Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.10.1988, Qupperneq 46

Læknablaðið - 15.10.1988, Qupperneq 46
338 LÆKNABLAÐIÐ að lokum alveg óæskilegum heilsufarslegum áhrifum áfengisnotkunar.« í heilbrigðismarkmiðum Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar er kafli, sem fjallar sérstaklega um hvatningu til heilbrigðra lífshátta (opinber þýðing er ekki fyrir hendi). í kaflanum er sérstaklega fjallað um áfengi og misnotkun þess og segir þar m.a.: »The extend of alchohol-related problems is statistically closly related to annual per capita consumption of alchohol, and it is therefore a matter of great concern that the alcohol consumption per head in the Region has shown a drastic and very disturbing increase over the passed 30 years. During that period, a!l but one of the 21 countries for which data are available have disclosed increases in their per capita consumption of alcohol. In 12 of these countries, the annual consumption of pure alchohol equivalant per person aged 15 and over has more than doubled, and in 4 countries it has more than tripled. There is also a trend towards heavier drinking among women and young people.« Eins og fram kemur hér að framan eru þargreindir aðilar sammála um nauðsyn þess að draga úr heildarneyslu áfengis. Stjórn félagsins tekur undir þessi sjónarmið, en bendir á, að skoðanir eru mjög skiptar meðal lækna um leiðir til að ná þessum markmiðum.« IV. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið óskaði í febrúar 1988 umsagnar L.í. um könnun á starfsemi og rekstri líkams- og heilsuræktarstöðva. Umsögn stjórnar L.í. fer hér á eftir: »í bréfi, dags. 25. febrúar sl., er óskað umsagnar Læknafélags íslands um starfsemi líkams- og heisluræktarstöðva. í bréfinu er greint frá því, að samstarfsnefnd, skipuð af heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, raði líkams- og heilsuræktarstöðvum í 4 flokka eftir starfsemi (danskennsla, leikfimi, þolfimi, tækjaþjálfun), og talin er upp sérhæfð þjónusta í 13 liðum, sem stöðvarnar bjóða. í íslenskri heilbrigðisáætlun, sem þáverandi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra lagði fram á Alþingi í apríl 1987 og var til umfjöllunar á Heilbrigðisþingi í febrúar á þessu ári, er í kaflanum um Heilbrigða lífshætti m.a. fjallað um líkamsrækt og þjálfun. Svo segir í lið 4.5: »Samstaða er um að líkamsrækt og líkamleg þjálfun sé undirstaða heilbrigði. Líkamsþjálfun er nauðsynleg fyrir alla aldurshópa. Breyttar þjóðfélagsaðstæður, atvinnuhættir og færri áreynslutækifæri gera meiri kröfur um líkamsrækt og þjálfun fyrir alla aldurshópa en áður.« Stjórn L.í. tekur undir þessi rök fyrir nauðsyn líkamsþjálfunar. Samstaða sú, sem nefnd er, hefur e.t.v. stuðlað að þeirri umtalsverðu fjölgun fyrirtækja á síðustu misserum, sem falbjóða þjálfun o.fl. til ræktar heilsu og líkama. Af fjölmiðlaauglýsingum dylst engum, að allnokkur samkeppni er þeirra á milli um markaðinn. Kunnugt er, að við samkeppnisaðstæður af þessu tagi blómstrar gjarnan ýmiss auglýsingafagurgali, sem því miður hefur orðið raunin í þessu tilviki. Brenna vill við, að inn í auglýsingafagurgala slæðast meiri fullyrðingar en unnt reynist að standa við um ágæti þess, sem haldið er á lofti. Rækt heilsunnar er þannig á leið með að skipast á bekk með annarri »verslunarvöru«, og er e.t.v. lítið við því að segja, ef þar er gætt heiðarlegra viðskiptahátta. Verður nú vikið að einstökum þáttum í bréfi ráðuneytisins. Flokkun starfsemi líkams- og heilsuræktarstöðva 1) Dansiðkun getur haft visst líkamsþjálfunargildi. Danskennsla fer yfirleitt fram í dansskólum hér á landi sem annars staðar og spurning, hvaða erindi slík kennsla á inn á heilsuræktarstöðvar. 2-3) Leikfimi og þolfimi eru greinar á sama meiði. Munur, ef einhver, er helst fólginn í endamarkmiðum þjálfunarinnar, en hvoru tveggja beinist þó að jafnaði að hinu sama: aukningu á fimi, styrk og þoli líkamans. Aðskilnaður þessara tveggja þjálfunarþátta hefur þannig aðallega »sölugildi« og helst til þess fallið að slá ryki í augu væntanlegra kaupenda. 4) Svipað er að segja um það, sem kallað er tækjaþjálfun. Margvísleg tæki bjóðast á markaðnum nú til dags, sem auðvelda líkamsþjálfun. Markmið notkunar þeirra er hins vegar svipað og ýmissa annarra þjálfunaraðferða. Með því að bjóða tækjaþjálfun sem sérstakan þjónustuþátt er enn verið að slá ryki í augu kaupenda þjónustu líkamsræktarstöðva.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.