Læknablaðið - 15.09.1983, Síða 56
226
LÆKNABLAÐIÐ 69,226-234,1983
Kristján Sigurðsson
KRABBAMEIN í EGGJASTOKKUM Greining og meðferð með tilliti til forspárþátta
INNGANGUR
Krabbamein í eggjastokkum eru algengust
illkynja æxla í kynfærum kvenna og hefur
nýgengi sjúkdómsins farið vaxandi, bæði hér á
landi (mynd 1) og í nágrannalöndum okkar (1).
Nú (1976-80) er petta fimmta algengasta
krabbameinið, svarar til 6 % af öllum krabba-
meinum í íslenskum konum, og greinast hér nú
árlega 18-20 tilfelli. Þessi æxli greinast í konum
á öllum aldri, aðeins 10-15 % þeirra í konum
yngri en 45 ára, en helmingur sjúklinganna er
60 ára og eldri (mynd 2). Um 15 % allra æxla í
eggjastokkum eru talin illkynja. Hlutfallslegur
fjöldi þeirra eykst þó með hækkandi aldri og
eftir tíðahvörf eru taldar helmingslíkur á að
æxli, er greinast í eggjastokkum geti verið ill-
kynja (2).
Krabbamein í eggjastokkum er samheiti
allra illkynja æxla í eggjastokkum. Vefjagerð
þessara æxla er margbreytileg, en 90 %
þeirra eru epithelial æxli (tafla I), sem komin
eru frá yfirborðsþekju eggjastokkanna (3).
Þessi æxli eru þau illkynja æxli í kynfærum,
sem draga flestar konur til dauða. Aðeins 30-
35 % sjúklinganna lifa í fimm ár eða lengur frá
greiningu sjúkdómsins (4). Aðalástæðan fyrir
þessum lélegu batahorfum er hversu erfiður
sjúkdómurinn er í greiningu. Yfir 60 % sjúk-
linga eru með langt gengið krabbamein við
greiningu (stig III og IV) (tafla II), þar sem
helmingur sjúklinga deyr innan árs og fimm
ára lifun (survival) er 2-10% (5). Meðferð
sjúkdómsins er mjög mismunandi og hafa
læknar ekki verið á eitt sáttir hvað snertir val
á heppilegustu meðferð á hinum ýmsu stigum
sjúkdómsins.
Grein þessi fjallar um vandamál við grein-
ingu, meðferð, svo og gildi hinna mörgu for-
spárþátta sjúkdómsins. Aðallega verður stuðst
við niðurstöður rannsókna frá Lundi um með-
ferð og forspárþætti illkynja epithelial æxla,
sem meðal annars hafa leitt til tillagna um
Kvennadeild Landspítalans. Barst ritstjórn 20/05/1983.
Samþykkt og sent í prentsmiðju 24/05/1983.
forspárflokkun (prognostic classification) sjúk-
dómsins.
EINKENNI OG GREINING
Batahorfur eru mjög háðar því á hvaða stigi
sjúkdómurinn greinist (mynd 3) (5). Greining
tefst oft, bæði vegna tafar af völdum sjúklings
og læknis. Rannsókn, sem gerð var í Umeá (6),
sýndi fram á að þriðjungur sjúklinga hafði við
fyrstu komu til læknis haft óþægindi í meira en
Number of
cases per 105
1956 1961 1966 1971 1976
-60 -65 -70 -75 -80
Fig. 1. Incidence (per 100.000) of ovarían cancer in
Iceland 1956-80. (The Icelandic Cancer Registry.)
Number
of cases
Fig. 2. Age distribution of ovarian cancer in Iceland
1956-80. (The Icelandic Cancer Registry.)