Læknablaðið - 15.10.1988, Blaðsíða 9
LÆKNABLAÐIÐ
305
Þrír einstaklingar neituðu að taka þátt í
könnuninni í Strandasýslu og einn í
Vestur-Skaftafellssýslu.
NIÐURSTÖÐUR
í töflu I er sýndur aldur og kyndreifing
þátttakenda. Karlar voru 183 og konur 136.
Samanlagður fjöldi var því 319. Flestir voru í
aldurshópnum 11-20 ára. Húðpróf voru gerð á
103. Jákvæð húðpróf voru 57 eða 55% þeirra sem
voru prófaðir. Hlutfallslega flestir höfðu jákvæð
húðpróf í aldurshópnum 21-30 ára eða 69%.
í töflu II eru landshornin tvö borin saman með
tilliti til fjölda þátttakenda og niðurstöðu úr
húðprófum. í Vestur-Skaftafellssýslu voru 152 en
í Strandasýslu 167 þátttakendur. í
Vestur-Skaftafellssýslu fóru 42 í húðpróf eða
27,6%. Höfðu 54,8% þeirra sem prófaðir voru
jákvæð húðpróf. í Strandasýslu fór 61 í húðpróf
eða 36,5%. Af þeim höfðu 55,7% jákvæð
húðpróf. Ekki var marktækur munur á fjölda
þeirra sem fóru í húðpróf í Strandasýslu miðað
við Vestur-Skaftafellssýslu né heldur á fjölda
jákvæðra húðprófa.
f töflum III og IV eru sýndar niðurstöður úr
húðprófum. í þriðja dálki hvorrar töflu er fjöldi
jákvæðra húðsvara og í fjórða dálki er fjöldi
þeirra húðsvara sem voru jafn stór eða stærri en
histamínsvörunin. Prófað var fyrir húsryki og
tveimur tegundum húsmaura (dermatophagoides
farinae og dermatophagoides pteronyssinus),
tveimur tegundum frjókorna, fimm húsdýrum,
músahári og músaþvagi, þremur heymaurum
Table IV. Results of prick tests (hay allergens) in 103
farming people with respiratory or skin symptoms.
Allergens Concen- tration Number of reactions >2 mm Number of reactions > histamine reaction
Lepidoglyphus destructor 1:20 39 21
Tyrophagus putrecentiae 1:20 18 1
Acarus siro 1:20 14 2
Culture media 1:20 9
Aureobasidium pullulans 1:20 6
Wool 1:20 5 1
M. faeni 1:20 4
Mouse hair 1:20 4 1
Mouse urine 0,1 mg/ml 3 1
Aspergillus fumigatus . 1:20 2
Penicillium expansum. 1:20 2
Rhizopus nigricans .. . 1:20 2
(lepidoglyphus destructor, tyrophagus
putrecentiae, acarus siro), sjö myglutegundum
(alternaria, mucor, cladosporium, aspergillus
fumigatus, penicillium expansum, rhizopus
nigricans, aureobasidium pullulans). Einnig var
prófað fyrir hitaelskum geislasýklum
(micropolyspora faeni) og æti því sem
heymaurarnir voru ræktaðir á (culture media).
Langflestir voru með jákvæðar húðsvaranir fyrir
heymaurnum lepidoglyphus destructor eða 38%
þeirra sem voru húðprófaðir og 68% þeirra sem
höfðu jákvæð húðpróf. Þar næst komu jákvæðar
húðsvaranir fyrir húsryki, nautgripum og
heymaurnum tyrophagus putrecentiae.
í töflu V er borin saman fyrir landsvæðin tvö
útkoma úr húðprófum með þeim tíu
ofnæmislausnum sem oftast voru jákvæðar.
Enginn marktækur munur var á tíðni jákvæðra
húðsvarana eftir landsvæðum fyrir þeim
ofnæmisvökum sem mesta þýðingu hafa.
Table V. Results of prick tests to ten allergens with the
highest positive prevalence rate in Strandasýsla (n: 61)
and in V. Skaftafellssýsla (n: 42).
Positive skin tests
Stranda- V-Skaftafells-
sýsla sýsla
------------ --------------- Statistical
Allergens N % N °Jo analysis
Lepidoglyphus destructor . 25 (40) 14 (33) ns
House dust . 21 (34) 10 (24) ns
Cow . 14 (23) 8 (19 ns
Tyrophagus putrecentiae . 12 (20 6 (12) ns
Acarus siro . 10 (16) 4 (10) ns
Dermatophagoides farinae . 12 (20) 2 ( 5) ns
Meadow festuca .... . 9 (15) 2 ( 5) ns
Birch . 3 ( 5) 7 (17) ns
Dermatophagoides pteronyssinus . 8 (13) 2 ( 5) ns
Culture media . 9 (15) 0 ( 0) ns
Table VI. Respiratory symptoms in haydust in prick
tests positive and prick test negative subjects.
Skin test negative Skin test positive
Statistical
Symtoms n = 46 °7o n = 57 % analysis
Cough . n (24) 17 (30) n.s.
Dyspnea 10 (22) 12 (21) n.s.
Fever .. 6 (13) 8 (14) n.s.
Nasal .. 13 (28) 41 (72) p<0,001
Eye .... 8 (17) 35 (61) p<0,001