Læknablaðið - 15.11.1994, Blaðsíða 14
450
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
Fjöldi
Fæðingarár
Mynd 2. Aldurs- og kyndreifing þeirra sem fundisl liafa með mótefni gegn lifrarbólguveiru C.
hafi notað eiturlyf í æð. Áður hefur verið bent
á að lifrarbólguveiru C sýkingar hérlendis
tengist fíkniefnaneyslu (25), en ekki voru not-
uð staðfestingarpróf í þeirri rannsókn, svo að
taka verður niðurstöðurnar með vissri varúð.
Af sýnum frá Hjartavernd og Rannsókna-
stofu Háskólans í veirufræði reyndust aðeins
0,20% hafa mótefni gegn lifrarbólguveiru C.
Er þetta lágt algengi og lægra en fundist hefur
víðast erlendis í löndum Evrópu og N-Amer-
íku. Rannsakaður sýnafjöldi var0,6% þjóðar-
innar, sem er afar hátt hlutfall miðað við sam-
bærilegar athuganir. Við athugun á þeim
þremur sem reyndust sýktir í algengiskönnun-
inni reyndust tveir hafa fengið blóðgjafir, ann-
ar þeirra margar, og sá þriðji var innflytjandi
frá Evrópu. Vegna takmarkaðs fjölda í úrtak-
inu og þar af leiðandi mótefnajákvæðra er erf-
itt að meta með nákvæmni algengi lifrarbólgu
C veiru. Miðað við Poisson tölfræðidreifingu
verður að gera ráð fyrir að algengi sé allt að
0,7% hérlendis (26). Er hugsanlegt að sýking-
artilfellin séu ekki óháð hvert öðru og gæti þá
algengið verið nokkru hærra. Einnig er mögu-
legt og samrýmist það raunar vel niðurstöðum
þessarar rannsóknar að lifrarbólguveira C sé
ekki staðbundin hérlendis og um tilfallandi
sýkingartilfelli erlendis frá sé að ræða.
í forrannsókn frá árinu 1989 meðal 3784
blóðgjafa hérlendis, þar sem mæld voru mót-
efni gegn lifrarbólguveiru C með fyrstu kyn-
slóðar aðferðum (Ortho ELISA), reyndust 24
Tafla IV. Flokkun lifrarbólguveirii Csýktra eftir smitleiðam.
Flokkun samkvæmt smitleiðum Kyn Fjöldi
Sprautufíklar kk 52
kvk 24
Blóðþegar kk 11
kvk 9
Blóðhlutaþegar kk 4
kvk 1
Einstaklingar með kk 10
kjarnamótefni gegn lifrarbólguveiru C (ekki í öðrum hópum) kvk 9
Óþekkt kk 3
kvk 1
Samtals 124
(0,7%) vera jákvæðir eða á mörkum þess, en
við síðari athugun á þessum einstaklingum
með endurbættum annarrar kynslóðar aðferð-
um reyndust aðeins 4 (0,1%) bera mótefni
gegn veirunni. Er þessi tíðni mjög í samræmi
við niðurstöður þessarar rannsóknar.
Það er athyglisvert að í rannsókn þessari
hefur tekist að finna smitleið eða áhættuhóp
nær allra þeirra sem bera lifrarbólguveiru C
smit. Eru þeir sýktu nær alltaf í einhverjum
áhættuhópi um blóðsmit. Vekur þetta upp tvær
mikilvægar spurningar. Sú fyrri er hvort lifrar-
bólguveira C sé fremur nýkomin til landsins,
það er að segja annað hvort á síðastliðnum
áratugum þegar farið var að nota blóðgjafir og