Læknablaðið - 15.12.1989, Blaðsíða 26
398
LÆKNABLAÐiÐ
áður en sérstök fjármálaskrifstofa kom
í ráðuneytið voru þau mál aðallega á
hendi skrifstofustjóra, ráðuneytisstjóra og
deildarstjóra áætlunardeildar.
Ef reyna ætti að gera sér grein fyrir því, hvaða
mál hafa risið hæst í heilbrigðisráðuneytinu
á þessum tveimur áratugum, er enginn
vafi á því, að þar ber hæst setning laga um
heilbrigðisþjónustu og framkvæmd þeirra
laga með uppbyggingu heilsugæslunnar í
landinu sem aðalverkefnið og uppbyggingu
sjúkrahúsakerfisins til að sinna þeirri
margfióknu sjúkrahúsaþjónustu, sem nútíminn
krefst. Þar að auki má nefna endurskoðun
allra málefna aldraðra, bæði fyrir tilstilli
laga um málefni aldraðra, en ekki síður
fyrir þá sífelldu endurskoðun, sem lög
um almannatryggingar hafa sætt á þessu
tímabili og heildarendurskoðun allra mála,
er snerta hollustuhætti, heilbrigðiseftirlit og
umhverfisvernd.
Að öllum þessum verkefnum auðnaðist okkur
Jóni að vinna saman með öðru starfsliði í
ráðuneytinu.
Frá því fyrst var Jón Ingimarsson mjög
virkur í ýmiss konar félagsstarfi. Hann
var á yngri árum í stjóm Félags ungra
jafnaðarmanna og Sambands ungra
jafnaðarmanna og var formaður Stúdentafélags
lýðræðisjafnaðarmanna 1945-46. Það skólaár
var hann kosinn í Stúdentaráð. Hann sat
í miðstjóm Alþýðufiokksins 1946-48 sem
annar tveggja fulltrúa Sambands ungra
jafnaðarmanna. I háskóla tók Jón virkan
þátt í starfi Orators, félags laganema, var
varaformaður félagsins og ritstjóri Úlfljóts,
blaðs laganema, 1949-50.
Af öðru félagsstarfi má nefna, að Jón var á
yngri árum mjög virkur sundmaður og var
varaformaður Sundfélagsins Ægis 1941-49
og formaður 1952-60, hann var stofnandi og
lengi í stjórn Félags íslenskra frímerkjasafnara
og stofnandi og fyrsti gjaldkeri Ármanna,
félags áhugamanna um stangveiði á flugu.
Hann var varaformaður stjómar Bandalags
æskulýðsfélaganna í Reykjavík 1952-55
og stofnandi og fyrsti formaður Félags
háskólamenntaðra starfsmanna stjómarráðsins.
Eins og fram kemur af þessari upptalningu
kom Jón víða við í félagsmálum, en
síðustu. árin voru helstu áhugamál hans og
tómstundastörf garðyrkja og trjárækt, ættfræði,
skíðaferðir og stangaveiði.
Fyrir félagsstörf voru Jóni veittar margvíslegar
viðurkenningar, heiðursgullstjömu
Sundfélagsins Ægis fékk hann 1959,
heiðursgullmerki Félags íslenskra
frímerkjasafnara 1979, heiðursgullmerki
íþróttasambands íslands 1983.
í einkalífi sínu var Jón mikill hamingjumaður.
Hann kvæntist 17. ágúst 1951 Elínu
Guðmannsdóttur tannlækni í Reykjavík og
eiga þau þrjú böm, Þóm Björk kennara sem
gift er Sveini Allan Morthens félagsmálastjóra,
eiga þau eitt bam, Reyni tannlækni,
sem kvæntur er Ingibjörgu Georgsdóttur
bamalækni og eiga þau tvö böm og Ingimar
Öm viðskiptafræðinema, sem enn er í
heimahúsum.
Jón og Elín voru samhent hjón og höfðu
sömu áhugamál. Þau bjuggu sér fagurt heimili
að Vesturbrún 12 þar sem allt innanstokks
og utan vitnar um snyrtimennsku þeirra,
listhneigð og ræktunaráhuga.
Foreldrar Jóns höfðu átt sumarbústað við
Þingvallavatn. Við þessum bústað tók Jón,
breytti, stækkaði og endurbætti og þar veit ég,
að þau hjónin og fjölskyldan öll áttu margar
yndisstundir.
Enginn í heilbrigðisráðuneytinu gerði ráð fyrir
svo snöggum umskiptum og að starfslok Jóns
Ingimarssonar bæru að með þessum hætti. Því
eru allir hér í ráðuneytinu harmi slegnir.
Fyrir hönd allra starfsmanna
heilbrigðisráðuneytisins færi ég þakkir fyrir
þau ár, sem við höfum átt hér saman.
Við Guðrún færum Elínu og fjölskyldunni
innilegar samúðarkveðjur og biðjum góðan
Guð að styrkja þau og blessa um alla framtíð.
Páll Sigurðsson