Læknablaðið - 15.05.1996, Qupperneq 10
366
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
Algengi mótefna
gegn
Helicobacter pylori á íslandi
Karl G. Kristinsson1’, Erla Sigvaldadóttir1’, Bjarni Þjóðleifsson2'
Kristinsson KG, Sigvaldadóttir E, Þjóðleifsson B
The prevalence of H. pylori antibodics in Iceland
Læknablaðið 1996; 82; 366-70
Helicobacter pylori causes gastritis and duodenal
ulcerations, and is possibly one of the causes of
gastric cancer. Diagnosis has relied on gastroscopy,
but witli the advent of reliable serological tests,
epidemiological studies have become easier. Previ-
ous studies have indicated a higher H. pylori in-
fection rate in Iceland than neighbouring countries.
To study this further, an H. pylori (acid glycine
extract) ELISA test was set up. Serum samples were
obtained from 387 individuals, aged three months to
97 years, mean 41 years (161 blood donors, 83 out-
patients, 64 ante natal clinic, 33 hospitalised child-
ren, 27 old people’s home and 19 college students).
Positive antibody titers were found in 151 (39%), of
which 14 were borderline. The prevalence increased
with age and was highest 75% in 60-69 years old, but
lowest 9% in the youngest age group. The preva-
lence of H. pylori antibodies appears to be higher
than in neighbouring countries, but lower than in
the developing countries, and Icelanders appear to
acquire the infection at a younger age than in the
neighbouring countries. This high prevalence is im-
portant in view of the high prevalence of gastric
cancer in Iceland.
Frá 1,sýklafræðideild og 21 lyfiækningadeild Landspítalans.
Fyrirspurnir, bréfaskriftir: Karl G. Kristinsson, sýklafræði-
deild Landspitalans, pósthólf 1465,121 Reykjavík. Netfang:
karl@rsp.is
Lykilorð: Helicobacter pylori, serology, epidemiology,
gastritis.
Efni greinarinnar hefur áður verið kynnt á XI. þingi Félags
íslenskra lyflækna og á sænska læknaþinginu (Riksstámm-
an).
Ágrip
Helicobacter pylori veldur magabólgu og
skeifugarnarsárum, og er mögulega ein af or-
sökum magakrabbameins. Greining sýkingar
hefur venjulega byggst á magaspeglun, en til-
koma nýrra prófa til mótefnamælinga hefqr
gert faraldsfræðirannsóknir einfaldari. Fyrri
rannsóknir hafa bent til hærri tíðni sjúkdóms-
ins á íslandi en í nágrannalöndunutn. Til að
afla nánari upplýsinga um algengi og faralds-
fræði sjúkdómsins hér á landi var sett upp mót-
efnapróf, þar sem mótefni í blóði voru mæld
með ELISA aðferð. Blóðsýni voru tekin frá
387 einstaklingum á aldrinum þriggja mánaða
til 97 ára, meðalaldur 41 ár (161 blóðgjafi, 83
sjúklingar á göngudeild, 64 konur í mæðraeftir-
liti, 33 börn á Landspítalanum, 27 vistmenn á
dvalarheimili aldraðra og 19 menntaskólanem-
ar). Mótefni gegn H. pylori greindust hjá 151
(39%), en af þeim voru 14 með lág gildi, vafa-
svör (borderline). Tíðni mótefna fór vaxandi
með hækkandi aldri og var hæst 75% í aldurs-
hópnum 60-69 ára, en lægst 9% í yngsta ald-
urshópnum. Algengi mótefna virðist meira á
íslandi en í nágrannalöndunum, en minna en í
vanþróuðum löndum, jafnframt virðast Islend-
ingar sýkjast fyrr en tíðkast í nágrannalöndun-
um. Útbreiðsla H. pylori sýkinga á íslandi hef-
ur sérstaka þýðingu vegna hárrar tíðni maga-
krabbameins.
Inngangur
Magabakterían Helicobacter pylori var fyrst
ræktuð og einangruð árið 1984 (1). Pá hófust af
alvöru rannsóknir á þætti H. pylori í magasjúk-
dómum, þar á meðal á íslandi (2,3). I fyrstu