Læknablaðið - 15.03.1995, Síða 8
220
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
Ritstjórnargrein
Rannsóknatengt framhaldsnám
á íslandi
í janúar síðastliðnum var haldin 7. ráðstefna
um rannsóknir í læknadeild Háskóla íslands.
Þessar ráðstefnur hafa farið vaxandi að um-
fangi og gæðum og síðasta ráðstefna vakti
verulega athygli meðal annarra deilda Háskóla
Islands. Svipaðar vísindaráðstefnur hafa einn-
ig verið haldnar á vegum Læknafélags íslands
og sérgreinafélaga, svo sem lyflækna, skurð-
lækna, augnlækna, heimilislækna auk annarra
og endurspegla vaxandi þrótt og áhuga á rann-
sóknarstarfsemi meðal íslenskra lækna.
Formlegt rannsóknatengt nám var tekið upp
við læknadeild Háskóla íslands fyrir um það bil
10 árum að frumkvæði Helga Valdimarssonar
prófessors, núverandi deildarforseta lækna-
deildar. Þá var komið á fót BS námi þar sem
gert var ráð fyrir að stúdent ynni að rannsókn-
arverkefni undir umsjón kennara deildarinnar
eða sérfræðinga á stofnunum tengdum lækna-
deild og jafngilti það nokkurn veginn einu
námsári. Þó var gert ráð fyrir að læknaneminn
gæti innritast í BS nám jafnhliða hefðbundnu
námi í deildinni, ef hann gæti sýnt fram á að
hann hefði varið til þess tíma er svaraði til heils
skólaárs og fengið birta vísindagrein um rann-
sóknarvinnuna. Á þessu tímabili hafa alls 18
læknanemar lokið BS prófi með birtri grein í
viðurkenndu tímariti og opinberum fyrirlestri.
Mörg þessara BS verkefna hafa reyndar verið
svo mikil að umfangi að nálgast hafi MS verk-
efni við aðrar deildir Háskóla íslands.
Síðustu þrjú árin hefur vinna að rannsóknar-
verkefni í 10 vikur verið hluti af námi lækna-
nema á fjórða námsári og hefur þessu nám-
skeiði lokið með ritgerð og kynningu á verk-
efnum á sérstakri rannsóknarráðstefnu. Mörg
þessara verkefna hafa síðan orðið uppistaða í
greinum sem birst hafa hér í Læknablaðinu.
Þetta rannsóknarnámskeið hefur einnig leitt til
aukins áhuga læknanema á vísindavinnu og
hafa fjölmargir læknanemar unnið áfram að
viðkomandi rannsóknarverkefni til BS prófs.
Fyrir þremur árum voru samþykktar reglur
um MS nám (meistarapróf) við læknadeild Há-
skóla íslands. Rétt til að innritast í það nám
hafa þeir sem lokið hafa BS prófi í líffræði,
læknisfræði, hjúkrunarfræði eða sjúkraþjálfun
frá Háskóla íslands eða öðru háskólaprófi sem
læknadeild telur að feli í sér viðeigandi undir-
búning til námsins. MS nám er þannig 60 ein-
inga framhaldsnám og rannsóknarverkefnið
skal vera minnst 30 námseiningar en mest 45,
en skipulögð námskeið 15-30 einingar. Náms-
kandídat skal dvelja minnst tvö kennslumisseri
við læknadeild Háskóla íslands eða stofnun
henni tengdri, en námið getur að hluta farið
fram við aðra deild Háskóla íslands eða við
erlenda háskóla samkvæmt samningi. Námið
felur í sér þjálfun í vísindalegum vinnubrögð-
um og er ritgerð byggð á eigin rannsóknum
hluti námsins. Náminu lýkur síðan með munn-
legu prófi (opinn fyrirlestur). MS nám er því að
jafnaði tveggja ára nám, enda þótt því megi
ljúka á einum vetri og tveimur sumrum. Tveir
líffræðingar hafa nú þegar lokið MS námi við
læknadeild en 14 eru innritaðir til þessa náms,
flestir þeirra líffræðingar, einn hjúkrunarfræð-
ingur og einn læknanemi sem þegar hefur lokið
BS prófi við læknadeild. Þessir MS kandídatar
vinna rannsóknarverkefni sín við mismunandi
deildir eða stofnanir læknadeildar (Tilrauna-
stöðina að Keldum, Rannsóknarstofu HÍ í
ónæmisfræði, Rannsóknarstofu HÍ í lífeðlis-
fræði, Rannsóknarstofu HÍ í frumulíffræði,
Rannsóknarstofu í heilbrigðisfræði og fleiri).
Læknadeild hefur þó ekki fengið sérfjárveit-
ingu til rannsóknatengds náms eða framhalds-
náms við deildina og hefur það tafið að komið
hafi verið upp skipulögðum námskeiðum fyrir
MS nema. Þó hafa rannsóknarstofnanir innan
læknadeildar konrið upp eigin námskeiðum
sem nýtast til MS náms, svo sem Rannsóknar-
stofa í ónæmisfræði og fleiri, en að öðru leyti
hafa MS nemar þurft að sækja þessi námskeið
til annarra deilda háskólans eða til útlanda.
Læknadeild greiðir umsjónarkennara í MS