Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.1991, Side 26

Læknablaðið - 15.12.1991, Side 26
388 LÆKNABLAÐIÐ (6-8) gáfu ekki tilefni til þess að ætla að notkun þeirra væri útbreidd hér á landi. Fyrstu rannsóknimar (7,8) voru þó þeini annmarka háðar, að þær studdust ekki nema að litlu leyti við lyfjamælingar og í þeirri síðustu (6) var ekki leitað að ólöglegum ávana- og fíkniefnum nema hjá hluta sjúklinganna. Ekki er því útilokað, að neysla þeirra hati verið algengari en þar kom fram. I rannsókn þeirri, sem hér er skýrt frá, var leitað að ólöglegum ávana- og fíkniefnum í blóði 84% allra einstaklinga, sem vitað er til að hafi leitað læknishjálpar vegna eitrunar á 12 mánaða tímabili og ætti hún því að gefa marktækar upplýsingar um útbreiðslu þessara efna. Sjálfseitranir eru með algengustu bráðatilfellum á móttökudeildum sjúkrahúsa víða um heim. Viðamikil rannsókn á sjálfseitrunum í Osló árið 1980 leiddi í ljós árlegt nýgengi 2.8 af 1000 íbúum (°/oo), 3.1 °/oo hjá körlum og 2.6%' hjá konum (4). Nær það til allra eitrana, þar á meðal dauðsfalla utan sjúkrahúsa. Alls skráðum við 185 eitrunartilfelli á rannsóknartímabilinu og þannig var nýgengi á Reykjavíkursvæðinu og til viðbótar létust 22 utan sjúkrahúsa á tímabilinu (2). Er nýgengi eitrana því 1.6%o miðað við 130.000 íbúa höfuðborgarsvæðisins og því virðist hér vera um minna vandamál að ræða en í höfuðborg Noregs. Fjöldi innlagna vegna sjálfseitrana í núverandi rannsókn er 3.5% af innlögnum á lyflækningadeild Borgarspítalans á ári og eru öldrunardeildir undanskildar til samræmis við fyrri rannsóknir (7,8). Samkvæmt þeim var tíðnin nokkru meiri eða 4.5% á ári á árunum 1971-1981. Vafasamt er þó að draga þá ályktun að um raunverulega fækkun sjálfseitrana sé að ræða því hafa ber í huga að hér er einungis um eitt ár að ræða og fá tilfelli. Greinilegt er í rannsókn okkar að lyfjaeitranir eru hlutfallslega algengastar meðal yngra fólks, þannig er stærsti aldurshópurinn 20- 29 ára, 33.5% og alls eru 75% á aldrinum 20-49 ára. Hlutfall þessa aldurshóps í þjóðfélaginu er einungis 43%. Er þessi aldursdreifing mjög svipuð og í þremur fyrri lyfjaeitrunarrannsóknum hér á Borgarspítalanum (6-8). í rannsókn þessari voru konur heldur fleiri en karlar (kynhlutfall 1:1.25), en fyrri rannsóknir hafa sýnt, að eitranir eru yfirleitt heldur algengari meðal kvenna en karla (6-8). Niðurstöður lyfjamælinga (tafla VI) sýna, að enn sem fyrr eru það alkóhól og benzódíazepínsambönd, sem valda flestum eitrunum. Athyglisvert er hve margir sjúklingar eru með kódeín í blóðinu, en frekari rannsóknir bentu til þess að kódeínið hafi verið hluti samsettra verkjalyfja. Niðurstöðumar benda þannig ekki til þess að um beina misnotkun kódeíns hafi verið að ræða. Olögleg ávana-og fíkniefni fundust einungis í blóði sex sjúklinga. I blóði fimm þeirra fannst amfetamín en kannabis í blóði þriggja. í tveimur tilfellum var bæði um neyslu kannabis og amfetamíns að ræða. Tveir þeirra sem misnotuðu amfetamín höfðu einnig tekið mikið magn benzódíazepínsambanda, en samnotkun þessara lyfja er vel þekkt. Athyglisvert er að ekki fannst alkóhól í blóði hjá neinum þessara sjúklinga og er neysla þessara ávana- og fíkniefna því ekki blönduð áfengisneyslu. Einnig getur það skýrt gott meðvitundarástand þessara sex misnotenda við komu á slysadeild. Engin merki fundust um kókaínneyslu, enda er útbreiðsla þess hér á landi að öllum líkindum lítil miðað við amfetamín og kannabis (2). Kókaín veldur oft alvarlegum eitrunum og eru dauðsföll af völdum þess vel þekkt. Hér á landi varð eitt dauðsfall af völdum kókaíneitrunar árið 1989 (2) og er það eina dauðsfallið, sem vitað er til að hér hafi orðið af völdum ólöglegra ávana- og fíkniefna. Mikið hefur verið rætt um vaxandi notkun ólöglegra fíkniefna í þjóðfélaginu. Lögregla og forsvarsmenn meðferðarstofnanna fyrir áfengissjúklinga telja sig verða vara við vaxandi vandamál og umræðan endurspeglast í fjölmiðlum. Samkvæmt skráningu lækna

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.