Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.12.1989, Page 54

Læknablaðið - 15.12.1989, Page 54
420 LÆKNABLAÐIÐ 1989: 75: 420-7 Pétur Pétursson AFREKSMAÐUR AÐ NORÐAN Fróðieiksmolar um Guðmund Hannesson og læknablað hans Fyrir rúmlega 120 árum fékk ungur Húnvetningur á þriðja ári að hlýða messu í fyrsta sinn í sóknarkirkju sinni að Svínavatni. Eftirtekt hans var vakandi og hann hvergi ragur enda góðu atlæti og hvatningu vanur úr föðurhúsum. Sem hann gengur inn kirkjuna tekur hann eftir gati á morknu gólfinu. »Pabbi smíða gatið!« varð honum að orði við völundarsmiðinn föður sinn. Og er sóknarprestinum, séra Jóni Þórðarsyni, tók að dveljast við útleggingar textans um systurina Maríu, sem smurði fætur frelsarans með ilmandi nardussmyrslum úr alabasturbuðki, þá hvarflaði sveinninn ungi augum til iðandi lífsins utan kirkjugluggans, þar sem tarfkálfur hljóp um töðuvöllinn. »Afi hnífa kálfinn!« kallaði þá drengurinn til afa síns, hreppstjórans og óðalsbóndans á Guðlaugsstöðum. Þeir Guðlaugsstaðafeðgar létu sér fátt um finnast, enda hefur þeim sjálfsagt ekki verið ljóst, að þama talaði upprennandi skurðlæknir með sérstakt smiðsauga, sem alla tíð síðan fann hjá sér hvöt til að þoka hinum ólíklegustu málum áleiðis. Guðmundur hét þessi drengur og fæddist að Guðlaugsstöðum í Blöndudal rétt fyrir göngur haustið 1866 og var sonur hjónanna Halldóru Pálsdóttur frá Hvassahrauni á Vatnsleysuströnd og Hannesar Guðmundssonar bónda á Guðlaugssstöðum og síðar Eiðsstöðum, sem víðkunnur var fyrir hagleik sinn á tré, jám og silfur. Guðmundur var heitinn eftir afa sínum, Guðmundi hreppstjóra Amljótssyni, sem var sveitarhöfðingi og stórbóndi á ættaróðali sínu og sérstakur áhugamaður um bóklestur, hagnýtan fróðleik og framfarir til almannaheilla. Réði bókasafn hans líklega mestu um æfistarf sonarsonarins, en Guðmundur Hannesson sagði síðar, að fátt hafi sér verið jafn minnisstætt frá æskuárunum Að stofni til var fyrirlestur þessi hluti hátíöardagskrár Læknafélags Akureyrar 8. september 1989 i tilefni af 75 ára afmæli Læknablaösins. Barst 10/10/1989. og bækumar og sú ánægja og fróðleikur, sem þær fluttu honum. Honum sagðist þannig frá: »Þessi lestrarfýsn mín átti vafalaust mikinn þátt í því, að ég var settur í skóla. Bæði foreldrar mínir og heimafólkið veittu því eftirtekt, að ég var mjög bókhneigður og tiltölulega fljótur að læra, en óvíst er, að mikið hefði á þessu borið, ef að engar bækur eða sárafáar hefðu verið til á heimilinu. Mér hefur síðan fundizt, að bókalausu heimilin séu kalblettir í þjóðfélaginu.« Og enn sagði Guðmundur: »Ég býzt við, að ég hafi ekki tekið öðrum bömum fram við hversdagslegu snúningana og verið ónytjungur við alla fjármennsku. Aftur bar snemma á því, að ég væri hneigður fyrir smíðar, og svo hafa fleiri af ættmönnum mínum verið.« Og loks úr sömu ritgerð: »Þá var annað einkennilegt í fari mínu á æskuárunum: Ég hafði ákafa löngun til þess að læra öll verk, sem ég ekki kunni, og mun hafa verið venju fremur verklaginn. Meðal annars beit mér vel við slátt og ég þótti snemma góður sláttumaður.« (1) Hins vegar þótti Guðmundur fremur óglöggur á skepnur, en það þótti Guðlaugsstaðamönnum heldur ógæfumerki, því þar í ætt þekktu menn hvem haus í hjörð sinni með nafni. Sagt er að Guðmundi yrði það eitt sinn á að koma heim með hestana af næsta bæ, er hann var sendur eftir brúkunarhrossum heimilisins. Varð þá föður hans að orði: »Það er ég viss um, að það verður aldrei maður úr þér, Gvendur.« (2) Um menntaskólaár Guðmundar er mér nærtækust þessi lýsing hans úr ritgerðinni Andleg slys, sem birtist í Læknabókinni 1949: »A skólaárum mínum var ærið slarksamt í Latínuskólanum, sífelldar erjur milli pilta og kennara og drykkjuskapur algengur. Ég lenti um tíma í hópi drykkjumannanna, og varð þetta meðal annars til þess, að ég braut skólareglur, fékk nótur og sagði mig af þráa og stífni úr skóla, þó ekki þyrfti ég að óttast brottrekstur. Lá við sjálft, að ég fengi ekki aftur inntöku í skólann. Þó ég kæmist

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.