Læknablaðið - 15.12.1989, Side 39
LÆKNABLAÐIÐ 1989; 75: 405-13
405
Einar Ragnarsson, Sigfús Þór Elíasson, Sigurjón H. Ólafsson
MUNNFERLI KVENNA 52-79 ÁRA í
HÓPRANNSÓKN HJARTAVERNDAR
1986-1987
SAMANTEKT
Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna ýmis
atriði varðandi heimsóknir til tannlæknis
og álit fólks á tönnum sínum og tannholdi.
Upplýsinganna var aflað með spumingalista
hjá 508 konum á aldrinum 52-79 ára, en
þær voru skoðaðar veturinn 1986-1987 á
Rannsóknarstofnun Hjartavemdar í Reykjavík.
Ekki reyndist samband milli aldurs við fyrstu
heimsókn til tannlæknis og tannleysis á
efri ámm. Aftur á móti virðast reglulegar
heimsóknir á skólaaldri stuðla mjög að því að
fólk haldi tönnum sínum fram á efri ár. Einnig
kom í ljós að fleiri hinna tenntu höfðu farið
nýlega til tannlæknis þótt munurinn væri mun
minni en meðal tilsvarandi hóps karlmanna
(1).
Ekki virtist ótti við tannaðgerðir koma í veg
fyrir heimsóknir svo neinu næmi þó að nokkru
fleiri konur en karlmenn viðurkenndu geig (1).
Flestar kvennanna töldu auðvelt að fá tíma og
32% þeirra er unnu úti notuðu vinnutímann til
tannlæknisheimsókna, en 18% jöfnum höndum
vinnu og frítíma.
Meiri hluti hinna tenntu álitu ástand tannholds
gott, þótt færri væru vissar um heilbrigði
tannanna.
INNGANGUR
Eitt af því sem lítt hefur verið kannað meðal
Islendinga er það sem hér verður nefnt
munnferli (mundsundhedsadfærden, oral
behaviour). Þá er átt við atriði eins og þau,
af hverju og hvenær menn leita tannlæknis,
hvemig munnhirðu er háttað og hvert álit
menn kunna að hafa á eigin tyggingarfærum
og ástandi þeirra.
Upplýsingar af þessu tagi varpa oft ljósi á
aðra þætti, er annars liggja ef til vill ekki í
augum uppi. Þessir þættir geta skýrt atriði
eins og tíðni tannátu, tannholdssjúkdóma og
tannleysi, svo að nokkuð sé nefnt.
Á þennan hátt má því oft fá fram vísbendingar
um það, hvemig best megi bregðast við
tilteknu vandamáli og hvert beina skuli
upplýsingum og/eða áróðri. Einnig verða
slíkar kannanir tiltækar til samanburðar
síðar, þegar þörf kann að verða á því að
endurmeta stöðuna. Athuganir af þessum toga
eru algengar meðal nágrannaþjóða (2-10).
Upplýsingar um þessa hluti eru af skomum
skammti hérlendis, en þó er minnst vitað um
fullorðna einstaklinga. I gögnum, sem aflað
var árið 1985 fengust allgóðar upplýsingar
um tennur, tannheilsu og munnferli reykvískra
karla á aldrinum 52-79 ára (1, 11). Guðjón
Axelsson og Dwight Castleberry hafa einnig
birt niðurstöður póstkönnunar, sem gerð var
á landsvísu í sama tilgangi, þ.e. til að bæta
úr ofangreindum skorti á upplýsingum um
fullorðna (12).
EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR
Upplýsinga var aflað með hefðbundnum
spumingalista, eins og hjá körlunum (1,
11). Sami starfsmaður Hjartavemdar
fór yfir listann að útfyllingu lokinni á
sama hátt og lista stofnunarinnar og við
gagnaöflun hjá körlunum (1, 11). I þessum
áfanga var hann lagður fyrir úrtak kvenna
í hóprannsókn Hjartavemdar, er boðaðar
höfðu verið til skoðunar 1986-1987. Voru
þetta 508 konur af höfuðborgarsvæðinu,
sem fæddar vom á árunum 1907-1934.
Urtakið var úr ferilrannsókn (longitudinal
study), sem hófst árið 1967 (13-15). í þennan
áfanga rannsóknarinnar var boðaður þriðji
hver einstaklingur, þeirra er á lífi voru af
framangreindum 28 fæðingarárgöngum og
búsettir höfðu verið á höfuðborgarsvæðinu
1. desember 1986. Vegna innköllunarkerfis
Hjartavemdar má líta á þessa 508 einstaklinga
sem slembiúrtak (random sample) úr
umræddum aldurshópum.
Við tölfræðilegt mat á sambandi einstakra