Læknablaðið - 15.10.1988, Blaðsíða 57
LÆKNABLAÐIÐ
347
Hægt er að vera aðili að einum eða fleiri þáttum
tryggingarinnar. Líftryggingabætur lækka um
4% fyrir hvert ár umfram 50. Tryggingaraðild
lýkur við 65 ára aldur.
LÍFEYRISSJÓÐUR LÆKNA
Á árinu 1987 voru veitt 69 lán úr sjóðnum að
fjárhæð samtals kr. 31.520.000. Hafa
lánveitingar aldrei verið svo fáar. Vísitölutryggð
verðbréf voru keypt af Byggingasjóði fyrir
89.600.000 og önnur skuldabréf voru keypt fyrir
64.000.000. Iðgjöld sjóðfélaga voru um
105.000.000, sem er u.þ.b. 50% hækkun frá árinu
áður. Makalífeyrir var greiddur 13 ekkjum og
ekklum, en barnalífeyrir með 6 börnum.
Ellilífeyris nutu 8 læknar og 2 örorkulífeyris. Á
árinu 1987 voru hámarkslán á bilinu 300-700
þúsund kr., sem er óbreytt frá fyrra ári. Lánin eru
til 15 ára, bundin lánskjaravísitölu og með 8-9%
ársvöxtum.
Á aðalfundi sjóðsins 1985 voru samþykktar
breytingar á reglugerð hans þannig að aðalfund
skuli halda árlega í stað annað hvert ár. Einnig
var samþykkt að barnalífeyrir skuli greiddur til
tvítugs. Samkvæmt samþykktum sjóðsins taka
breytingar á reglugerð ekki gildi nema þær hafi
verið samþykktar á tveim aðalfundum í röð.
Breytingarnar frá 1985 voru samþykktar á
aðalfundi 1987 og hafa því tekið gildi.
Aðalfundur verður því haldinn árlega í Reykjavík
i september eða október.
NÁMSSJÓÐUR LÆKNA
Innborguð iðgjöld árið 1987 námu 19,8
milljónum króna. Veittir styrkir voru um 7
milljónir og önnur úttekt var um 9,8 milljónir.
Veitt almenn lán voru um 17 milljónir og
framkvæmdalán um 4,4 milljónir. Inneignir
lækna í árslok 1987 voru 18,5 milljónir án vaxta
ársins. Almenn lánsfjárhæð er nú kr. 200.000, en
framkvæmdalán vegna stofnkostnaðar stofu eða
tækjakaupa allt að kr. 400.000.
STYRKTARSJÓÐUR EKKNA OG
MUNAÐARLAUSRA BARNA ÍSL. LÆKNA
í desember sl. var úthlutað styrkjum til 41
einstaklings, sem er sami fjöldi og árið áður.
Úthlutað var kr. 455.000. Fjárhæð hvers styrks
nam 7-30 þúsund krónum.
HÚSNÆÐISMÁL LÆKNAFÉLAGANNA
Eins fram kemur fyrr í skýrslunni hafa
húsnæðismál félaganna verið nokkuð til umræðu
að undanförnu. L.í. og L.R. eiga að jöfnu
núverandi skrifstofuhúsnæði sem er um 280
fermetrar. Eftir stækkunina 1979 voru
upphaflega tvö herbergi eingöngu ætluð fyrir
fundi stjórna og nefnda. Vegna aukinnar
útgáfustarfsemi var stærra herbergið tekið undir
hana vorið 1987, þó er þar enn aðstaða fyrir
smærri fundi. í hinu fundaherberginu halda
stjórnir félaganna fundi sína og þar hafa formenn
þeirra aðstöðu.
Námskeiðs- og fræðslunefnd, orðanefnd og
sjóðsstjórnir halda reglulega fundi á
skrifstofunni. Eins og flestum, sem starfa að
félagsmálum lækna er kunnugt, eru stundum
haldnir á skrifstofunni 3-4 fundir samtímis,
einkum þegar kjaramál eru á döfinni. Þessi
starfsemi kallar öll á aukið húsnæði.
Svo virðist sem nýbygging sé talsvert dýrari
kostur en bygging við núverandi húsnæði. Þó
gæti orðið ódýrast að fá viðbótarhúsnæði með
leigu eða kaupum á hluta hæðarinnar fyrir ofan,
sem er í eigu Domus Medica. Formlegar viðræður
hafa ekki farið fram við stjórn Domus Medica en
veitingasalurinn hefur verið leigður
Veitingahöllinni áfram.