Læknablaðið - 15.03.1994, Qupperneq 7
LÆKNABLAÐIÐ
93
Mælistaðirnir eru tveir, báðir í fjærenda
(distal) framhandleggsbeina (mynd 1). Fyrst
finnur mælirinn, sem er tölvustýrður, þann
stað milli framhandleggsbeina þar sem 8 mm
aðskilja þau (15). Þannig er tryggt að allir
eru mældir á sama stað óháð því hversu
nákvæmlega handleggurinn er staðsettur
í mælitækinu. Fyrst er mælt nœrlœgt við
þennan stað, sem er fremsti þriðjungur sveifar
og ölnar (ulna og radius) (distal results).
BMD-D (bone mineral density distal results)
er meðaltal fjögurra þversniðsmælinga. A
þessum stað er aðallega (95% (16)) hart bein
(cortical bein). Síðan er mæld beinþéttnin
í allra fremsta hluta sveifar (ultra distal
radius) sem er að nokkru leyti (35-40% (16))
frauðbein (trabecular bein) (14,15). BMD-U er
fengið sem meðaltal fjögurra þversniða.
Mældur var víkjandi (non-dominant)
handleggur einu sinni og heildarmælingin tók
um það bil 10 mínútur.
Nákvæmni mælisins var athuguð daglega
með því að mæla gervibein (phantom
measurement).
Atján einstaklingar voru mældir í tvígang til
þess að meta nákvæmni mælisins in vivo, það
er að segja frávik í mælingum (coefficient of
variation). Niðurstöður þessara mælinga má
sjá í töflu I.
Tafla I. Nákvœnmi mœlisins.
BMD-D BMD-U
Staðalfrávik 0,012 0,015
Frávik í % 2,30 2,40
BMD = bone mineral density (g/cm2). D = distalt. U = ultra distalt.
Samkvæmt geislaskammtamælingu
Geislavarna ríkisins er svæðið sem geislað er í
tækinu um 25 cm2. Reyndist yfirborðsgeislun
(skin dose) vera 0,2 mGy í geislasviðinu, sem
var umreiknað í geislaálag sem 0,06 mSv
(midline-dose), eða um 0,05 mSv (skin dose)
fyrir 100 cm2 svæði. Vegið geislaálag fyrir
allan líkamann var svo lítið að það taldist
óverulegt.
Mæld var hæð og þyngd með SECA
hæðarmæli og vog.
Tölfrœðileg úrvinnsla: Athugun á fylgni
beinþéttni við aðra eiginleika var gerð með
fjölþáttagreiningu (multivariate analysis)
með forritinu BMDP. Gert var ráð fyrir
normaldreifingu í útreikningum.
I línuritunum var bein lína fundin með
línulegri nálgun (linear regression) með
lágmörkun á summu mismunanna í öðru veldi.
Samanburður á marktækum mun milli
meðaltala var gerður með t-prófi.
NIÐURSTÖÐUR
Rannsóknarhópurinn samanstóð af 347 konum
á aldrinum 20-84 ára; meðalaldur 53,6 ár,
staðalfrávik (SF) 13,8 ár sem ekki var vitað
til að tækju lyf né hefðu sjúkdóma sem hafa
áhrif á efnaskipti beina.
Tíðahvörf voru skilgreind sem aldur við
síðustu tíðir og liðnir væru að minnsta kosti
sex mánuðir frá síðustu tíðum. í þessurn hópi
voru 203 konur. Meðalaldur við tíðahvörf var
48,6, SF 4,0 ár.
Tafla II. Aldursbundnar breytingar á beinþéttni ásamt hœð og þyngd þátttakenda.
Aldurshópar Ár N Hæð cm Þyngd kg BMD-D g/cm2 BMD-U g/cm2 Aldur ár
M SF M SF M SF M SF M SF
20-24 8 168,5 6,6 68,8 13,1 0,456 0,022 0,358 0,035 21,6 2,3
25-29 19 166,9 4,4 63,5 8,5 0,494 0,053 0,389 0,057 26,9 1,5
30-34 14 166,6 4,4 64,2 8,9 0,469 0,059 0,361 0,052 32,3 1,3
35-39 16 167,1 5,4 66,6 8,2 0,492 0,051 0,386 0,047 37,0 1,3
40-44 16 165,6 3,3 67,1 11,6 0,464 0,063 0,381 0,051 42,1 1,0
45-49 58 166,1 5,4 68,5 9,3 0,475 0,052 0,383 0,061 47,8 1,1
50-54 42 166,1 5,0 68,9 9,4 0,457 0,058 0,373 0,058 51,9 1,3
55-59 49 164,0 5,2 68,9 11,3 0,410 0,074 0,312 0,066 57,4 1,3
60-64 55 162,8 6,0 71,0 10,2 0,372 0,074 0,291 0,063 62,0 1,3
65-69 30 161,8 5,5 67,8 10,6 0,341 0,064 0,271 0,053 66,5 1,3
70-74 25 163,0 6,4 68,9 11,7 0,332 0,066 0,262 0,042 72,2 1,4
75-79 5 158,2 6,4 64,2 11,0 0,299 0,065 0,274 0,086 76,2 1,8
80-84 10 155,9 6,0 65,8 10,1 0,293 0,074 0,258 0,053 82,3 1,6
BMD-D = bone mineral density dista I results. BMD-U = bone mineral density ultra distal results. M = meðaltal. SF = staðalfrávik.
N = fjöldi.