Læknablaðið - 15.12.1991, Page 38
398
LÆKNABLAÐIÐ
RÆKTUÐ HÚÐ SEM ÁGRÆÐSLA Á SÁR
Höfundur: Jens Kjartansson. St. Jósefsspítali HafnarfrÖi
Ræktuð húð er ný aðferð til að þekja stór sár og var
fyrst notuð á sjúklinga árið 1981. Aðferðin hefur þróast
og breiðst út og þykir ein mesta framför í meðferð
brunasjúklinga sem fram hefur komið á seinni árum. Ekki
er þó vitað að aðferðinni haft verið beitt á sjúklinga með
útbreidda húð- og mjúkvefjaskaða eftir meningokokka
sepsis.
Fjögurra ára stúlka með fullþykktar húð- og
mjúkvefjadrep sem aðallega var bundið við útlimi og
þakti um 35% af yfirborði bamsins var meðhöndluð
með tíðum skurðaðgerðum til hreinsunar á sárum og þau
síðan grædd með ræktaðri húð. Ágræðsla var framkvæmd
samtímis á öll sár þremur vikum eftir innlögn.
Húðsýni var tekið frá sjúklingi þremur dögum eftir
innlögn og sent til Stokkhólms þar sem húðræktunin
fór fram. Er húðbætumar voru tilbúnar voru þær fluttar
til Reykjavíkur 46 stykki (x 60 cm). Sjö klukkustunda
flutningur virtist ekki hafa veruleg áhrif á gæði húðarinnar
sem sjá má af 85% töku húðarinnar viku eftir ágræðslu.
Fullyrt er að nota megi ræktaða húð frá septískum
sjúklingi með góðum árangri. Rætt verður um hugsanlega
notkun þessa meðferðarforms á Islandi í framtíðinni.
ÞRJÚ HUNDRUÐ OPNAR HJARTAAÐGERÐIR Á
ÍSLANDI 1986-1990
Höfundur: Þórarinn Arnórsson. Landspítalanum,
Reykjavík
Þrjú hundruð opnar hjartaaðgerðir voru gerðar á
Landspítalanum í Reykjavík, á tímabilinu frá júní 1986
til febrúar 1990. Af þessum voru 278 (93%) gerðar vegna
angina pectoris, aortalokuskipti voru 11, aðgerðir vegna
ASD voru átta (þrjár sinu. ven. def.) og aðrar aðgerðir
voru þrjár (tvær atrial myxoma og ein vegna vegetationa á
miturloku).
Meðalaldur angina sjúklinganna var um 60 ár og
meðalfjöldi græðlinga á hjartað var nærri fjórum. Það
vom átta (2.9%) enduraðgerðir gerðar á sjúklingum,
sem höfðu verið skomir áður annars staðar vegna angina
pectoris. Vinstri art. mamm. intema var notuð í 90.3%
angina aðgerðanna, en báðar art. mamm. int. voru notaðar
í 2.2% tilvika.
Dánartíðni eftir aðgerð við »aortocoronary bypass« var
2.5% (sjö sjúklingar) innan 30 daga, en 0.7% (tveir
sjúklingar) eftir 30 daga.
Fyrir aortalokuskiptin hafa verið notaðar BS-monostrut
lokur nr. 21-27 með góðum árangri, nema einn sjúklingur
dó tveimur vikum eftir aðgerð vegna hjartadreps og
»fjöllíffærabilunar«. í því tilviki var loka nr. 21 of stór
fyrir lokuhringinn og sjúklingurinn þarfnaðist aortocor.
bypass. Þetta virtist í upphafi ætla að ganga vel, en
þróaðist síðan inn á verri veg.
Endurvíranir á stemum voru gerðar í tveimur tilvikum
(0.7%) vegna ígerðar í bringubeini, en í fjórum tilvikum
(1.4%) vegna »stemum insufficiens«.
Flestum öðrum sjúklinganna famaðist ágætlega og flestir
hafa farið í mjög vel uppsetta þjálfun að Reykjalundi
nærri tveimur mánuðum eftir aðgerð, með góðum árangri.
TRANSHIATAL OESOPHAGECTOMIA
LANDAKOTSSPÍTALA 1985-1990
Höfundar: Sigurgeir Kjartansson, Þórarinn Arnórsson
Fyrirlesari: Sigurgeir Kjartansson
Transhiatal Oesophagectomia (TH) hefur verið beitt í
vaxandi mæli við meðferð illkynja æxla í vélinda og
cardiasvæði síðustu 15 árin. Aðgerðin felst í því að
vélinda er skrælt neðan frá um hiatus oesophagei og að
ofan frá hálsi, og vélindismagatenging gerð um hálsskurð,
en brjósthol ekki opnað eins og áður hefur tíðkast við
Thoraco abdominal (TT) aðgerð.
Frá mars 1985 hafa 16 sjúklingar komið til transhiatal
(TH) aðgerðar vegna illkynja æxla í vélinda á
Landakotsspítala.
PAD: Adenoca: 12, Sq. cell ca: 3, Melancoma: 1.
Aldur: 36-79 ára, þar af 4 yfir 70 ára aldur.
Aðgerðartími, blóðmissir, spítalavist eftir aðgerð og
lífshorfur eru metin og borin saman við hefðbundna,
transthoracal/thoracoabdominal (TT) aðgerð.
Tveir sjúklingar dóu innan viku eftir aðgerð, 65 ára karl
úr embolia pulm og 75 ára kona úr öndunarbilun. Fjömtíu
og níu ára karl, áður geislaður vegna sq cell ca, fékk
leka frá ductus thoracicus (DT). Brjósthol var opnað
og DT undirbundinn, hann komst ekki til heilsu og lést
fjórum mánuðum eftir aðgerð með útbreidd meinvörp
í kviðarholi, lifur og lungum. Mediastinal abscess hjá
67 ára karli og framangreind DT sköddun vom einu
alvarlegu skakkaföll er þörfnuðust aðgerða.
Af 16 sjúklingum eru nú sjö lífs, 3-51 mánuði eftir
aðgerð.
Útkoman er í samræmi við reynslu annarra, að því er
ráðið verður af erlendum yfirlitsgreinum og virðist sem
TH aðgerð standist fyllilega samanburð við hefðbundna
transthoracal aðgerð á okkar stutta reynslutíma.
MELANOMA í VÉLINDA
Höfundar: Þórarinn Arnórsson, Sigurgeir Kjartansson.
Landakotsspítali
Fyrirlesari: Þórarinn Arnórsson
Sjúklingur er 65 ára maður með tveggja vikna sögu
um kyngingarörðugleika. Við speglun greinist hjá
honum primert melanoma í vélinda. Þann 24.08.89
er gerð transhiatal oesophagogastric resection og
oesophagogastrostomia auk pyloroplastic.
Þá greindust engin meinvörp, en tveimur mánuðum síðar
leggst hann aftur inn og nú með fjölda meinvarpa bæði í
lifur og lungum.
Hafin er meðferð með Alfa Interferon, Adriamycin auk
Cimetidin, að ráði Sigurðar Bjömssonar, með mjög
góðum árangri.
Fyrsta apríl 1990 hefur hann engin sjáanleg meinvörp og
heilsast í heildina all vel.