Læknablaðið - 15.03.1995, Page 17
(felódipín )
-forðalyf við háþrýstingi einu sinni á dag.
Feldíl (felódipín)
Framleiöandi: OMEGA FARMA hf., Kársnesbraut 108, 200 Kópavogur.
Foröatöflur; C 02 D E 10. Hver foröatafla inniheldur: Felodipinum INN 5 mg
eða 10 mg. Eiginleikar: Kalsíumblokkari. Hefur veruleg útvíkkandi áhrif á grannar
slagæðar en sáralítil áhrif á veggi bláæða og minni áhrif á hjarta en aðrir
kalsíumblokkarar. Hefur væg þvagræsandi áhrif og eykur útskilnað natríums. Aðgengi
er nálægt 15%. Vegna forðaverkunar lyfsins helst blóðþéttni stöðug í a.m.k. 24 klst.
Um 99 % próteinbundiö. Helmingunartími 15-30 klst. eftir aldri. Lyfiö brotnar niður í
lifur. Ábendingar: Háþrýstingur. Frábendingar: Meðganga og brjóstagjöf.
Aukaverkanir: Aðallega vegna æðaútvíkkandi áhrifa lyfsins. Höfuðverkur.
Andlitsroði. Stööubundinn svimi. Ökklabjúgur vegna háræðaútvíkkunar. Aukaverkunin
er háð skammtastærð. Eftir meöferð með lyfinu hefur sést væg ofholdgun hjá
sjúklingum með mikla tannholdsbólgu/tannslíðursbólgu. Þetta má hindra með góðri
tannhirðu. Milliverkanir: Fenýtóín, karbamazepín og barbítúrsýrusambönd minnka
en címetidín eykur þéttni lyfsins í sermi. Varúö: Lyfiö getur í undantekningartilfellum
valdið lágum blóðþrýstingi og hröðum hjartslætti. Skammtastæröir handa
fullorönum: Upphafsskammtur er 5 mg á dag en viðhaldsskammtur getur veriö allt
að 20 mg daglega. Foröatöflurnar má taka einu sinni á dag. Þær á að gleypa og
drekka vatn með. Hvorki má skipta, tyggja né mylja forðatöflurnar. Lyfiö er ekki
ætlaö börnum.
o
0MEGA FARMA
íslenskt almcnningshlutafélag
um lyfjaframleiðslu, stofnað 1990
Pakkningar:
Foröatöflur 5 mg: 30 stk.; 100 stk.
Foröatöflur 10 mg: 30 stk.; 100 stk.