Læknablaðið - 15.10.1988, Blaðsíða 29
LÆKNABLAÐIÐ
323
sýndar tölur, sem svara til þess, sem hefur komið
fram hér að framan. Á árunum milli
landskannana 1974 og 1981 verður aukning á
tíðni samskipta, sem kemur ennfremur vel fram í
töflu I. Samskiptatíðnin í Skagafirði er því sú,
sem búast mátti við miðað við tímasetningu
könnunarinnar. Vitjanir á þessum stöðum liggja
milli 4,7 og 7,9% samskipta, en voru í Búðardal
6,2%, Bolungarvík 6,9% og Hólmavík 7,4%
samskipta. Innlagnir á öllum stöðunum eru
svipaðar því, sem hefur komið fram í greininni,
en tölur eru þó allar lágar. Tilvísanafjöldi í
Reykjavík er gífurlegur. Rannsóknir í Reykjavík
og Skagafirði slá rannsóknargleði
samanburðarstaða þessarar greinar alveg við.
Gildi niðurstaðna frá þessum stöðum takmarkast
þó mjög af því hve stutt athugunin stendur,
árstíðasveiflum í samskiptum og jafnvel stopulli
læknisþjónustu, eins og á Djúpavogi. í
greinunum frá Reykjavik, Skagafirði og
landskönnuninni 1974 koma fram fyrstu
»samskiptaseðlarnir«, sem notaðir hafa verið hér
á landi.
UMRÆÐA
Við undirbúning greinarinnar rakst höfundur á
það hversu lítið hefur verið skrifað um
samskiptamynstur á heilsugæslustöðvum og
yfirleitt um störf heilsugæslu- og heimilislækna
hér á landi. Á undanförnum árum hefur þó verið
hafin víða um land tölvuvinnsla sjúkraskráa
Egilsstaðakerfisins (2). í þessari tölvuvinnslu er
fólgið tækifæri til að nálgast samskipti við stóran
hóp einstaklinga. Eftir því sem meiri upplýsingar
koma til með að birtast úr þessum tölvusöfnum,
því meira rúm skapast fyrir umræður og
samanburð manna (héraða) á milli. Ef vel er
haldið á spilum, getur þetta orðið sú lyftistöng,
sem heilsugæslu- og heimilislæknar þarfnast í
starfi sínu og geta þeir um leið orðið veitendur í
vísindalegri vinnu, en ekki bara þiggjendur. Við
íslendingar státum okkur af því, að ýmis
vísindavinna sé auðveldari hér á landi en annars
staðar af vegna smæðar þjóðarinnar. Hér er
tækifæri til enn meira, betra og nákvæmara
starfs.
En tölvuunnin samskipti á heilsugæslustöðvum
verða einnig að nýtast á fleiri vegu, þau verða að
gera gagn í daglegu starfi. í mastersritgerð sinni
(15) vitnar Gísli Auðunsson í Tulloch, sem setti
fram leiðbeiningar um notkun tölvu í
forvarnarstarfi. Tulloch segir: »Gildi tölvu í
forvarnarstarfi liggur í möguleika hennar á að
geyma miklar upplýsingar, veita greiðan aðgang
að upplýsingunum, greina þær i sundur og kalla
þær fljótt fram. Þetta gefur færi á að skoða og
leita í íbúahópnum, til að finna áhættusjúklinga,
svo að athygli sé beint að þörfum þeirra.
Tölvur geta:
1. Flokkað hvaða hóp sjúklinga sem er eftir kyni
og aldri.
2. Sett saman lista, sem inniheldur áhættuhópa.
Sjúklingar haldnir langvinnum sjúkdómum,
fatlaðir o.s.frv. í stafrófsröð eða eftir
sjúkdómum eða fötlun.
3. Þar með skapað leið til að skipuleggja leit og
eftirlit hjá áhættuhópum.
4. Kallað fram upplýsingar til að skipuleggja
móttöku á stofu.
5. Fundið sjúklinga, sem ekki hafa komið í
endurmat.
6. Haft óbeint gagn í forvarnarstarfi með því að
örva endurskoðun, rannsóknir og kennslu.
7. Aðstoðað við að styrkja heilsugæsluhópinn
innbyrðis, með því að koma ofangreindum
hjálpartækjum við stjórnun á framfæri við
ritara og starfsfólk í móttöku, ásamt
upplýsingum um heilbrigðisaðstæður til
hjúkrunarfólks og utanaðkomandi
heilbrigisstarfsmanna.
8. Gefið tækifæri til að minna lækna og
hjúkrunarfólk á þegar kominn er timi á ýmsa
sérþjónustu, t.d. bólusetningar og
leghálsstrok.
9. Búið til vandalista eða flæðiblað, sem
aðstoðar lækni við að skipuleggja endurmat á
einstökum tilfellum eða sjúklingahópum.»
í núverandi tölvuforriti Egilsstaðakerfisins felst
ekki tækifæri til að nálgast öll markmið Tullochs.
Þessi markmið eru samt mikilvæg því
upplýsingasöfn heilsugæslustöðvanna verða að
nýtast í daglegu starfi til að viðhalda áhuga
manna á faglegum vinnubrögðum og til að
vönduð skráning verði í heiðri höfð.
SUMMARY
In this article a comparison is made of the contacts of
the population in five health districts with the respective
health centers (1-5). The article is based on two previous
articles from the Icelandic Medical Journal (Health
Districts of Hvammstangi 1965-1967 (3) and Hólmavík
1985-1986 (1)), a report from Bolungarvík Health
District for the year 1983 (4), a report on the
Egilsstaðir-medical record (Egilsstaðir Health District)
(2) and computer data from the Health District
Búðardalur 1985 (5).