Læknablaðið - 15.10.1988, Blaðsíða 33
LÆKNABLAÐIÐ
327
Tala bókfærðra mála á fundum var breytileg að
vanda eða frá einu upp í 21 mál, en alls voru þau
277, tæplega 10 mál að meðaltali á fundi.
Úrvinnsla ýmissa mála lendir að sjálfsögðu oft á
stjórnarmönnum milli funda, aðallega formanni
eins og gengur.
FORMANNARÁÐSTEFNA
Fundur með fulltrúum svæðafélaga, formanna
ýmissa nefnda læknafélaganna, ábyrgðarmanni
Læknablaðsins og fleirum, alls 26 mönnum, var
haldinn í Reykjavík 14. maí 1988. Hérlend
svæðafélög áttu öll fulltrúa nema tvö og boðaði
annað forföll. Félög íslenskra lækna erlendis
sendu ekki fulltrúa á fundinn.
Rætt var um afgreiðslu ályktana aðalfundar 1987
sem rakin er annars staðar í ársskýrslunni. Því
næst var rætt um kjaramál Iækna og greindu
formenn hinna ýmsu samninganefnda frá stöðu
mála. Einnig þau eru nánar rædd í ársskýrslunni.
Sigurður Halldórsson arkitekt gerði grein fyrir
könnun á auknu skrifstofurými læknafélaganna.
Taldi hann að um þrjá möguleika væri að ræða: Í
fyrsta lagi að leigja eða kaupa húsnæði af Domus
Medica til viðbótar núverandi húsnæði, annar
kostur að læknafélögin byggi við núverandi
húsnæði og þriðji möguleikinn að læknafélögin
tækju þátt í byggingu nýs húss á hornlóðinni við
Snorrabraut. Var gerð lausleg kostnaðaráætlun.
Við umræður voru flestir sammála um að
skynsamlegast væri að kanna möguleika á að
falast eftir húsnæði sem Domus Medica á nú.
Formenn orlofsnefndar, námskeiðs- og
fræðslunefndar og ábyrgðarmaður
Læknablaðsins gerðu grein fyrir stöðu sinna
mála. Sjá síðar í ársskýrslunni. Rætt var um
ráðningu lækna í stöður sem ekki hafa verið
auglýstar og samþykkti fundurinn að auglýsa
bæri allar stöður til þriggja mánaða eða lengri
tíma ef stöðugildið er 25% eða meira. Sjá nánar
síðar í skýrslunni. Þá var rætt um eftirlit með
reikningum lækna (sjá síðar í ársskýrslunni) og
tilmæli landlæknis um samvinnu við L.í. um
könnun á vinnutíma, vinnuaðstöðu og vinnuálagi
lækna. Sveinn Magnússon, fulltrúi L.í. í
norrænni nefnd (SNAPS) sem spáir um framboð
lækna og eftirspurn eftir þeim á norrænum
vinnumarkaði, greindi frá nýjustu spám á þeim
vettvangi. Að lokum greindi Atli Árnason,
formaður Læknafélags Austurlands, frá
undirbúningi aðalfundar L.í. á Egilsstöðum í
ágúst 1988.
AFGREIÐSLA ÁLYKTANA AÐALFUNDAR
1987
1. Ályktun sem skoraði á héilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra að leggja fram að nýju
frumvarp til læknalaga á næsta Alþingi var send
ráðherranum, einnig landlækni, læknadeild H.í.
og formönnum þingflokkanna. Ráðherra lagði
frumvarpið fram skömmu eftir að þing hófst
haustið 1987. Með frumvarpinu fylgdu tvö bréf.
Annað var frá tryggingayfirlækni sem lagði til að
Tryggingastofnun ríkisins hefði tillögurétt um
reglur sem ráðherra setur um gerð og útgáfu
læknisvottorða. Frumvarpið gerði ráð fyrir að
tillögur um þetta atriði kæmu frá landlækni og
Læknafélagi íslands og var því ekki breytt í
meðförum Alþingis. Hitt bréfið var frá
ríkisendurskoðun og er talið að það hafi seinkað
mjög afgreiðslu frumvarpsins á Alþingi þar eð í
því var reifaður sá möguleiki að í læknalögum
væri ákvæði sem heimilaði ríkisendurskoðun
Hlýtt á mál.