Læknablaðið - 15.10.1988, Blaðsíða 56
346
LÆKNABLAÐIÐ
SÉRFRÆÐINEFND LÆKNADEILDAR
Nú eru liðin tvö ár síðan nefndin tók til starfa
samkvæmt reglugerð frá 1. júlí 1986. Á þessu
tímabili hefur hún afgreitt alls 93 sérfræðileyfi
eða tæplega 1 leyfi á viku hverri að meðaltali. Þá
ber að hafa í huga að nokkrir læknar hafa aflað
sér leyfis bæði í aðalfaginu og undirgrein og eru
því tvítaldir. Annars er skipting eftir sérgreinum
þessi: Heimilislækningar 12, almennar
lyflækningar 12, bæklunarskurðlækningar 6,
almennar skurðlækningar 6, barnalækningar 6,
augnlækningar 5, svæfingarlæknisfræði 5,
gigtlækningar 5, geislagreining 4, kvenlækningar
4, hjartalækningar 4 og færri í öðrum greinum.
Meðal verkefna sérfræðinefndar er að fylgjast
með þróun framhaldsnáms og reglna um
sérfræðiviðurkenningu í nágrannalöndunum.
Undanfarið ár hafa verið miklar umræður í
Svíþjóð um nýjar tillögur að gerbreyttu
sérfræðinámi þar í landi, sem fyrirhugað er að
taki gildi árið 1990. í þeim er m.a. gert ráð fyrir
fastráðningum í námsstöður og jafnvel að læknir
geti haldið stöðu sinni ótiltekinn tíma eftir að
sérnámi lýkur (þó ekki á háskólaspítala). Verði
þetta fyrirkomulag ofan á er hætt við að erfitt geti
reynst fyrir aðra Norðurlandabúa að komast í
sérnám til Svíþjóðar og hefur það valdið
töluverðum áhyggjum í þeirra röðum. Eins og
fram kom í ársskýrslunni fyrir starfsárið 1986-87
er starfandi nefnd, Nordisk Kommitté för Lkares
Vidareutbildning (NKLV), á vegum landlækna
(heilbrigðisyfirvalda) Norðurlandanna sem
læknafélögin eiga aukaaðild að og hafa
fyrirhugaðar breytingar í Svíþjóð verið mikið
ræddar í nefndinni. Fulltrúi L.í. i sérfræðinefnd
læknadeildar situr einnig í NKLV fyrir L.í. og
hefur því getað fylgst náið með framvindu
málsins og komið þar á framfæri fyrirspurnum og
athugasemdum sem þýðingu kynnu að hafa fyrir
íslenska lækna sem hyggja á sérfræðinám í
Svíþjóð á næstu árum.
Auk þessa máls hefur aðalverkefni NKLV á liðnu
ári verið að ganga frá gerð skrár um flokkun
sérgreina (»fortolknings-lista«) á Norðurlöndum i
því skyni að fá lausn á ýmsum ágreinings- og
vafamálum, sem af og til skjóta upp kollinum í
sambandi við gagnkvæma veitingu sérfræðileyfa,
samkvæmt norræna vinnumarkaðssamningnum.
Flokkunin byggist á samkomulagi sem norrænu
heilbrigðismálaráðherrarnir undirrituðu á fundi
sínum 21. des. 1987 og er fyrst og fremst hugsað
sem heimild og gert ráð fyrir að túlkað sé í
»norrænum anda«. Er hér komið nauðsynlegt
stuðningsplagg þeim aðilum sem annast veitingu
sérfræðileyfa á Norðurlöndum.
NEFND TIL AÐ META STARFSEMI
ÍSLENSKRA SJÚKRAHÚSA
Nefndin hefur nú að mestu safnað gögnum frá
viðkomandi sjúkrahúsum. Má vænta þess að
nefndin ljúki á næstunni mati á sjúkrahúsdeilda.
ÚTGÁFUMÁL
Litlar fréttir er að segja af útgáfumálum
Læknablaðsins og Fréttabréfs lækna aðrar en að
þau ganga sinn vanagang. Minnkandi
auglýsingatekjur ógna nú nokkuð fjárhag
Læknablaðsins en útgáfa Fréttabréfsins ber sig.
Verður á næstunni unnið að því að afla
Læknablaðinu meiri auglýsingatekna.
Útgáfustarfsemin á að geta borið sig með
hæfilegu áskriftargjaldi og auglýsingatekjum.
Á sameiginlegum fundi fulltrúa ritstjórna
læknablaða á Norðurlöndum sem haldinn var í
Danmörku í byrjun maí var samþykkt boð
Læknablaðsins um að halda næsta fund
hérlendis. Er hann ráðgerður á Akureyri í
september 1989 í tengslum við afmæli blaðsins.
Útgáfa íðorðasafnsins heldur enn áfram og er
nýlega komið út hefti með stafköflunum N og O.
Ráðgert er að ljúka útgáfunni fyrri hluta næsta
árs. Orðanefndin og starfsmaður hennar munu á
næstu mánuðum undirbúa útkomu síðustu
heftanna. Jafnframt þarf að huga að fjármögnun
nú á lokasprettinum og og taka ákvörðun um
frekari útgáfu.
Samhliða iðorðasafninu hefir hluti orðanefndar
unnið að Nomina Embryologica og Nomina
Histologica. Verður fljótlega hafist handa við að
fella þær skrár að Nomina Anatomica í samræmi
við nýju útgáfuna sem kennd er við Mexico.
HÓPTRYGGING LÆKNA
Nú eru 158 læknar aðilar að hóptryggingunni, þar
af 123 með alla þrjá þætti tryggingarinnar.
Nokkrum læknum hefur verið sagt upp aðild að
tryggingunni vegna vanskila. Bótafjárhæðir og
iðgjöld eru nú þessi frá 1. júlí 1988:
Bætur Ársiðgjald
Líftrygging .. 4.131.300 29.490
Örorkutrygging .. 4.590.400 24.980
Veikindatrygging
(9 mánaða biðtími).. 131.580*) 20.250
(1 mánaða biðtími).. .. 131.580*) 31.280
*) Mánuði.