Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1988, Blaðsíða 5

Læknablaðið - 15.10.1988, Blaðsíða 5
LÆKNABLAÐIÐ 1988; 74; 303-8 303 Davíð Gíslason, Suzanne Gravesen, Tryggvi Ásmundsson, Vigfús Magnússon BRÁÐAOFNÆMI í TVEIMUR LANDBÚNAÐAR- HÉRUÐUM Á ÍSLANDI I. Tíðni bráðaofnæmis og helstu ofnæmisvaldar INNGANGUR »Heysótt nefnist veikleiki, sem tilfellur þeim, er gefa illa verkað hey, og er hann alþekktur út á íslandi.« Þannig lýsir Sveinn Pálsson, læknir, sambandi heysóttar við illa verkað hey (1). Sveinn skrifaði þá grein sem hér er vitnað til 1790 og frá þeim tíma hefur ýmislegt verið skrifað um heysjúkdóma á íslandi, einkum þó á síðustu árum (2-12). Heysóttin hefur sennilega lengi verið vel þekktur sjúkdómur hér á landi, bæði í mönnum og hestum. Á síðari árum hefur gætt nafnaruglings þegar fjallað er um heysjúkdóma. Orðið heymæði er oft notað í sömu merkingu og orðið heysótt var notað áður fyrr. Á þetta var bent fyrir nokkrum árum og lagt til að orðið heysótt skuli notað til að lýsa þeirri tegund sjúkdómsins, sem sótthiti fylgir, en að orðið heymæði skuli notað sem safnheiti um þá heysjúkdóma, sem orsaka mæði (7). Þótt athygli lækna hafi fyrst og fremst beinst að heysóttinni og annarri mæði, hafa þó önnur óþægindi af heyryki varla farið fram hjá þeim, sem við gegningar vinna. Nefstífla, nefrennsli og kláði í augum eru einkenni, sem algengt er að setja í sambandi við heyryk. Þeir sem fást við lækningar á lungnasjúkdómum hér á landi hafa einnig veitt athygli hárri tíðni lungnaþembu meðal bænda. Reykingar eru lang algengasta orsök lungnaþembu. Könnun á lungnaþembusjúklingum, sem dvalist hafa á Vífilsstaðaspítala, sýndi þó að meðal bænda með lungnaþembu eru færri reykingamenn en meðal annarra lungnaþembusjúklinga (10). Þetta bendir til þess að leita megi annarra orsaka en reykinga fyrir lungnaþembu margra bænda og hefur grunur beinst að heyrykinu. Á það hefur verið bent, að flokka mætti Frá Vífilsstaðaspítala, Allergologisk Laboratorium, Köbenhavn og Heilsugæslustöð Seltjarnarness. Barst 22/01/1988. Samþykkt 10/08/1988. heysjúkdóma í fjóra flokka eftir eðli þeirra og orsökum (6). Þeir eru; 1) Sjúkdómar vegna bráðaofnæmis. 2) Heysótt. 3) Sjúkdómar vegna ertandi áhrifa af heyryki. 4) Langvinn berkjubólga og lungnaþemba. Ekki er þó vitað með vissu hvernig sambandi lungnaþembu og heyryks er háttað. Bráðaofnæmi fyrir einstökum ofnæmisvöldum í heyryki var lítið sem ekkert kannað fyrr en undir lok áttunda áratugarins. Árið 1979 voru birtar niðurstöður úr rannsóknum á bráðaofnæmi hjá bændafjölskyldum í Orkneyjum, sem ótvírætt gáfu til kynna að heymaurar væru helsta orsök fyrir bráðaofnæmi af heyryki (13). Árið 1980 fór Búnaðarfélag íslands þess á leit við landlækni, að heysjúkdómar yrðu kannaðir hér á landi. í framhaldi af því myndaði landlæknir starfshóp, sem unnið hefur að þessum málum. Eitt verkefna starfshópsins var að kanna bráðaofnæmi fyrir heyryki. Þegar hann tók til starfa var lítil sem engin þekking á því hvaða þættir í heyrykinu yllu bráðaofnæmi. Því var byrjað á því að kanna heysýni með tilliti til frjókorna, myglusveppa, hitaelskra geislasýkla og ofnæmisvaka frá músum (15). Thorkil Hallas kannaði heymaura í íslenskum heysýnum (16-18). Að þessum rannsóknum loknum voru ofnæmislausnir, sem taldar voru hafa mesta þýðingu í sambandi við ofnæmi fyrir heyryki, prófaðar á sjúklingum með einkenni um bráðaofnæmi fyrir heyryki (9). Í framhaldi af því var sú könnun gerð sem hér er lýst. Tilgangur hennar var að kanna tíðni (prevalence) bráðaofnæmis í tveimur landbúnaðarhéruðum með ólíkt verðurfar og heyskaparhætti. Einnig var athuguð innbyrðis þýðing þeirra ofnæmisvaka, sem notaðir voru við könnunina. AÐFERÐ OG EFNIVIÐUR Bráðaofnæmi er sjúkdómur, sem einkum kemur fram á unglingsárum. Um 99% þeirra sem fá
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.