Læknablaðið - 15.10.1988, Blaðsíða 50
340
LÆKNABLAÐIÐ
jafnframt, að sá búnaður sé óspart notaður í
auglýsingaskyni til að laða að viðskiptavini.
Kunnugt er, að fari
»tækjaauglýsingakapphlaup< af stað á annað
borð, fer það tíðast út í öfgar, sem oftar en ekki
leiðir til ófarnaðar. Það er augljóslega mjög
bagalegt, ef slíkt kapphlaup verður til að blekkja
fólk og skapa því oftrú á ágæti tiltekinna tækja.
Meira virði fyrir líkams- og heilsuræktarstöðvar
en glæstur tækjabúnaður er traust þjónusta,
byggð á þekkingu og staðgóðri reynslu.
Annað
Mikilvægt er, að almenningi sé kunnugt, að
þjónusta líkams- og heilsuræktarstöðva er fyrst
og fremst ætluð einkennnalausu (frísku) fólki,
þ.e. fólki, sem ekki hefur sýnileg einkenni
sjúkdóma. Einnig er mikilvægt, að þeir, sem hafa
einkenni, en óska engu síður að sækja líkams- og
heilsuræktarstöðvar, ráðfæri sig við lækni sinn
og fræðist um áhættuþætti og áreynslumörk. Hið
sama gildir raunar um allt kyrrsetufólk. Til að
forðast óhöpp væri æskilegt, að vissir hópar færu
ávallt í áreynslupróf hjá sérfræðingi, áður en
líkamsþjálfun er hafin. Á það einkum við um þá,
sem hafa einkenni um hjartasjúkdóm eða
einkenni, sem vekja grun um slíkan sjúkdóm.
Einnig alla þá, sem komnir eru yfir miðjan aldur
og þá, sem komnir eru yfir fertugt og hafa
áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma eins og
reykingar, hækkun blóðfitu og háþrýsting.
Þá er og nauðsynlegt, að fólk, sem hefur einkenni
um sjúkdóma og sækir þjónustu líkams- og
heilsuræktarstöðva, fái þá þjónustu frá
sjúkraþjálfurum. Á seinni árum hefur færst í
vöxt, að íþróttakennarar og íþróttafræðingar
sérmennta sig á ýmsum sviðum, m.a. þeim, sem
lúta að heilsufarslegum vandamálum. Komi þeir
til með að sinna fólki með líkleg heilsuvandamál í
vaxandi mæli í framtiðinni, er nauðsynlegt, að
heilbrigðisyfirvöld geri hæfniskröfur til þeirra og
setji þeim starfsreglur.
Hvað sem líður rekstri og starfsemi líkams- og
heilsuræktarstöðva og ofangreindum
athugasemdum, vill stjórn L.í. í lokin vísa á ný til
íslenskrar heilbrigðisáætlunar, markmiðs 10, sem
tengist lið 4.5 í áætluninni og vitnað var til í
upphafi þessarar umsagnar:
»Það á að gefa þjóðfélagsþegnum fleiri og
meiri tækifæri til heilbrigðrar hreyfingar en nú
er. Efla þarf aðstöðu almennings til
íþróttaiðkana innan dyra og byggja í því skyni
almenningsíþróttahús eða samnýta betur en nú
er tiltæk íþróttamannvirki. Einnig þarf að gefa
gaum að því, að fólk fái tækifæri til að hreyfa
sig utan dyra og setja upp sérstakar gang- og
hjólreiðabrautir í þéttbýli. Skipulagsmálum
skal hagað þannig, að fólk, einkum það eldra
og þeir, sem eru fatlaðir, geti notið
umhverfisins með hreyfingu og þjálfun utan
dyra.«
í þessu markmiði felast önnur sjónarmið en koma
fram i þjónustu veittri af líkams- og
heilsuræktarstöðvum. í því er lögð áhersla á aðra
þætti: eflingu íþróttaiðkunar almennings,
greiðari aðgang að almennningsíþróttahúsum og
öðrum íþróttamannvirkjum, góðum kosti á
hreyfingu utan dyra.
Stjórn Læknafélags íslands tekur að öllu leyti
undir sjónarmið markmiðs 10 íslenskrar
heilbrigðisáætlunar og telur, að útivist og hæfileg
hreyfing utan dyra sé til lengdar heppilegasta,
gagnvirkasta og ódýrasta form Iíkams- og
heilsuræktar fyrir íslendinga.
Framangreind umsögn er m.a. byggð á áliti
Félags íslenskra heimilislækna,
Svæfingalæknafélags íslands, Félags íslenskra
orku- og endurhæfingarlækna og
Hjartasjúkdómafélags íslenskra lækna.«
EFTIRLIT MEÐ REIKNINGUM LÆKNA
Allt frá því snemma árs 1987 hafa ýmsar væringar
verið uppi af hálfu samningsaðila
læknafélaganna um eftirlit með reikningum
lækna. Eftir því sem leið á árið og kom fram á
þetta ár mögnuðust deiluatriðin fremur en hitt.
Verða þau ekki rakin hér en vísað í greinargerð
stjórnar L.í. um þessi mál í 3. tbl. Fréttabréfs
lækna 1988 (og leiðréttingu í 4. tbl. þar sem ein
setning hafði fallið niður og merkingin við það
brenglast nokkuð.) Eftir birtingu
greinargerðarinnar óskaði ríkisendurskoðandi
birtingar á athugasemdum við þann lið
greinargerðarinnar sem bar yfirskriftina «þáttur
ríkisendurskoðanda». Sjálfsagt þótti að verða við
þessari ósk. Ekki taldi stjórn L.í. ástæðu til að
teygja frekar lopann á vettvangi Fréttabréfsins í
tilefni athugasemdarinnar þar eð ljóst var í þessu
máli sem mörgum öðrum að atriði má vega og
meta á ýmsan hátt eftir því frá hvaða sjónarmiði
þau eru skoðuð.
Eftir að leitast var við af hálfu beggja
samningsaðila að beita þeirri framkvæmd við
eftirlitið sem báðir geta við unað hefur
framkvæmd þess gengið betur og er vonast til.að
svo verði áfram.