Læknablaðið - 15.12.1989, Side 46
412
LÆKNABLAÐIÐ
í erlendum rannsóknum en hefur þó minnkað
mjög með bættri almenningsfræðslu (2, 3).
I skoskri rannsókn á tenntum einstaklingum
kemur fram, að 41% þeirra, sem fara
reglulega til tannlæknis telja að lagfæringa
sé þörf, en um 67% þeirra, sem ekki sækja
tannlæknisþjónustu. I sömu rannsókn töldu
yfir 30% tannholdinu ábótavant (10).
Margt bendir til þess, að tannmennt íslendinga
sé ábótavant (1, 11, 12, 18). Vart er við því
að búast að hún sé til fyrirmyndar hjá þessum
hópi, sem naut lítillar fræðslu og þjónustu í
þessum efnum á uppvaxtarárunum. Raunar
er hér um reykvískar konur að ræða, sem
margar hverjar hljóta að hafa búið nærri þeirri
þjónustu, er í boði var hverju sinni, enda hafa
rannsóknir leitt það í ljós að ástandið er verra
á landsbyggðinni (12). Þó má ætla, að ástand
það sem hér kemur fram sé í raun lakara
vegna þeirrar mannlegu tilhneigingar, er að
ofan getur að vanreikna tíma og aðlaga svarið
því, sem talið er æskilegra.
Að áliti höfunda renna ofangreindar
niðurstöður enn frekari stoðum undir þá
skoðun, að brýn þörf sé á stórauknu átaki
til fræðslu almennings og heilbrigðisstétta
um tannvemdarmál, ef ætlunin er
að komast nær settu marki Alþjóða
heilbrigðismálastofnunarinnar hvað bætta
tannheilsu varðar fyrir árið 2000 (22, 23).
Þakkir. Höfundar færa bestu þakkir dr.
Nikulási Sigfússyni, stjóm og starfsfólki
Hjartavemdar og Helga Sigvaldasyni
verkfræðingi, sem annaðist tölvuvinnslu og
tölfræðilega útreikninga. Styrkur til verksins
var veittur úr rannsóknarsjóði Háskóla íslands.
SUMMARY
The aim of this investigation was to elucidate
certain pattems of oral behaviour, such as visits
to dentists and people’s opinion of their own teeth
and periodontal tissues.
A questionnaire was used to gather the information
among 508 52-79 year old females, out of a
random sample attending for routine examination
at The Research Institution of The Icelandic Heart
Association during the winter 1986-1987.
No statistical connection was found between age
at lirst dental visit and edentulousness later in
life. Regular dental visits during the school-years
however seemed to slow down loss of teeth or
prevent edentulousness later in life to some extent.
More of the dentate women had recently visited a
dentist than the edentulous ones.
Fear of dental treatment did not seem to prevent
those women from visting a dentist to any
mentionable extent, even though they admitted
more fear than their masculine counterparts (1).
Most of the women were of the opinion that a
convenient appointment could easily be made, and
a little over 32% of employees went to the dentist
during their working hours.
Majority of the dentate women or a little under
58% were of the belief that their periodontal tissues
were in good shape and nearly 53% thought that
something might be found wrong about their teeth.
HEIMILDIR
1. Ragnarsson E, Ólafsson SH, Elíasson SÞ. Munnferli
karla 52ja-79 ára í hóprannsókn Hjartavemdar 1985-
1986. Læknablaðið 1988; 74: 403-13.
2. Grabowsky M. Den ældre befolknings oralstatus og
odontologiske behandlingsbehov i Vestsjællands amt.
A thesis. Aarhus Tandlægehöjskole 1974.
3. Rise J. A Community Dentistry Research. Approach
to the Study of Old-Age Pensioners. Empirical
studies in Norway. Theses. Oslo: University of Oslo
1984.
4. Schwarz E, Hansen ER. Utilization of dental services
in the adult Danish population 1975. Community
Dent Oral Epidemiol 1976; 4: 221-6.
5. Haakanson J. Dental care habits, attitudes towards
dental health and dental status among 20-60 year old
individuals in Sweden. A thesis. Lund: Bokforlaget
Dialog, 1978.
6. Petersen PE. Voksne danskeres tandlægevaner og
vurdering af egen tandstatus. Tandlægebladet 1983;
87: (15) 501-8.
7. Modeller for en fremtidig tandsundhedspolitik.
Redegörelse fra arbejdsgruppen vedrörende
tandplejens fremtidige organisation (ATFO).
Köbenhavn: Sundhedsstyrelsen, 1985.
8. Rise J, Helöe LA. Oral conditions and need for
dental treatment in an elderly population in Northem
Norway. Community Dent Oral Epidemiol 1978; 6:
6-11.
9. Ambjömsen E. Oral health in old age, A study of
oral health and dental care among groups of old-age
pensioners in Norway. A thesis. Oslo: University of
Oslo 1986.
10. Eddie S. Frequency of Attendance in the General
Dental Service in Scotland. (A comparison with
claimed attendance) Br Dent J 1984; 157: 267-70.
11. Ragnarsson E, Ólafsson SH, Elíasson SÞ. Tennur
og tannleysi 52ja-79 ára karla í hóprannsókn
Hjartavemdar 1985-1986. Læknablaðið 1988; 74:
57-65.
12. Axelsson G, Castleberry D. Breytingar á tannheilsu
íslendinga 1985-2000. Fyrsti áfangi: Tannheilsa
Islendinga árið 1985. Reykjavík, Tannlæknafélag
íslands 1988.
13. Hóprannsókn Hjartavemdar 1967-68. Skýrsla A
XIV og XVI 1980. Reykjavík: Rannsóknarstöð
Hjartavemdar 1980.