Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 34

Læknablaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 34
76 LÆKNABLAÐIÐ aldursdreifing kvenna var hinsvegar nokkuð jöfn. Elsti sjúklingurinn var 70 ára og sá yngsti aðeins fárra klukkustunda gamall. Meðalaldur var 30,5 ár. Fjöldi útlendinga sem þyrlan flutti var 14 og nemur það tæpum 20%. Samkvæmt mati á líkamlegu ástandi fluttra töldust 10 einstaklingar heilbrigðir (tafla III). Voru það allt sjómenn sem bjargað hafði verið úr sjávarháska. I flokki II., þar sem ekki var um alvarleg veikindi að ræða, voru sjö sóttir í óbyggðir, átta á haf út og þrír í þéttbýli. Astand sjúklinga telst alvarlegt í 61% tilvika. Staðsetningu áverka og tegundir sjúkdóma þeirra sem fluttir voru má sjá í töflu IV. Til mats á ástandi sjúklinga um borð í þyrlu var annarsvegar slagþrýstingur og hinsvegar meðvitund sjúklinga notuð. Við komu á sjúkrahús reyndust fleiri sjúklingar með meðvitund og færri sjúklingar með slagþrýsting undir 100 mmHg en mælst höfðu um borð. Meðferð um borð í þyrlu fólst í uppsetningu æðaleggja hjá 46 sjúklingum, vökvagjöf fengu 41, súrefni 38, lyf 26 og blóð fengu tveir sjúklingar. Gert var að brotum/sárum hjá 20 Tafla III. Flokkun sjúklinga eftir líkamlegu ástandi (ASA-flokkun). Flokkur Fjöldi Hlutfall (%) i 10 (14) n 18 (25) in 21 (29) IV 20 (28) V 3 (4) Alls 72 (100) sjúklingum, barkaþræðing var gerð hjá þremur þeirra og einn var hjartahnoðaður. Þrettán sjúklingar fengu enga sérstaka meðferð og meðferð var ekki skráð í sex tilvikum. Afdrif fluttra: Þegar athuguð voru afdrif þeirra sem fluttir voru kom í ljós að 54 voru lagðir inn á sjúkrahús (tafla V). Meðferð á slysadeild fengu sjö og fóru þeir síðan til síns heima, af þeim þurftu fjórir eftirlit eða endurhæfingu. Tíu einstaklingar fóru beint heim eftir flutning með þyrlu og voru það allt sjómenn sem bjargað var ómeiddum úr sjávarháska. I einu tilfelli báru lífgunartilraunir á vettvangi ekki árangur og var sjúklingur látinn áður en til flutnings kom. Af þeim 54 sjúklingum sem lögðust inn á Tafla IV. Staðsetning áverka og tegunda sjúkdóma. Hafa skal í huga að sumir sjúklinganna höfðu fleiri en einn áverka og/eða sjúkdóm. Áverkar Sjúkdómar Heili 10 Brjósthol 8 Hjartasjúkdómar 3 Hðfuökúpa 2 Kviðarhol 4 Sjúkdómar í kvið 7 Augu 2 Mjaömagrind 5 Ofkæling 4 Andlit 16 Utlimir 1 Ondunarerfiðleikar nýbura 3 Hryggur 11 Mjúkpartar 15 Annað*) 7 Heilbrigðir 10 *) Lyfjaeitrun, blóötappi í lungum, blæðing á meðgöng, nær drukknun, heilablæðing, krampar. Tafla V. Afdrif sjúklinga og skipting þeirra milli deilda og spítala. Deild/spítali Borgarspítali Landspítali Landakot FSA*) Alls Lyfjadeild 4 2 2 0 8 Skurðdeild 17 6 4 2 29 Heila- og taugaskurðdeild 9 - - 9 Háls-, nef- og eyrnadeild 2 - 0 2 Barnadeild - 4 0 0 4 Kvennadeild - 2 - 0 2 Meðferð án innlagnar 6 - - 1 7 Heim án viðkomu á spítala - - - - 10 Látnir fyrir flutning - - - - 1 Alls 38 14 6 3 72 *) Fjóröungssjúkrahúsið á Akureyri.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.