Læknablaðið - 15.02.1991, Blaðsíða 8
SINEMET DEPOT
(MSD, 880151)
FORÐATÖFLUR; N 04 B A 02
Hver forðatafla inniheldur: Carbidopum INN 50
mg, Levodopum INN 200 mg.
Eiginleikar:
Blanda af levódópa, sem breytist i dópamín, og
karbídópa, sem blokkar dekarboxýleringu á levó-
dópa í dópamin. Karbídópa kemst ekki inn i mið-
taugakerfið og blokkar því myndun dópamíns úr
levódópa í öllum vefjum nema heila. Full blokkun
fæst af 70—150 mg karbídópa á dag. Á þennan
hátt er hægt að fá fulla verkun í heila með mun
minni (um 1/5) skömmtum af levódópa, en ef það
væri gefið eitt sér. Þetta dregur einnig mikið úr
aukaverkunum, sem stafa af myndun dópamíns ut-
an heilans. Lyfið hefur forðaverkun og gefur jafn-
ari blóðþéttni yfir sólarhringinn en þegar venjuleg-
ar töflur eru notaðar. Þetta er einkum gagnlegt fyr-
ir sjúklinga með sveiflukenndan sjúkdóm og þá
sem fá aukaverkanir, þegar blóðþéttni lyfsins er
há.
Eftir inntöku frásogast levódópa stöðugt á 4—6
klst. og nær blóðþéttni hámarki eftir u.þ.b. 2 klst.
(45 mín. eftir venjulegar töflur). Aðgengi levódópa
er um 70% miðað við venjulegar töflur, en hækkar
verulega, ef lyfið er tekið með mat. Matur hefur
ekki teljandi áhrif á aðgengi karbídópa.
Ábendingar:
Parkinsonsveiki og parkinsonslík sjúdómsein-
kenni, önnur en af völdum lyfja.
Frábendingar:
Sérstakrar varúðar skal gæta við notkun lyfsins hjá
sjúklingum með hjarta-; lungna- eða nýrnasjúk-
dóma. Lyfið má ekki gefa samtímis MAO-hemj-
andi lyfjum. Lyfið skyldi eigi nota hjá fólki yngra
en 18 ára. Þrönghornsgláka. Við aðrar tegundir
gláku þarf að fylgjast vel með augnþrýstingi. Með-
ganga. Mjólkandi konur. Rétt er að hætta gjöf
lyfsins 2—3 dögum fyrir skurðaðgerðir. Við bráð-
ar skurðaðgerðir er ráðlegt að nota hvorki halótan
né cýklóprópan til svæfinga.
Aukaverkanir:
Ýmis konar ósjálfráðar hreyfingar. Vöðvakippir.
Lækkun á blóðþrýstingi í uppréttri stöðu. Hjart-
sláttaróregla. Lystarleysi. Ýmis konar einkenni frá
miðtaugakerfi og meltingarvegi.
Milliverkanir:
Samtímis gjöf amitriptýlins eða ímipramíns getur
valdið blóðþrýstingshækkun. Fentíazin, bútýróf-
enólafbrigði, metýldópa og fenýtóín draga úr verk-
un lyfsins. Járn dregur úr aðgengi lyfsins. Pýri-
doxín (B6 vítamín) í stórum skömmtum getur
dregið úr áhrifum lyfsins.
Eiturverkanir:
Einkenni hin sömu og greint er í lið um aukaverk-
anir hér að framan. Sérstaklega skal þó bent á
hættu á hjartsláttaróreglu.
Skammtastærðir handa fullorðnum:
Töflurnar má gleypa heilar eða hálfar en þær má
hvorki tyggja né mylja. Finna þarf hæfilega
skammta fyrir hvern sjúkling. Þegar meðferð með
venjulegum töflum er breytt í Sinemet depot, þarf
að gefa 10—30% stærri dagsskammt af levódópa
vegna lægra aðgengis og tíma milli skammta þarf
að lengja um 30—50%. Taflan sýnir þetta nánar.
Venjulegar töflur Sinemet depot
levódópa, mg/dag levódópa, mg/dag
300 400 (1 tafla tvisvar)
450 600 (1 tafla þrisvar)
600 800 (1 tafla fjórum sinnum)
900 1200 (Hó tafla fjórum sinnum)
1200 1600 (2 töflur fjórum sinnum)
Hjá sjúklingum, sem ekki hafa áður fengið levó-
dópa, er mælt með byrjunarskammtinum ein tafla
2—3 sinnum á dag. í upphafi meðferðar á dags-
skammtur af levódópa ekki að vera stærri en 600
mg og tími milli lyfjagjafa ætti ekki að vera styttri
en 6 klst. Algengustu viðhaldsskammtar eru 2—8
töflur á dag, sem skipt er niður á deiliskammta,
sem teknir eru á 4—12 klst. fresti. Skömmtum ætti
ekki að breyta með minna en þriggja daga millibili.
Skammtastærðir handa börnum:
Lyfið er ekki ætlað börnum.
Pakkningar
100 stk.
MSD
MERCK
SHARft
DOHME