Læknablaðið - 15.03.1995, Síða 48
256
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
íðorðasafn
Toxemia
Heitið toxemia hefur verið
notað í tengslum við sýkingar.
Iðorðasafn lækna gefur þýðing-
una blóðeitrun og þessa skil-
greiningu: Það ástand að íblóði
eru eiturefni sem ýmist eru
mynduð ífrumum líkamans eða
komin úr örverum. Grísku for-
liðirnir tox-, toxi-, toxico- og
toxo- eru sömu merkingar og ís-
lenski orðhlutinn eitur-. Sagan
segir þó að gríska orðið toxon
merki bogi og af þvi sé komið
heitið toxicon, sem notað var
um eiturefni borin á örvarodda.
Flest læknisfræðileg heiti sem
byrja á tox- vísa í eitur, en af
heitum sem vísa til boga má
nefna toxoplasma, bogfrymil,
og toxocara, bogaþráðorm.
Toxin er skilgreint þannig: Efni
sem framleitt er aflífveru (dýri,
plöntu eða örveru) og er öðrum
lífverum skaðlegt eða eitrað.
Notkun hugtaksins toxemia í
tengslum við sýkingar byggir á
þeirri hugmynd að ýmsir sýklar
framleiði eiturefni sem geti
komist í blóðrás við sýkingu.
Heitið toxemia hefur verið not-
að þannig að það vísi til þeirrar
sjúkdómsmyndar, sem fram
kemur þegar eiturefni sýkla
hafa komist í blóðrás. Heppi-
legra gæti þó verið að þrengja
merkinguna til samræmis við
bacteremia, þannig að toxemia
vísi einungis til þess að eiturefni
séu til staðar í blóði, en ekki til
þess klíníska ástands sem af
slíku leiðir. Heitið toxicosis gæti
tekið við því hlutverki að vísa í
klíníska ástandið, sem af tox-
emia leiðir. Pað yrði þá skil-
greint sem: sjúklegt ástand sem
stafar af eiturefnum í blóði.
Blóðeitrun er gott íslenskt heiti,
lækna 63
en spyrja má þá hvort það eigi
betur við um toxemia eða toxi-
cosis. Með tilliti til samræming-
ar við þýðingar annarra heita,
þar sem síðari liðurinn -emia
kemur fyrir, má benda á eitur-
dreyra, samanber natríum-
dreyra, og eiturblæði, saman-
ber hvítblæði. Hitt er svo annað
mál að heitið toxemia virðist nú
fremur lítið notað í tengslum við
sýkingar.
Rétt er að vara við læknis-
fræðilegri notkun heitisins blóð-
eitrun um vessaæðabólgu,
lymphangitis. Hjá leikmönnum
er það oft kallað blóðeitrun
þegar rauð bólgustrik hafa
myndast úr frá graftarkýli eða
bólgu á útlimum. Vissulega get-
ur slík bólga verið fyrirboði
blóðeitrunar eða blóðsýkingar,
en læknar ættu að temja sér fulla
nákvæmni í notkun íðorða.
Sjúklingar þeirra hljóta einnig
að geta sætt sig við þá skýringu,
að rauðu strikin tákni vessaæða-
bólgu, en að blóðeitrun fylgi
stundum í kjölfarið.
Sepsis
Sakleysisleg umfjöllunar-
beiðni er nú orðin að umtals-
verðu verkefni, en þetta er ein-
mitt það sem íðorðasmiðir
verða oft að gera, kynna sér
rækilega merkingu og notkun
þeirra orða og hugtaka, sem til
athugunar eru, auk annarra sem
þeim tengjast. Ekki er heldur
nóg að treysta á orðabækur því
að notkun og skilgreining fræði-
hugtaka breytast gjarnan í sam-
ræmi við nýja þekkingu á hverju
fræðasviði. Slíkar breytingar
skila sér oft seint inn í almennar
orðabækur.
Sepsis er einmitt eitt þeirra
heita og hugtaka, sem tekin
hafa verið til endurskoðunar,
bæði vegna nýrrar þekkingar og
eins vegna misræmis í notkun
fræðiheitanna. Flett var upp í
tveimur þekktum kennslubók-
um í lyflæknisfræði, 19. útgáfu
af Cecil frá 1992 og 13. útgáfu af
Harrison frá 1994. Báðar virðast
forðast að nota hugtakið septi-
cemia. Cecil skilgreinir sepsis á
hefðbundinn hátt þannig: að
ýmsar graftarmyndandi eða aðr-
ir meinvirkir sýklar, eða eitur-
efni þeirra, finnist ( blóði eða
vefjum. Harrison hefur hins
vegar tekið upp nýja skilgrein-
ingu: sepsis er ástand sem felur í
sér almenn bólguviðbrögð gegn
innrás sýkla. Par er það sérstak-
lega tekið fram að innrás sýkla í
blóðrás sé ekki óhjákvæmilegur
þáttur í sepsis. Harrison bætir
við hugtökunum sepsis syn-
drome: ástand sem felur ísér al-
menn bólguviðbrögð gegn inn-
rás sýkla og líffœrabilun, og
septic shock: ástand sem felur í
sér almenn bólguviðbrögð gegn
innrás sýkla, líffœrabilun og
staðfestan lágþrýsting (hypo-
tension). Þegar gluggað var í
fleiri heimildir mátti finna hug-
tökin: clinically significant seps-
is, severe sepsis, systemic in-
flammatory response syn-
drome, multiple organ failure
og multiple organ dysfunction
syndrome. Ljóst er að umræðu
um sepsis er alls ekki lokið.
Jóliann Heiðar Jóhannsson