Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.1994, Page 6

Læknablaðið - 15.02.1994, Page 6
50 LÆKNABLAÐIÐ bandarískar rannsóknir sýnt aukningu frá 7% á árunum 1935-1965 (2), í allt að 48% 1980-1984 (9). Aukningin hefur verið skýrð með aukinni notkun tölvusneiðmynda og ómskoðana við rannsóknir á kviðarholi. Sjúklingar sem greinast af tilviljun hafa yfirleitt sjúkdóm á lægri stigum og horfur þeirra því betri (9,16). I Bandaríkjunum hefur nýgengi nýrnafrumukrabbameins aukist meira en dánarhlutfall og lífshorfur því vænkast (17,18). Skýringin gæti verið aukinn fjöldi æxla sem greinist fyrir tilviljun. Rannsóknir okkar hér á landi hafa hins vegar sýnt að aldursstaðlað nýgengi nýrnafrumukrabbameins hefur haldist óbreytt síðustu tvo áratugina (19) og á það einnig við um dánarhlutfall vegna nýrnafrumukrabbameins (20). Markmið okkar var að kanna lífshorfur sjúklinga með nýrnafrumukrabbamein í vel skilgreindu þýði og athuga hvaða þættir hefðu forspárgildi fyrir lífshorfur. Einnig að kanna með hvaða hætti æxlin greinast fyrir tilviljun og hvaða áhrif það hefur haft á lífshorfur sjúklinga með nýrnafrumukrabbamein hér á landi. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Samkvæmt Krabbameinsskrá Krabbameinsfélags Islands greindust 550 sjúklingar með nýrnakrabbamein (ICD-7 180,0, ICD-9 189,0 ) á íslandi frá 1. janúar 1971 til 31. desember 1990 (19). Nýmafrumukrabbamein voru flest, eða 472, og bleikfrumuæxli. Rannsóknin nær einungis til sjúklinga sem greindust á lífi með nýrnafrumukrabbamein (n=403) eða bleikfrumuæxli (n=5). Auk upplýsinga úr Krabbameinsskrá Krabbameinsfélags Islands var farið í gegnum sjúkraskrár. Alls greindust 408 sjúklingar, 236 karlar (58%) og 172 konur (42%), (hlutfall kk/kvk 1,4). Meðalaldur við greiningu var 65,5 ár (staðalfrávik 13,6 ár), en aldursbil 17 til 96 ára. (Nánari upplýsingar um efnivið rannsóknarinnar og vefjafræði æxlanna er að finna í heimild 19. Þar er auk þess að finna upplýsingar um tíma frá upphafi einkenna til greiningar, sökk og blóðrauðamælingu auk upplýsinga um hlutfall sjúklinga með smásæja blóðmigu þegar greining var gerð). Af 408 sjúklingum gengust 308 (76%) undir brottnámsaðgerð á nýra, þar af 233 með lækningu í huga (radical nephrectomy). I aðgerðunum var nýrað fjarlægt ásamt aðlægri fitu, Gerotasfelli (fascia) og nýrnahettu. Að jafnaði var ekki gerð skipulögð eitlataka en grunsamlegir eitlar voru fjarlægðir. I 11 tilvikum (2,7%) var um könnunaraðgerð að ræða, það er æxlið í nýranu reyndist ekki skurðtækt. Alls létust átta sjúklingar innan 30 daga frá aðgerð. Skurðdauði er því 2,6%.Tveir sjúklingar til viðbótar (0,6%) dóu skömmu eftir aðgerð (1,5-2,5 mánuðir) og var dauði þeirra rakinn til aðgerðar. Af 10 sjúklingum sem létust voru sex skornir á fyrri áratugnum en fjórir á þeim síðari (p>0,1). Aðra meðferð (geisla og/eða krabbameinslyf) skömmu eftir greiningu fengu 49 sjúklingar (12%) með meinvörp. Flestir þeirra fengu geislun (n=32) og lyfjameðferð (n=31), þar af þrír meðferð með interferóni. Nýrnaslagæð var lokað með innspýtingu í nýmaslagæð (embolisation) á röntgendeild hjá níu sjúklingum. Sjúklingunum var skipt í tvo hópa, A og B, eftir því hvernig þeir greindust. I hópi A vom sjúklingar sem greindust með einkenni sem rekja mátti til nýrnafrumukrabbameinsins. í hópi B voru tilviljunargreindir sjúklingar. Með tilviljun er átt við æxli, sent fundust við myndrannsóknir eða aðgerðir sem gerðar voru án þess að nokkur grunur væri um nýrnafrumukrabbamein. Þeir sem greindust í kjölfar uppvinnslu á smásærri blóðmigu og háu sökki en voru einkennalausir tilheyra einnig hópi B. Öll æxlin utan tvö (vegna ófullnægjandi upplýsinga) voru stiguð eftir stigunarkerfi Robsons (7). A stigi I er æxlið bundið við nýrað sjálft, það er innan nýrnahýðis (capsula renis). Ef æxlið vex út í fitu umhverfis nýrað (perinephric fat), en er samt innan Gerotasfells, er um stig II að ræða. A stigi III er vöxtur í nýrnabláæð/neðri holæð og/eða eitlum nálægt nýranu (local lymph nodes). Ifarandi vöxtur í nálæg líffæri og/eða fjarmeinvörp einkennir stig IV. Sérstaklega var athuguð stigun í hópum A og B og hvort breytingar á stigun hefðu átt sér stað á rannsóknartímabilinu. Lífshorfur sjúklinga við greiningu voru reiknaðar nteð aðferð Kaplan-Meier (21). Um er að ræða svokallaðar hráar tölur (crude/absolute probability of survival) og miðast útreikningar við 30. júní 1992. Sjúklingar sem létust vegna aðgerðar voru teknir með í útreikninga. Forspárgildi lífshorfa var fundið nteð

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.