Læknablaðið - 15.12.1991, Side 18
382
LÆKNABLAÐIÐ
í töflu 2 er sýnt hvers eðlis augnskaðinn var. í
14 tilfellum var áverkinn mar á auga (contusio
oculi), undantekningarlaust með blæðingu
í forhólfi og átta höfðu einnig blæðingu í
augnbotni. Tveir hlutu slysadrer (cataracta
traumatica). Einn fékk svo slæma holund á
auga (perforatio oculi) að fjarlægja þurfti það.
Einn var með bruna á yfirborði beggja augna
eftir blys. Tveir hlutu auk augnáverkans brot
á andlitsbeinum. Hjá þeim báðum var orsökin
»tívolíbombur«.
Á mynd 3 er sýnt um hvaða áramót óhappið
átti sér stað. Ein áramót skera sig verulega úr,
1987-88, en þá slösuðust fimm einstaklingar
alvarlega, þar af þrír vegna »tívolíbomba«. Á
sömu mynd má einnig sjá að sex áramót hafa
verið án alvarlegra augnáverka.
Hvemig vegnaði þessum sjúklingum hvað
varðar sjón?
Sjúklingahópnum má í raun skipta í tvennt.
Annars vegar þeir sjö sem slösuðust á árunum
1978-82. Þeir höfðu allir náð eðlilegri sjón
við útskrift af sjúkrahúsi. Hins vegar þeir átta
sjúklingar sem slösuðust 1985-89. Þeir hafa
allir utan einn skerta sjón eftir slysið. Hjá
einum þeirra þurfti að fjarlægja auga strax
eftir slysið og einn hefur alblint auga, báðir
hlutu þeir áverka vegna »tívolíbomba«. Tveir
ungir drengir mynduðu þétt slysadrer. Hjá
öðrum hefur skýið verið fjarlægt, og er sjón
þar nú 6/6 með snertilinsu en hinn hefur færst
undan aðgerð. Hinir fjórir hafa allir skemmdir
á sjónudíl (macula retinae) og því varanlega
sjóndepru.
Öllum hefur verið fylgt eftir í að minnsta
kosti eitt ár (mynd 4).
UMRÆÐA
I könnun sem gerð var á nýgengi innlagðra
augnslysa á augndeild Landakotsspítala
á níu ára tímabili, 1971-1979 (5), kemur
fram að 20 einstaklingar meiddust þegar
þeir báru eld að púðri, blysi, hvellsprengju,
flugeldi eða hvellhettu. Langflestir hinna
slösuðu voru drengir á aldrinum 10-12
ára. Afleiðingamar voru yfirleitt brunar á
andliti og framhluta augans, sem orsökuðu
ekki varanlegan augnskaða. Athugun okkar
sýnir að sama er uppi á teningnum fyrri
hluta rannsóknartímabilsins, þar sem enginn
alvarlegur augnskaði á sér stað. Umskipti
verða um áramótin 1987-1988, þegar almennt
Table 2. Type of eye injury caused by fire-work, among
15 lcelandic individuals injured in the years 1978-1991.
Type of injury Number of individuals
Contusion of eyeball 14
Rupture of eye 1
Traumatic cataract 2
Superficial burn 1
Macular injury 4
Fracture of face bones 2
Fig. 3. Year of accident. Distribution of 15 fire-work
injuries hospitalized in lceland in the years 1978-91.
Number of patients
■ Injuries 78-'84 Visual acuity
□ Injuries ’85-’91
Fig. 4. Visual outcome of 16 fire-work injured eyes among
15 hospitalized individuals in Iceland in the years 1978-
91.
er farið að nota mjög öfluga skotelda,
svokallaðar tívolíbombur. Þau sömu áramót
slasast fimm einstaklingar alvarlega á auga,
þar af þrír vegna »tívolíbomba«. Töluverðar
umræður og blaðaskrif urðu þá um hættuna
af notkun flugelda og í framhaldi af því voru
»tívolíbombur« bannaðar. Aftur á móti voru