Læknablaðið - 15.09.1991, Blaðsíða 21
LÆKNABLAÐIÐ
263
Hvaö var athugavert?
karla og kvenna í hverjum dálki.
Nafn deiidarinnar
□ Konur
Súlurit V. Tvœr efstu spurningarnar eru sýndar sem hundraðshlutfall af 890, en þrjár neðstu sem hundraðshlutfall af
798 sem svöruðu spurningunum. Til að fá heildarhundraðshlutfall við hverri spurningu þarf að leggja saman súlur karla
og kvenna I hverjum dálki.
spumingalistum var dreift út en þeir 306
sem ekki fengu spumingalista höfðu annað
hvort húðsjúkdóma eða vildu ekki taka
þátt í könnuninni af öðrum ástæðum. Ur
póstkassanum í biðstofunni voru teknir 1266
spumingalistar sem svarað hafði verið, eða
84.4%. Nokkur blöð fundust saman vöðluð í
blómabeðum fyrir utan móttökuna eða frammi
á biðstofunni, en þau voru að sjálfsögðu
ekki tekin með, enda ekkert skrifað á þau.
Af 1266 svörum voru 63.9% frá körlum og
36.1% frá konum. Af þeim sem svömðu
höfðu 29.2% komið á deildina áður. Aðrar
niðurstöður má lesa í súluritum 1-5. Til að
fá heildarhundraðshlutfall svara við hverri
spumingu verður að leggja saman svör
karla og kvenna í súluritunum. Eins og sjá
má af eðli spuminganna var möguleiki að
svara mismunandi mörgum spumingum,
og því ekki hægt að leggja saman svör í
spumingaflokkum til að fá heildartölu, ef
undan em skildar fyrstu tvær spumingamar
(karl, kona). Margir slepptu að svara t.d. þegar
möguleiki svars var »ekkert athugavert«, eins
og í spumingu um nafn deildarinnar. Eins
slepptu margir því að svara spumingunni
um hvað svona deild ætti að nefnast ef þeir
höfðu svarað að ekkert athugavert væri við
nafnið eins og 81.8% svöruðu. Spumingunni
»hverjar vom móttökumar« svömðu 785,
en 806 fengu listann á þeim tíma sem sú
spuming var með. Allar niðurstöður eru
gefnar í hundraðshlutfalli af 1266 nema
sú spuming og spumingamar »Er eitthvað