Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.1988, Page 25

Læknablaðið - 15.10.1988, Page 25
LÆKNABLAÐIÐ 1988;74:319-24 319 Þorsteinn Njálsson SAMANBURÐUR SKRÁNINGA SAMSKIPTA Á FIMM HEILSUGÆSLUSTÖÐVUM INNGANGUR í nýlegri grein (1) var sagt frá uppsetningu svokallaðs Egilsstaðakerfis (2) við skráningu samskipta og sjúkraskýrslugerð á heilsugæslustöð á Hólmavík. Skoðað var mynstur samskipta, tilefna, greininga og úrlausna á tólf mánaða tímabili. í þessari grein er reynt að bera þessar upplýsingar saman við annan islenskan efnivið, eftir því sem tök eru á. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Hér á eftir er greinin »Skráning og vinnsla samskipta á heilsugæslustöðinni á Hólmavík 1. júlí 1985 til 30. júní 1986« (1), höfð til grundvallar í samanburði á starfi á fimm heilsugæslustöðvum. Til að geta gert þennan samanburð þarf efniviðurinn að vera samanburðarhæfur, þ.e. timabil úrtaks minnst eitt ár, fáir einstaklingar skrái og safni upplýsingum og skilgreiningar, sem miðað er við, komi vel fram og séu svipaðar milli staða. Þau skrif sem hæst ber, um störf heimilislækna á íslandi og hafa birst í Læknablaðinu eru »Læknisstörf í héraði« (3), byggð á upplýsingum úr Hvammstangalæknishéraði 1965-67. Egilsstaðarannsóknin (2) sem er viðamikið fylgirit með heilbrigðisskýrslum, þar er skýrt frá grundvallarvinnu í þróun sjúkraskýrslna á heilsugæslustöðvum og birtar upplýsingar frá árunum 1977 og 1978. Þá er stuðst við ársskýrslu Péturs Péturssonar frá Bolungarvík 1983 (4) og síðan vann greinarhöfundur upplýsingar úr tölvusafni (5) heilsugæslustöðvarinnar í Búðardal frá 1985. í Bolungarvík (4) og í Búðardal (5) er öll skráning unnin að hætti Egilsstaðakerfisins (2) líkt og á Hólmavík (1). Önnur skrif í Læknablaðið um störf heimilislækna (6-8), svo og kannanir á læknisþjónustu á landsbyggðinni (9, 10), ná til mjög skamms tíma, gefa sjónhendingu af starfi, Barst 25/04/1988. Samþykkt 01/07/1988 en hafa ekki samanburðarvægi hinna staðanna (1-5). Hvammstangarannsóknin 1965-67 (3) er greinilega langt á undan sinni samtíð og gefur mjög góðar og vandaðar upplýsingar. f raun segir það mikið um þá upplýsingasöfnun að það er ekki fyrr en tólf árum síðar, sem Egilsstaðarannsóknin (2) kemur fram og svo Hólmavíkurgreinin (1) eftir tuttugu ár. Víða um landið eru til töluverðar upplýsingar sem skráðar eru að hætti Egilsstaðakerfisins, annars staðar er söfnun og skráning upplýsinga að byrja. í þessari grein eru einungis ræddar þær upplýsingar sem höfundur telur sambærilegar. NIÐURSTÖÐUR Aðkomur. Á einu ári hafa 89,2% ibúa samskipti við heilsugæslustöðina á Hólmavík. Eru þetta 5,1 samskipti á íbúa, heldur fleiri samskipti hjá konum eða 6,4, en 3,9 hjá körlum. Það mun almennt vera raunin að konur nota heilbrigðisþjónustuna meir en karlar og á það við á öllum fimm heilsugæslustöðvunum, Hvammstanga, Egilsstöðum, Bolungarvík, Búðardal og Hólmavík, samanber töflu I. Samskiptahlutfallið á Hólmavík og í Bolungarvík, er það hæsta sem þekkist, en Búðardalur kemur þó fast í eftir, samanber töflu I. Á þessum stöðum nær því heilsugæslustarfsfólk til 85-90% íbúa á hverju ári, sem verður að telja mjög mikið og að öllum líkindum ekki hægt á venjulegan hátt að ná til Table I. Number of contacts made by thepopulation of five districts (1-5) with the local Health Center. Health Center*) Number of contacts Males Females Total Percentage of the local population Hvammstangi 1965-66 4.5**) 6.6**) 3.5***) 60.0***) Egilsstadir 1978 .. 3.7 5.5 4.5 79.2 Bolungarvík 1983 5.0 7.2 6.0 89.0 Búdardalur 1985 . 4.0 6.2 5.2 84.7 Hólmavík 1985-86 3.9 6.4 5.1 89.2 *) Period of one year. **) Two years. ***) Antenatal and well baby care not included.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.