Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1991, Síða 10

Læknablaðið - 15.12.1991, Síða 10
374 LÆKNABLAÐIÐ staðfestingarprófum, sem gerð hafa verið á deildinni, athugaðar og reynt að meta hvort notkun þeirra gæti gert Chlamydiazyme®- prófin nothæf til skimunar. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Allar klamydíurannsóknir, sem gerðar voru á sýklarannsóknadeild Landspítalans árin 1987 og 1990 voru athugaðar. Niðurstöður ræktana og Chlamydiazyme®-prófa voru bomar saman, þegar sýni höfðu verið tekin í báðar rannsóknimar samtímis. Arið 1987 varð fyrir valinu því það var síðasta árið, sem kvennadeild Landspítalans sendi fjölda sýna til ræktunar og 1990 vegna þess að þá hófst notkun staðfestingarprófa með Chlamydiazyme®-prófunum. Ekki var vitað í öllum tilvikum með hvaða hætti sýni voru tekin, en tilmæli sýklarannsóknadeildarinnar voru þau, að ef um útferð frá þvagrás var að ræða, skyldi sýni tekið úr útferðinni fyrst í lekandaræktun en síðan klamýdíuræktun og Chlamydiazyme® síðast. Ef ekki var um útferð frá þvagrás að ræða var sýnatökuröðin eins, nema hvað sýni til lekandaræktunar var tekið síðast. Ræktanir og Chlamydiazyme®- próf voru framkvæmd eins og áður hefur verið lýst (1). Staðfestingarpróf byggja í stuttu máli á eftirfarandi: Þegar Chlamydiazyme®-próf er jákvætt er það endurtekið og jafnframt gert próf til samanburðar með prófefnum, sem einþátta músamótefnum gegn C. trachomatis hefur verið bætt í. Ef svörun í Chlamydiazyme®-prófinu er sértæk hindra músamótefnin hana, en ef svörunin er ósértæk krosssvörun við mótefnavaka annarra baktería hindrast hún ekki og telst prófið þá hafa verið falskjákvætt. Hindrun telst marktæk þegar hún er meiri en 50%, þ.e. ef tölugildið, sem fæst við aflestur prófsins, lækkar um 50% eða meira telst prófið hafa verið jákvætt, annars falskjákvætt. Staðfestingarprófin voru gerð samkvæmt fyrirmælum framleiðanda, eins og lýst var af Moncada (11), nema hvað prófið var af hagkvæmnisástæðum aðeins gert þegar Chlamydiazyme® var jákvætt og lægra eða jafnt og 1.400. Ekki þótti ástæða til þess að gera staðfestingarpróf ef niðurstaðan var milli 1.400 og 2.200 þar sem ræktun og Chlamydiazyme@-prófum bar mjög vel saman ef Chlamydiazyme®-prófið var hærra en 1.400. Útreikningar á næmi, sértækni og spágildum prófa voru gerðir með venjulegum hætti eins og lýst er í bók Hrafns Tuliniusar (12). NIÐURSTÖÐUR A árunum 1987 og 1990 voru ræktanir og Chlamydiazyme®-próf gerð samtímis í 5559 tilvikum, 3255 sinnum á árinu 1987 og 2304 sinnunr 1990 (tafla I). Ræktun var jákvæð hjá 354 körlum og 217 konum fyrra árið en 249 körlum og 142 konum seinna árið. Árið 1987 komu 1949 sýnapör frá kynsjúkdómadeildinni (60%), þar sem sýni höfðu verið tekin í bæði prófin samtímis, 1287 frá kvennadeild Landspítalans (39%) og rúmt 1 % slíkra sýnapara kom frá öðrum aðilum. Árið 1990 voru nánast öll sýnin frá kynsjúkdómadeildinni og aðeins fimm pör komu annars staðar frá. Table I. Summary of Chlamydiazyme results on 3255 specimens in tlie year 1987 and 2304 from 1990 from patients who liad botli culture and Chlamydiazyme® done. 1987 1990 Male Female Male Female Number of test sets.................................... 1440 1815 1418 886 Culture positive........................................ 354 217 249 142 Prevalence ........................................... 24.5% 12% 17.5% 16% Chlamydiazyme positive.................................. 290 250 169 135 Number of false positive C............................... 20 54 4 10 Number of false negative C............................... 84 21 80 17 Sensitivity .......................................... 76% 90% 68% 88% Specificity .......................................... 98% 97% 99.5% 98.5% PVP*.................................................. 93% 78% 97.5% 92.5% PVN'*................................................. 93% 98.5% 93.5% 98% PVP=Predictive value of a positive. **PVN=Predictive value of a negative.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.