Læknablaðið - 15.03.1994, Qupperneq 16
102
LÆKNABLAÐIÐ
svæðisbundinna rannsókna og upplýsinga
Heilbrigðisráðuneytisins á landsnotkun á
róandi lyfjum og svefnlyfjum. Líkleg skýring
var sú að notkunin í Reykjavík væri meiri
en landsmeðaltal, sem myndi þá jafna út litla
notkun úti á landsbyggðinni. Tómas Zoega
og félagar gerðu nýlega athugun á notkun
róandi lyfja og svefnlyfja utan sjúkrahúsa í
Reykjavík (8) með því að athuga lyfseðla í
apótekum í marsmánuði 1989. Niðurstöður
þeirra sýndu mun meiri notkun á því svæði
en í þessari athugun og sambærilegum
athugunum úti á landsbyggðinni (1). Þar eð
niðurstöður fyrir skilgreinda dagskammta
voru aðeins gefnar fyrir 1000 íbúa 15 ára
og eldri eru þær ekki alveg sambærilegar
við aðrar rannsóknir. Höfundar hafa því
gefið okkur nýja útreikninga úr þessum
efniviði þar sem miðað er við 1000 íbúa
(persónulegar upplýsingar úr heimild 8). A
mynd 3 má sjá samanburð niðurstaðna á
nokkrum stöðum á landinu. Niðurstöðurnar
frá Suðurnesjum, Hafnarfirði og Reykjavík eru
fengnar á sama hátt, með athugun á lyfseðlum
sem berast til apóteka en fyrir ísland í heild
er miðað við heildsölutölur. Eins og fram
kemur á myndinni er notkun á róandi lyfjum
meiri í Reykjavík en landsmeðaltal segir til
um, eins og búast mátti við. Hins vegar er
landsmeðaltal fyrir svefnlyf mun hærra en
fyrir öll þau svæði sem athuguð hafa verið.
Skýringin gæti hugsanlega verið sú að notkun
þessara lyfja sé mikil á sjúkrahúsum og
hjúkrunarheimilum. Þó ber að hafa í huga
að í magntölum frá Egilsstaðalæknishéraði
DDD/1000 íbúar/dag
Mynd 3. Samanburður ú notkun róandi iyfja og
svefnlyfja á nokkrum stöðum á landinu. Niðurstöður frá
Suðurnesjum og Hafnarfirði erufrá árinu 1986, en hinar
frá 1989.
er notkun inniliggjandi sjúklinga meðtalin
og hafa ber fyrirvara á samanburði vegna
mismunandi aðferða við gagnasöfnun eins og
vikið hefur verið að í þessari grein.
A síðustu árum hefur áhugi farið
vaxandi á rannsóknum og athugunum á
gæðum upplýsinga og skráðra gagna í
heilbrigðisþjónustunni. Okkur er ekki kunnugt
um sambærilega athugun hér á landi eða
erlendis. Tölvuskráning gagna af þessu tagi
verður sífellt fullkomnari og því ætti að verða
auðveldara að gera rannsókn svipaða þessari á
fieiri svæðum.
ÞAKKIR
Rannsókn þessi var styrkt af Vísindaráði og
Rannsóknasjóði Háskóla Islands. Höfundar
færa starfsfólki Heilsugæslustöðvarinnar á
Egilsstöðum sérstakar þakkir fyrir veitta
aðstoð.
SUMMARY
Tlte use of tranquillizers attd hypnotics.
Quality assessinent of drug information from
the medical records and from the pharmacy in
Egilsstadir district during a four year period.
Different methods have been used to study
drug utilisation, i.e. analysis of a)sales statistics
frorn pharmacies, producers and wholesales,
b)prescriptions from pharmacies, c)medical
records or d)by counting the number of tablets
consumed by a patient over a certain period of
time. Each of these methods has its advantages
and disadvantages, but the reliability of the data
and repeatability is of importance.
Egilsstadir district is located on the east part of
Iceland. The district is geographically isolated
from the rest of the island with only one Health
Centre and one pharmacy assessable to the
inhabitants. A study was performed to measure the
use of tranquillizers and sedatives/hypnotics from
medical records and the sales statistics by the local
pharmacy.
The study period was 4 years, 1986-89, with an
average study population of 2949. The medical
records in the health centre are partly conrputerized
and partly in a paper record. Through the
computerized part of the record all individuals
prescribed a tranquillizer and/or a hypnotic during
the study period were identified. Their records
were then pulled and names of drugs and number
of tablets and quantity in mg recorded for each
of the study year separately. The medical records
and nurses diaries in the local nursing home were
pulled and studied the same way. The pharmacy