söngvarar
skora fleiri mörk
ópera WagnerS í beinni útSendingu
Bestu sæti
Metro politan
í Reykjavík
Vinsælar útsendinga Sambíóanna á óperum Metropolitan
hefjast á ný á laugardaginn. Á sama tíma frumsýnir Íslenska
óperan Rigoletto eftir Verdi.
fólkið í salnum kemst í raun nær
flytjendunum á sviðinu en þeir sem
sitja aftarlega í sal Metropolitan
Gísli Örn Garðarsson og Ingvar E. Sigurðsson gera
persónum sínum góð skil í Brimi og þá sérstaklega
Gísli sem fær úr miklu að moða.
frumSíningar
Græna ljósið frumsýnir tvær áhuga-
verðar myndir í dag, Enter the Void
eftir Gaspar Noé og Greenberg
með Ben Stiller í titilhlutverkinu.
Enter the Void er sýnd í Bíó
Paradís við Hverfisgötuna. Myndin
vakti gríðarlega athygli á kvik-
myndahátíðinni í Cannes í vor enda
varla við öðru að búast frá Noé
sem hreyfði hressilega við fólki
fyrir nokkrum árum með hinni
hrottafengnu mynd Irréversible.
Hér segir Noé sögu af ungum
dópsala sem er myrtur í Japan en
snýr heim sem draugur til að gæta
systur sinnar.
Svarta kómedían Greenberg er
sýnd í Háskólabíói.
Græna ljósið með tvennu
Ben Stiller leikur New York-búa sem flytur til Los
Angeles til að reyna að fá botn í líf sitt.