Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.03.1995, Side 46

Læknablaðið - 15.03.1995, Side 46
AUGMENTIN amoxícíllín + klavúlansyra ÁKJÓSANLEGT FYRSTA LYF ÞEGAR IVIEÐHÖNDLA Á SÝKINGAR í EFRI LOFTVEGUM AUGMENTIN (SmithKline Beecham, 870191) RO Eiginleikar: Lyfið er blanda af amoxicillíni og klavúlansýru, sem breikkar verkunarsvið amoxicillíns, sem þar með verður virkt gegn mörgum sýklategundum, sem framleiða beta-laktamasa, t.d. klasasýklum, H. influenzae, Branhamella catarrhalis og B. fragilis, N. gonorrhoeae og mörgum Gram-neikvæðum stöfum. Amoxicillín hefur sýkladrepandi verkun, en klavúlansýra hefur nánast enga beina verkun á sýkla. Bæði efnin frásogast vel frá meltingarvegi. Helmingunartími er u.þ.b. 1 klst. Útskiljast að mestu með þvagi í virku formi. Ábendingar: Sýkingar af völdum sýkla, sem eru næmir fyrir lyfjablöndunni. Frábendingar: Ofnæmi fyrir penicillíni og skyldum lyfjum, mononucleosis. Saga um gulu eða skerta lifrarstarfsemi, sem tengist gjöf á Augmentin eða skyldum lyfjum. Meðganga og brjóstagjöf: Virku innihaldsefni lyfsins fara bæði yfir fylgju og a.m.k. amoxicillín útskilst i brjóstamjólk, en efnin eru skaðlaus fyrir fóstur og brjóstmylkinga. Eins og ávallt, skal gæta varúðar við lyfjagjöf á meðgöngutíma, einkum á fyrsta þriðjungi meðgöngu. Aukaverkanir: Niðurgangur, ógleði og uppköst koma fyrir. Einkenni frá meltingarvegi eru minni, ef lyfið er tekið fyrir máltíð. Húðútbrot (auknar líkur við veirusýkingar). Alvarlegt ofnæmi, svo sem toxic epidermal necrolysis, lost og urticaria sjást. Nokkrum tilvikum af pseudomembranous colitis hefur verið lýst. Hætta skal gjöf ef útbrota verður vart. Lifrarbólga og gula (stíflumynd) getur komið fyrir í einstaka tilvikum, einkum hjá fullorðnum og öldruðum sjúklingum og getur verið alvarleg. Einkenni koma oftast fram meðan á meðferð stendur, en getur orðið alit að 3 vikum eftir að meðferð er hætt. Lifrarbólgan gengur oftast yfir, en í einstaka tilvikum hefur hún leitt til dauða. Alltaf hefur verið um alvarlega veika sjúklinga að ræða með undirliggjandi sjúkdóma og á mörgum öðrum lyfjum. Væg hækkun lifrarenzýma hefur sést hjá sjúklingum, sem eru á meðferð með ampicillíni og skyldum lyfjum, en óvíst er um þýðingu þessa fyrirbæris. Candidasýkingar í meltingarvegi (sjaldan). Fækkun á blóðflögum og hvítum blóðkornum svo og lenging á blæðingatíma og prothrombintíma hefur verið lýst. Milliverkanir: Próbenecíð seinkar útskilnaði amoxicillíns, en ekki útskilnaði klavúlansýru. Því er ekki mælt með samtímis gjöf próbenecíðs og Augmentin. Samtímis gjöf ampicillíns og allópúrínóls eykur líkur á útbrotum, hugsanlegt er, en þó ósannað, að hið sama gildi um amoxicillín. Varúð: Við skerta nýrnastarfsemi (kreatínínklerans < 30 ml/mín.) þarf að minnka skammta. Gæta skal varúðar hjá sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi. Vegna aspartaminnihalds mixtúrunnar skal gæta varúðar hjá sjúklingum með fenýlketonureu. Skammtastærðir handa fullorðnum: 250 mg þrisvar sinnum á dag. Við alvarlegri sýkingar og lungnasýkingar 500 mg þrisvar sinnum á dag. - Æskilegt er að gefa lyfið fyrir máltíð. SmithKline Seecham | Pcnisillín V/G I < E < E ■>. o 5 < l.kynsl. Kcfalósp. | Kcfúroxfm I 1 1 | e £ ‘3 E c •c I S S. pneumoniae H. injluenzae M. calarrhalis Strept. pyogenes Staph. aurcus Fj- st.ofJ,“ ( m>95% Hjjj|60-95% | |<57r Sýklafræðideild Lsp., KGK, Janúar 1995 Skammtastærðir handa börnum: Mixtúra 25 mg + 6,25 mg/ml (1 ml mixtúra = 25 mg amoxicillín): Líkams- Dagsskammtur 20 mg/kg 40 mg/kg þyngd (venjulegur skammtur) 5-6 kg 1Vamlx3 2Va ml x 3 7-9 kg 2 ml x 3 4 ml x 3 10-12 kg 2Va ml x 3 5 ml x 3 Mixtúra 50 mg + 12,5 mg/ml; (1 ml mixtúra = 50 mg amoxicillín): Líkams- þyngd Dagsskammtur 20 mg/kg (venjulegur skammtur) 40 mg/kg 7-9 kg 1 ml x 3 2 ml x 3 10-12 kg 1Vamlx3 2Vz ml x 3 13-19 kg 2Va ml x 3 5 ml x 3 20-30 kg 4 ml x 3 7Va ml x 3 > 30 kg 5 ml x 3 10 ml x 3 Athugið: Fullbúin mixtúra hefur 7 daga geymsluþol í ísskáp (2-8C). Pakkningar Mixtúruduft 25 mg + 6,25 mg/ml: 80 ml og verð: Mixtúruduft 50 mg + 12,5 mg/ml: 80 ml Töflur 250 mg + 125: 16 stk. (þynnupakkað Töflur 500 mg + 125 mg: 16 stk. (þynnupakkað

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.