Læknablaðið - 15.10.1988, Síða 15
LÆKNABLAÐIÐ 1988; 74: 309-13
309
Davíð Gíslason, Tryggvi Ásmundsson, Vigfús Magnússon, Suzanne Gravesen
BRÁÐAOFNÆMI í TVEIMUR
LANDBÚNAÐARHÉRUÐUM Á ÍSLANDI
II. Samband heyverkunaraðferða og einkenna af heyryki
INNGANGUR
Óhætt er að fullyrða að fáar stéttir á íslandi séu í
jafn mikilli hættu á að fá atvinnusjúkdóma og
bændur. Landbúnaður var aðal atvinnuvegur
þjóðarinnar frá upphafi byggðar og fram á þessa
öld. Flestir vinnufærir menn urðu að verja
drjúgum hluta vinnudagsins á veturna við vinnu í
heyryki. Heyöflun er óvíða í heiminum jafn erfið
og hér á landi. Sjúkdómar af heyryki hafa
áreiðanlega verið algengir, þótt ekki sé vitað
hversu snemma menn gerðu sér grein fyrir
sambandi þeirra við rykið.
Örn Elíasson, læknir, hefur gert ítarlega
samantekt á því sem skrifað hefur verið um
heysjúkdóma á íslandi frá fyrstu tíð og fram á
síðustu ár (1). Elstu þekktar heimildir í heiminum
eru skrif Sveins Pálssonar, læknis, frá 1790.
»Heysótt nefnist veikleiki, sem tilfellur þeim, sem
gefa myglað og illa verkað hey á vetrum, og er
hann alþekktur úti á íslandi. Orsakast hann af
phlogistiskum dömpum í heyinu, er sjúgast inn
með andardrættinum, og af sér leiða kvefsótt,
hæsi, hósta og öll hin sömu tilfelli, og annað
phlogistiskt loft og dampar, svo sem af kolum,
brennisteini, forarmýrum og öðru þess háttar«
(2). Sveinn Pálsson talar um heysótt sem
alþekktan sjúkdóm og lýsir einkennum þannig,
að samrýmist einna best bráðaofnæmi eða óþoli
fyrir heyryki.
Jón Pétursson, kirurg, skrifar um heysótt 1794
undir yfirskriftinni »um líkamlega viðkvæmni«:
»Brjóstþröng eða brjóstþyngsli þau sem margur
maður yfir kvartar hér á landi, kalla ég heysótt til
aðgreiningar frá öðrum brjóstsjúkdómum. Þessi
veikleiki er ekkert annað en það er læknar kalla
asthma convulsicum. Þessi sjúkdómur er
innifalinn í langvinnri tregðu þá er hinn sjúki
dregur andann. Stundum linast þessi kvilli að
sönnu, en kemur aftur og aftur með köstum; er
þá sem brjóstið sé saman reyrt, með mikilli
Frá Vífilsstaðaspítala, Allergologisk Laboratorium, Köbenhavn
og Heilsugæslustöð Seltjarnarness. Barst 22/01/1988.
Samþykkt 10/08/1988.
óþægð, þrengingu og suðu fyrir brjóstinu svo
hinn veiki má í rúminu uppréttur sitja. Hósti er
ætíð þessum kvilla samfara, meira eða minna, af
hverju þó ekki í fyrstu gengur upp annað en
vatnsfroða ein, eður og aðeins lítil blóðlituð
froða». Jón lýsir síðan sjúkdómseinkennum eins
vinnumanns síns og heldur áfram: «Því verður
ekki neitað, að heysóttin illa umhirt, eða lengi
forsómuð, verður margra manna bani hér á landi;
eftir því sem veikleikinn magnast, verða
brjóstþrengslin og þyngslin meiri og ákafari, þar
til sjúkdómurinn um síðir umbreytist í fullkomna,
ólæknandi megrusótt (phtisin), eður vatnssýki,
bæði í brjósti og annars staðar í líkamanum« (3).
Fyrri hluti frásagnar Jóns er nærri fullkomin
lýsing á astma, sem gæti verið tilkominn vegna
ofnæmis eða viðkvæmni fyrir heyryki. Seinni
hluti lýsingarinnar á hins vegar greinilega við um
lungnateppu með hjartabilun. Athyglisvert er að
Jón telur heysótt verða margra manna bana.
Jón Hjaltalín, landlæknir, skrifar í
Heilbrigðistíðindi 1870: »Heysótt hjá mönnum og
skepnum. Þegar heyið er myglað eða leiri
blandað, veldur það heysótt bæði mönnum og
skepnum. Hún getur oft orðið allill eða jafnvel
hættuleg. Slíkt hey þarf að hrista einkar vel áður
en það er gefið, og óhultast er fyrir garðmanninn,
að binda klút fyrir andlitið, meðan hann er að
leysa og hrista heyið« (4). Um heysótt í hestum
segir hann: «Allt myglað hey er reiðhestum mjög
óhollt, og getur bráðskemmt þá á stuttum tíma,
þegar myglan kemst ofan í lungun». Jón gerði sér
grein fyrir því, líkt og Sveinn Pálsson, að mygla í
rykinu hefði eitthvað með einkenni heysóttar að
gera.
Jón Finsen talar um heykatarr í doktorsritgerð
sinni 1874. Ritgerðin er á dönsku og er hér stuðst
við þýðingu Arnar Elíassonar: »Heykatarr: Ég
hef fyrirhitt á íslandi, nokkuð oft, sjúkdóm sem
er sérstakur hvað varðar orsakir hans. Þetta er
krónískur lungnasjúkdómur. Tíðni hans þekki ég
ekki þar sem vantar upp á athuganir mínar. Þessi
sjúkdómur kemur aðeins fyrir á vetrum, eða öllu