Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.02.1994, Side 45

Læknablaðið - 15.02.1994, Side 45
LÆKNABLAÐIÐ 85 þá veiru í blóði blóðgjafa og koma með því í veg fyrir smitburð í flestum tilfellum. Um miðjan níunda áratuginn stóð mikil og vaxandi ógn af eyðniveiru. Arið 1985 var tekin í notkun rannsóknartækni við skimun á blóðgjöfum í blóðbönkum. Nokkur töf varð á að Blóðbankinn fengi leyfi til að hefjast handa við skimun fyrir eyðnimótefni vegna togstreitu um hvar ætti að framkvæma þessa skimun. Blóðbankinn hóf skimun allra blóðgjafa frá áramótum 1986, en hafði þá fengið skimun framkvæmda á Borgarspítalanum síðustu þrjá mánuði ársins 1985. Síðan hafa verið skimaðar um 90.000 blóðeiningar í Blóðbankanum og engin greinst með merki unt eyðnisýkingu. Vitað er um fjóra sjúklinga, sem sýkst höfðu af eyðniveiru vegna blóðgjafa, áður en skimpróf vegna þessarar veirusmitunar hófust. Nýr búnaðitr til smitvarna. Mikilvægt framfaraspor var stigið í smitvarnarannsóknum Blóðbankans í september 1992. Þá lauk uppsetningu og prófunum á sjálfvirkum rannsóknarbúnaði frá Abbott-fyrirtækinu til að skima blóð fyrir eyðnimótefnum (HlV-1 og 2) og tveimur lifrarbólguveirum B og C (HBV og HCV) (mynd 2). Blóðbankastarfsmenn eru mjög ánægðir með þessa stórfelldu eflingu smitvarna með hátæknibúnaði, sem hefur reynst mjög vel. Með þessum búnaði kom líka varabúnaður, sem er tiltækur ef bilun verður í aðaltækjum. Skömmtunarvélina sem fylgir Abbott- samstæðunni, má stilla inn á staðlaða smábollabakka (microtiter-plate) með sérstöku forriti og gefur þetta marga nýja rannsóknarntöguleika. Þess má geta að ofangreindur búnaður fellur vel að tölvuskráningu þeirri, sem ráðgert er að nýta þegar tölva Landspítalans verður tekin í notkun í ársbyrjun 1994. Blœðurum forðað frá eyðnismiti. Enginn dreyrasjúklingur hérlendis hefur smitast af eyðniveiru. A vegum Blóðbankans var keyptur storkuþáttur VIII (factor VIII) frá 1973-1988 af Blóðbanka Rauða krossins í Helsinki í Finnlandi. Það má teljasta hin mesta gæfa að tekist hafi að forðast eyðnisýkingar í dreyrasjúkum með kaupum á ”finnska faktornum”. Margir hafa átt um sárt að binda vegna eyðni hjá dreyrasjúkum í löndum, sem framleiddu Blóöhlutavinnsla 1983-1992 Einingar Mynd 3. Framleiðsla ú blóðhlutum á árunum 1983-1992. eða keyptu á heimsmarkaði storkuþátt VIII, sem var sýktur af eyðniveiru. Blóðhlutavinnsla. Árið 1968 varð mikilvæg tæknibreyting í blóðbankastarfseminni. Hætt var að nota glerfiöskur og gúmmíslöngur og plastpokar og plastslöngur voru eingöngu notaðar upp frá því. Þetta gerði mögulegt að nýta blóðið með nýjum og öruggari hætti. Veigamikið verkefni nútíma blóðbanka er vinnsla blóðhluta. Plastpokar, sem eru samtengdir með plastslöngum í lokuðu kerfi, gera mögulegt að hluta sundur blóðið í sérstakri skilvindu. Þannig er hægt að einangra rauð blóðkorn í einum poka, blóðflögur í öðrum og blóðvatn (plasma) í þeim þriðja. Á þennan hátt er hægt að láta þrjá til fjóra sjúklinga njóta blóðgjafar frá einum og sama blóðgjafa. Blóðvatn má hluta í sundur í tvo aðalþætti: Storkuþátt VIII og albúmín. Þessir tveir þættir eru mikilsverðir í lækningarskyni og eru auk þess geymanlegir í frysti um lengri tíma. Við blóðlækningar þykir æskilegt að gefa sjúklingi aðallega og helst eingöngu þann hluta blóðs sem hann skortir. Til að framkvæma þetta verður að hluta blóðið sundur í eftirtalda blóðhluta: 1. Rauðkornaþykkni. 2. Blóflöguþykkni. 3. Blóðvatn. 4. Kuldabotnfall (storkuþáttur VIII og trefjaefni). Við árlega söfnun á 12.000 blóðeiningum má því fræðilega séð vinna 48.000 blóðhlutaeiningar til að fullnægja breytilegum þörfum sjúklinga. Framleiðsla á blóðhlutum hefur verið um eða yfir 20.000 einingar 1990-1992 (mynd

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.