Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 46

Læknablaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 46
86 LÆKNABLAÐIÐ Heilblóð - rauðkornaþykkni □ Heilblóð 13 Rauðkornaþykkni Mynd 4. Framleiðsla á heilblóði og rauðkomaþykkni á árunum 1983-1992. Blóðflöguvinnsla Einingar Mynd 5. Framleiðsla ú blóðflöguþykkni ú úrunwn /983- 1992. 3). Þar af eru rauðkornaþykkni um 12.000 árlega (mynd 4) en blóðflöguþykkni um og yfir 4.000 á sama tíma (mynd 5). Síðamefndi blóðhlutinn er að verulegu leyti notaður fyrir hvítblæðisjúklinga á lyfjameðferð. Framleiðsla á fersku blóðvatni hefur verið um 3.000 einingar. Vegna húsnæðisþrengsla eru Blóðbankanum settar skorður hvað viðvíkur nýtingu á blóðvatni til vinnslu á prótínþáttum til lyfjaframleiðslu. Erfðafrœðideild: Allt frá því að systkinabarnarannsóknir voru í gangi 1972- 1975 á vegum Erfðafræðinefndar Háskólans, Blóðbankans og fleiri stofnana, hafa ýmsar sérrannsóknir og vísindarannsóknir verið gerðar í erfðafræðideild. Sú deild hefur þróast með ýmsum rannsóknarverkefnum, sem gerðar hafa verið áætlanir um í samvinnu við legu- og rannsóknardeildir sjúkrahúsa hérlendis og erlendis. Ýmsar breytingar hafa orðið á erfðafræðideild í áranna rás. Sú mikilvægasta er tvímælalaust að þar hefur verið byggð upp rannsóknarstarfsemi fyrir DNA rannsóknir frá hausti 1985 og hefur sú uppbygging þegar sannað gildi sitt við greiningu og rannsóknir margra erfðasjúkdóma hérlendis. Fyrirsjáanlegt er að framangreint rannsóknarsvið verður í örri þróun á nýbyrjuðum áratugi. Meðal stærstu viðfangsefna deildarinnar hafa verið samfelldar rannsóknir á arfgengum heilablæðingum vegna cystatín C mýlildis (amyloid). Þetta er umfangsmesta rannsóknarverkefni erfðafræðideildar frá 1978 og hefur lengst af verið unnið í náinni samvinnu við taugalækningadeild Landspítalans og Rannsóknastofu Háskólans við Barónsstíg. Helstu samvinnuaðilar erlendis um þessar rannsóknir hafa verið prófessor Anders Grubb og samstarfsmenn í Malmö og Lundi í Svíþjóð og prófessor Blas Frangione og samstarfsmenn á meinafræðideild læknamiðstöðvar New York háskóla (New York University Medical Centre). Arangur þessara rannsókna er með bestu dæmum um þann ávinning, sem getur náðst með notkun erfðatækni og lífefnarannsókna við sjúkdómarannsóknir. Rannsóknir þessar eru jafnframt lýsandi dæmi um mikilvægi fjölþjóðasamvinnu í læknavísindum. Ekki má heldur gleyma fjárhagsstuðningi líknarfélaga eins og Heilaverndar og Blóðgjafafélags Islands og styrkjum Vísindaráðs. Sá stuðningur hefur skipt sköpum við uppbyggingu og starfsemi deildarinnar. í erfðafræðideild Blóðbankans eru gerðar Ijölþættar sameindaerfðafræðirannsóknir og ýmsar frumuónæmisrannsóknir og frumuræktanir. Vefjaflokkarannsóknir voru gerðar þar 1976-1991. Síðustu árin hafa kjarnsýrurannsóknir (DNA rannsóknir) orðið sífellt stærra viðfangsefni í læknisfræði eins og öðrum greinum líffræði. Meginviðfangsefni DNA greiningartækni í læknisfræði hafa verið erfðasjúkdómar, sem erfast samkvæmt Mendelslögmáli, svokallaðir eingenasjúkdómar. En tækni þessari er í vaxandi mæli beitt við ýmsa algengari sjúkdóma í seinni tíð, þar sem arfbundinn breytileiki eðlilegra lífefna er talinn skipta máli í mynd og þróun sjúkdóma. Þetta eru kallaðir fjölgena sjúkdómar og má nefna gigtsjúkdóma, insúlínháða sykursýki, ýmsa ónæmissjúkdóma og sum krabbamein sem dæmi. I starfi sínu við ættfræðirannsóknir hefur deildin notið mikillar aðstoðar Erfðafræðinefndar Háskóla Islands.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.