Fréttatíminn - 08.10.2010, Side 70
58 dægurmál Helgin 8.-10. október 2010
- miðbæ Hafnarfjarðar
VSK-LAUSIR DAGAR
DAGANA 7. - 9. OKTÓBER
MARKAÐUR
FJARÐAR
- hágæða tískuverslun- tískuverslun fyrir konur
Gjafabúðin
GLUGGINN
S K Ó H Ö L L I N
- skór á alla fjölskylduna
Firði
Handverk og hönnun- veitingastaður með einstakt útsýni - hárgreiðslustofa fyrir alla
Í samstarf við Dahl-Sørensen & Partners A/S í Danmörku veitum við viðskiptavinum
okkar víðtæka þjónustu við öflun fjárfesta og aðra M&A þjónustu á norðurlöndunum.
Investis fyrirtækjaráögjöf • Lágmúla 7 • www.investis.is
FYRIRTÆKJAEIGENDUR
Erum með fjárfesta sem vilja taka þátt í yfirtökum,
endurfjármögnun og sameiningum fyrirtækja.
Frekari upplýsingar á skrifstofu okkar
Kynlífsráðgjafinn Sigríður Dögg Arnardóttir gengur í það heilaga á laugadaginn.
Hún stefnir að því að játast sín-
um heittelskaða í Dómkirkjunni
í Reykjavík en hefur áhyggjur af
mótmælum og hefur því bókað aðra
kirkju til vara.
Brúðkaupsdagurinn er ein
stærsta stund lífsins í hugum þeirra
sem kjósa að innsigla ást sína með
hjónabandi og flestir vilja fá að eiga
þann dag fyrir sjálfa sig og sína nán-
ustu. Slíkt gæti hins vegar reynst
hægara sagt en gert fyrir þá sem
hyggjast játa ást sína fyrir augliti
Guðs og manna í Dómkirkjunni
þessa dagana þar sem kirkjan
stendur á víglínu mótmælenda og
stjórnvalda við Austurvöll.
Kynlífsfræðingurinn Sigríður
Dögg Auðunsdóttir ætlar sér að
giftast í Dómkirkjunni á laugar-
daginn en tekur enga áhættu og þar
sem laugardagar voru fastir mót-
mæladagar í Búsáhaldabyltingunni
hefur hún bókað aðra kirkju til vara,
fari svo að allt fari í bál og brand á
Austurvelli áður en stóra stundin
rennur upp.
„ Mér finnst „Vanhæf ríkisstjórn!“
ekkert ofboðslega fallegur undir-
leikur þegar ég ætla að fara að segja
„já“ við altarið. Það er ekki mikil
rómantík í því þannig að auðvitað
hefur maður áhyggjur. Það er held-
ur ekki bara það að mótmælendur
verði kannski með læti rétt á með-
an á athöfninni stendur heldur væri
það líka svolítið skrýtið að ganga
út úr kirkjunni og þá mætti manni
bara óeirðalögreglan grá fyrir járn-
um með hjálma og kylfur á lofti.“
Sigga Dögg afþakkar slíkan heið-
ursvörð við brúðkaup sitt og hefur
þar fyrir utan lítinn áhuga á því að
eiga á hættu að fá yfir sig egg í stað
hrísgrjóna eins og löngum hefur
tíðkast að kasta yfir brúðhjón þeg-
ar þau stíga út úr kirkju. „Þannig
að í vikunni ákvað ég að bóka aðra
kirkju til vara og ef mér líst ekki á
blikuna stefni ég brúðkaupsgest-
um annað. Mér var sýndur fullur
skilningur í hinni kirkjunni og
þeim fannst ég bara mjög forsjál að
gera þetta. Vill maður ekki að þetta
gangi sem best fyrir sig?“
Sigga Dögg segir unnusta sinn
miklu rólegri gagnvart þessu.
„Hann heldur að þetta reddist bara.
Vinkona mín er búin að bjóðast til
að taka það að sér að fara út með
gjallarhorn og spjöld og biðja fólk
vinsamlega að sýna okkur tillits-
semi, hafa hljóð rétt á meðan og
ekki kasta neinu í okkur. Við séum
bara venjulegt fólk sem vilji fá að
gifta sig í friði og ró. Þannig að kær-
astinn er ósköp rólegur og segir að
við munum enda í Dómkirkjunni.“
–þþ
„Við fengum nú töluverða reynslu af þessu í mótmæl-
unum 2008 og í janúar 2009,“ segir Hjálmar Jónsson
dómkirkjuprestur. „En þá sýndi fólk, sérstaklega við
jarðarfarir, mikla og aðdáunarverða tillitssemi og auð-
vitað væntir maður þess. Við þurfum að halda áfram með
lífið þótt hlutirnir gangi svona.“
Hjálmar bætir við að það hafi verið einsdæmi að athöfn við
kirkjuna hafi verið trufluð eins og gerðist við þingsetninguna í
síðustu viku. „Annars hefur það aldrei verið gert og ég á ekki
von á því að það muni gerast nema þá óvart. Það getur alltaf
heyrst eitthvað inn í kirkjuna og
gerir það iðulega. Við heyrum í
flugvélum, bílum og fólki inn í
kirkjuna. Dómkirkjan stendur
við fjórar götur þannig að hún
er alveg í þjóðbraut og kirkjan
vill gjarna vera á vettvangi með
fólkinu í landinu. Hún er fyrir fólkið í
landinu og þá er ekkert óeðlilegt að hún
verði fyrir umhverfisáhrifum.“
Sigríður Dögg ArnArDóttir: Óttast mÓtmæli við DÓmKirKjuna
tónliSt: moniKa abenDroth gefur út sÓlÓplötu
umhverfiSáhrif eðlileg
Vill ekki fá egg yfir
sig í stað hrísgrjóna
Sigríður Dögg er meistaranemi í kynfræði við Curtin-háskóla í Ástralíu og er nýbúin að skila meistararitgerð sinni um ófrjósemi karla. Ljósmynd/ Hari
Gibson óttast vítisvist
Oksana Grigorieva, barnsmóðir leikarans
Mels Gibson, hefur nú opnað sig við tímaritið
People um þá skelfingu sem hún upplifði þegar
leikarinn veittist
snarbrjálaður að
henni á heimili
þeirra í ársbyrjun.
Hún segir að Gib-
son hafi verið gjarn
á að taka æðisköst
í afbrýði og miklu
þunglyndi og að
hann hafi oft hótað
að stytta sér aldur.
„Hann væri löngu
búinn að drepa sig
ef hann væri ekki
kaþólskur. Hann
er hræddur við
helvíti.“
Þegar Gibson
gekk af göflunum
segir hún hann
hafa barið sig á
meðan hún var með
eins árs gamla dótt-
ur þeirra í fanginu.
„Ég hélt að hann myndi drepa mig og óttaðist um
líf mitt.“ Hún segist ekki hafa þorað að hringja á
lögregluna af ótta við að hann ynni henni frekara
mein. Þá segir Oksana að Gibson hafi sveiflað
skammbyssu froðufellandi og „talað við sjálfan
sig eins og geðsjúklingur“.
Gibson hyggst ekki tjá sig um viðtalið við
Oksönu.
Hörpuleikarinn Monika Abendroth hefur gefið
út sína fyrstu sólóplötu sem nefnist Óður til jarð-
ar. Á plötunni leikur Monika sérvalin lög, meðal
annars frá endurreisnartímanum, írsk þjóðlög
og þekkt tónverk eftir ekki minni menn en þá
Satie og Vivaldi. Íslenskur vindur strýkur svo
hörpustrengina inn á milli laga. Monika á að baki
langan feril sem hörpuleikari en hún hóf að spila
með Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 1976.
Páll Óskar Hjálmtýsson stjórnaði upptökum
en hann og Monika eiga að baki langt og farsælt
samstarf. Hann segir tóna Moniku á plötunni
vera hreinan unað og hægt sé að njóta tónlistar-
innar við öll tækifæri. Hjörleifur Valsson spilar
á fiðlu með Moniku í „Vetrinum“ eftir Vivaldi.
Monika leikur hamingjutóna, í tilefni útgáf-
unnar, á kaffihúsinu Marengs í Listasafni Íslands
við Fríkirkjuveg á sunnudaginn, milli klukkan 11
og 17. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Mel og Oksana
á meðan allt lék
í lyndi, en þeir
sæludagar eru
langt að baki.
Jörðin hyllt með hörputónum
Satie, Vivaldi og
íslenskur vindur