Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.1994, Page 9

Læknablaðið - 15.03.1994, Page 9
LÆKNABLAÐIÐ 95 BMD (ultra distal) g/cm2 Mynd 3. Samband BMD-U (bone mineral density uitra distal) við aldur. en þá verður hratt beintap sem virðist byrja fyrst allra fremst í framhandleggnum þar sem meira er af frauðbeini (40% (16)). Fyrri rannsókn á beinþéttni í hryggjarliðbolum (100% frauðbein) íslenskra kvenna bendir til þess að beintap þar hefjist strax eftir tíðahvörf (13) sem kemur vel heim við að frauðbein hefur mun hraðari umsetningu en hart bein (2,17). Ýmsir telja að hraði beintaps í frauðbeini sé allt að sjöfaldur, miðað við það sem á sér stað í hörðu beini fyrstu fimm til sex árin eftir tíðahvörf (18). Á fyrsta áratug eftir tíðahvörf virðast íslenskar konur tapa verulegu beinmagni eða um 20% í framhandleggsbeinum (BMD-U) og yfir 30% í hryggjarliðbolum (mynd 4 ). Þessar niðurstöður koma heim og saman við aðrar rannsóknir sem hafa sýnt hraðara beintap því meiri sem frauðbeinshluti er (14). Þessi rannsókn okkar er þversniðsrannsókn (cross sectional) af mismunandi aldurshópum og segir því ekki jafn óyggjandi sögu og langtíma (longitudinal) rannsókn á sömu einstaklingum. Erlendar rannsóknir hafa sýnt að í flestum tilvikum má stöðva þetta beintap með oestrogen gjöf (19) og verður því að túlka að stærsti hluti beintaps fyrstu árin eftir tíðahvörf stafi af oestrogen skorti. Eftir 65 ára aldur virðist beintapið hins vegar orðið línulegt um 1% á ári. Ýmislegt bendir til þess að þetta beintap sé tengt lélegri kalknýtingu með aldrinum (minna kalkfrásog frá görnum og breyting á D-vítamínbúskap) sem geti leitt til afleidds kalkvakaóhófs (secunder hypeiparathyroidismus) með auknu beintapi (20,21). Því er hugsanlegt að koma megi í veg fyrir þetta að hluta með því að tryggja nægilega kalk og D-vítamín inntöku aldraðra (22,23), en skoðanir eru þó skiptar um mikilvægi kalkinntöku til að hindra beinþynningu (24,25). Einnig er margt sem

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.