Læknablaðið - 15.12.1991, Qupperneq 6
370
LÆKNABLAÐIÐ
læknar húð- og kynsjúkdómadeildar
Heilsuvemdarstöðvar Reykjavíkur, sem
létu gera báðar rannsóknimar á sýnum frá
flestum nýjum sjúklingum. Allar niðurstöður
klamydíurannsókna, sem gerðar voru á
sýklarannsóknadeildinni frá því að þær
hófust í nóvember 1981 til ársloka 1990 voru
athugaðar. Ekki eru fyrir hendi haldgóðar
upplýsingar um tilefni sýnatöku vegna þess
hve beiðnaseðlar voru oft og tíðum illa
útfylltir. Ætla má að flestir sjúklinganna hafi
greinst vegna þess að þeir höfðu einkenni eða
vegna smitberaleitar, en nokkur hluti þeirra
greindist þó vegna skimunar á kvennadeild
Landspítalans. Kyn- og aldursdreifing
sjúklinga húð- og kynsjúkdómadeildar
Heilsuvemdarstöðvar Reykjavíkur árin 1987
og 1990, sem höfðu klamydíusýkingar, var
athuguð með því að skrá í tölvu upplýsingar
um aldur og kyn þeirra. Bókhald deildarinnar
er handunnið og því erfitt um vik að vinna
úr miklu magni upplýsinga. Akveðið
var að kanna aldursdreifingu sjúklinga
frá Heilsuverndarstöðinni vegna þess að
líklegt þótti að það gæfi besta mynd af
aldursdreifingu sjúklinga með kynsjúkdóma og
einnig vegna þess að til voru eldri upplýsingar
til samanburðar (4).
NIÐURSTÖÐUR
Alls voru skráðar niðurstöður frá 59.866
rannsóknum. Það var talin ein rannsókn ef
annað hvort ræktun eða Chlamydiazyme®vom
gerð eða bæði prófin samtímis. Ræktanir,
sem gerðar voru á þessum 10 árum voru
31.893 og Chlamydiazyme®-próf voru
40.303, eða samtals 72.196 próf. Rannsókn
var metin jákvæð ef annað hvort ræktun eða
Chlamydiazyme®var jákvætt, nema þegar
Chlamydiazyme®var jákvætt en samtímis
ræktun neikvæð. Þá var litið svo á að um
falskjákvætt Chlamydiazyme®-próf hefði
verið að ræða.
Mynd 1 sýnir yfirlit yfir rannsóknafjöldann á
þessum árum, það er fjölda prófa, sem gerð
voru. Jákvæðar rannsóknir voru 9415 á þessu
10 ára tímabili og mynd 2 sýnir dreifingu
þeirra eftir árum. A þessu tímabili greindust
4160 tilfelli á húð- og kynsjúkdómadeildinni
og 1844 á kvennadeild Landspítalans.
Síðustu fimm árin greindust 1529 tilfelli
utan Reykjavíkur og 1462 á læknastofum
í Reykjavík. A myndum 3 og 4 má sjá
0 Chlamydiazyme
■ Ræktanir
Mynd 1. Heildarfjöldi rannsókna 1981-1990.
Mynd 2. Heildarfjöldi jáh’œðra rannsókna.
stuðlarit yfir sýnafjölda og fjölda jákvæðra
sýna frá sjúklingum, sem greindust á húð-
og kynsjúkdómadeildinni, kvennadeild
Landspítalans, hjá læknum á lækningastofum
og stofnunum á höfuðborgarsvæðinu og
læknum úti á landi.
Fyrsta heila árið eftir að klamydíyurannsóknir
voru teknar upp var 1982. Það ár voru
ríflega 26% ræktananna jákvæðar og árið
eftir um 21%. Hlutfall jákvæðra rannsókna
fór síðan stöðugt lækkandi og var rúmlega
10% árið 1990. Á mynd 5 má sjá línurit
yfir heildarfjölda rannsókna og heildarfjölda
jákvæðra rannsókna. Mynd 6 sýnir
aldursdreifingu sjúklinga, sem komu á húð-
og kynsjúkdómadeild Heilsuvemdarstöðvar
Reykjavíkur 1987 og 1990.
UMRÆÐA
Ókleift er að greina klamydíusýkingar
frá sýkingum af völdum annarra baktería
nema með aðstoð rannsóknastofu.
Sýklarannsóknadeild Landspítalans var eina