Læknablaðið - 15.03.1994, Blaðsíða 21
LÆKNABLAÐIÐ
107
með blóðþurrðarsjúkdóm í hjarta við fyrstu
heimsókn.
Þessu til viðbótar var gerð sérstök athugun
á þeim hópi þátttakenda sem greindust
við fyrstu heimsókn með blóðþurrðarhelti
og/eða blóðþurrðarsjúkdóm í hjarta. Þessum
hópi var skipt í tvennt, þá sem greindust
með blóðþurrðarhelti og þá sem eingöngu
höfðu blóðþurrðarsjúkdóm í hjarta. Logistísk
aðhvarfsgreining var notuð til þess að meta
samband skráðra breytna við hlutfallslíkur
þess að vera í fyrri hópnum.
Marktekt var miðað við 5% mark.
Forritasafnið EGRET (7) var notað.
NIÐURSTÖÐUR
A rannsóknartímanum 1968-1986 fengu
alls 172 karlar staðfesta greiningu læknis á
blóðþurrðarhelti og þar af 96 við fyrstu komu.
Eftirfarandi jafna fékkst fyrir algengi;
P / (100-P) = 8,95 * 10 ** (-11) * 0,9556 **
C * 1,894 ** A * 0,9957 ** (A**2)
Þar sem P er algengi (%)
C er ártal (tveir síðustu stafir)
A er aldur (ár)
(* merkir margföldun og ** merkir
veldishafningu)
Þessar niðurstöður eru sýndar á mynd 1 fyrir
sextuga og sjötuga karla sem fall af ártali.
Lækkun algengis frá 1968-1986 var 55%.
Meðal sjötugra var lækkunin úr 6,7 í 3,1% og
meðal sextugra úr 3,2 í 1,4%.
Mynd 2 sýnir aldursbundið algengi árin 1968
og 1986. Algengi óx mjög hratt frá fimmtugu
fram undir sjötugt en eftir það dró nokkuð úr
aukningunni.
Við seinni komur voru 76 greindir til viðbótar
með blóðþurrðarhelti. Eftirfarandi jafna fékkst
fyrir nýgengi:
I = 6,14 * 10 ** (-6) * 0,9257 ** C * 2,067
** A * 0,9945 ** (A**2)
þar sem I er nýgengihlutfall (ný tilfelli á
ári meðal 100.000 karla)
C er ártal (tveir síðustu stafir)
A er aldur (ár)
Algengi (%)
• 60ára
Mynd 1. Algengi blóðþurrðarhelti í 60 og 70 ára körlum
1968-1986.
Algengi (%)
• 1986
Mynd 2. Aldursbundið aigengi í 40-75 ára körlum 1968
og 1986.
Nýgengi (á 100.000 karla)
• 50 ára
Mynd 3. Nvgengi blóðþurrðarhelti i 50 og 70 ára körlum
1970-1984.'