Læknablaðið - 15.03.1995, Side 57
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
263
Nýir sjúkdómar —
enn um tíðateppu
Breska læknablaðið (BMJ)
birtir reglulega yfirlitsgreinar
undir titlinum ABC greinar um
helstu greinar læknisfræðinnar.
Samkvæmt upplýsingum frá rit-
stjórninni eru þeir læknar helst
valdir til þess að skrifa þessar
greinar sem framarlega eru í
fræðum. í eina slíka skrifar dr.
Walman R. um afleiðingargjör-
þjálfunar (intensity training).
Samkvæmt rannsóknum hans
og dr. Mc Laxtelic yfirlæknis
bresku Olympíunefndarinnar
hefur komið í ljós að meðal úr-
vals íþróttakvenna þjást 30-
70% af tíðateppu. Bent er á að
ef þessi truflun verður langvinn
er veruleg hætta á varanlegri
tíðateppu, beinþynningu og
beinbrotum (1).
í greininni kemur fram að
þessa varð vart fljótlega eftir ár-
ið 1970. Greinarhöfundar sem
báðir hafa mikla reynslu af
þjálfun íþróttamanna, telja að
þjálfun úrvals íþróttamanna
hafi tekið verulegum breyting-
um eftir þann tíma, það er
margfalt lengri tíma er varið til
æfinga en áður. Þessar breyting-
ar eru raktar til mjög aukinnar
samkeppni, gífulegrar aukinnar
fjármögnunar, sjónvarpsauglýs-
inga og atvinnumennsku. Rafn
Líndal læknir sem er mikill
áhugamaður um íþróttalækn-
ingar, ritar grein í Læknablaðið
(2) og bendir á að nú sé farið að
ræða um „þríeyki“ íþrótta-
kvenna (the female athlete tri-
ad) sem einkennist af lystar-
stoli, tíðateppu og beineyðingu.
Bendir hann á úrræði til bóta.
Við Rafn erum sammála um
þessa fylgikvilla sem geta fylgt
gjörþjálfun eða ákefðarþjálfun
eins og Rafn kýs að nefna fyrir-
bærið. í grein minni (1) er dreg-
in fram tilgáta framangreindra
höfunda um að orsakir tíða-
teppu séu truflun á undirstúku
heilans, en Rafn telur að það sé
sannað. Frekari skýringar
Rafns á hormónaskiptum
treysti ég mér ekki að ræða um
og má vera að hann hafi rétt
fyrir sér þar. Rafn leiðir rök að
því að minnkun líkamsfitu valdi
ekki tíðateppu eins og bresku
höfundarnir telja, heldur sé um
að ræða hitaeiningaskort. Ég
treysti mér ekki til að taka af-
stöðu í því máli. Varðandi bein-
styrk er það rétt að hæfilegt álag
eykur beinstyrk en hætt er við
að úr beinstyrk dragi við mikla
beinþynningu sem getur verið
afleiðing „hömlulausrar“ þjálf-
unar! Aðalmálið er ekki að deila
um tilgátur hcldur er það mikil-
vægt að nú hefur í fyrsta sinn
verið vakin athygli á að veruleg-
ir fylgikvillar það er tíðateppa,
beinþynning og beinbrot meðal
ungra íþróttakvenna geta fylgt í
kjölfar gjörþjálfunar/ákefðar-
þjálfunar.
Við Rafn höfum orðið sam-
mála um að taka málið til athug-
unar og hefja fræðslu um þetta
mál. Ennfremur þarf að krefjast
mun meira lækniseftirlits með
úrvals íþróttamönnum en nú
gerist. Legg ég til að ÍSÍ taki
þetta mál til ítarlegrar athugun-
ar.
Ólafur Ólafsson landlæknir
Heimildir:
1. Ólafur Ólafsson. Er heilbrigði sái í
hraustum líkama öfugmæli?. Læknablaö-
iö 1995; 81: 76.
2. Rafn Líndal. Enn um tíðateppu.
Læknablaöiö 1995; 81: 192-4.
Frá stjórn LÍ
vegna ályktunar á aðalfundi
Svæfingalæknafélags íslands
í síðasta tölublaði Lækna-
blaðsins birtist ályktun frá að-
alfundi Svæfingalæknafélags
íslands þess efnis að félagið
ítreki fyrri áskorun til stjórnar
LÍ að fenginn verði óháður
aðili til að yfirfara starfsemi
læknafélaganna með tilliti til
sparnaðar í rekstri. Þcssi
ályktun var ekki send stjórn
LI beint. Hefði þó ekki talist
óeðlilegt. Hins vegar lesa
stjórnarmenn LÍ Læknablaðið
og vita því nú um ályktunina.
Því skal komið á framfæri að
sérstök nefnd á vegum stjórn-
ar LÍ kannar nú starfsemi
læknafélaganna með tilliti til
aukinnar hagræðingar ef
möguleg er. Það fer eftir nið-
urstöðum þessarar nefndar
hvort ástæða þykir til að gera
frekari úttekt og þá með
hvaða hætti. Álit nefndarinn-
ar verður lagt fyrir formannar-
áðstefnu nú í vor.