Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.1996, Síða 7

Læknablaðið - 15.09.1996, Síða 7
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 619 koma til rannsókna án þess að þau dvelji næt- urlangt á spítalanum. Þessi börn geta því í mörgum tilvikum verið heima hjá sér að nóttu til en fengið rannsóknir og meðferð á spítalan- um að degi til. Þessi þróun er eðlileg og sjálf- sögð. Jafnframt því að barnið njóti öryggis heimilis síns þrátt fyrir veikindi og geti dvalið sem lengst heima við er um ótvíræða hagræð- ingu og sparnað í rekstri að ræða. Fyrirkomu- lag þetta er því til gagns fyrir veika einstaklinga og aðstandendur þeirra og þjóðfélaginu til góðs. Ekki verður hjá því komist að mörg börn þurfi á sjúkrahúsinnlögn að halda hverju sinni. Er hér einkum um að ræða börn með lífshættu- lega bráðasjúkdóma, langvinna, alvarlega sjúkdóma, krabbamein, alvarlega nýburasjúk- dóma, fyrirbura og svo framvegis. Börn sem liggja á barnasjúkrahúsum nú eru raunar mun veikari en áður var. Meðferð annarra fer fram án innlagnar. Framfarir í læknisfræði hafa orðið til þess að nú má ráða við sjúkdóma sem áður voru ólæknandi. Meðferð þessi er erfið og ströng. Börnin eru oft mjög veik, þurfa langtíma, sér- hæfða meðferð, endurteknar innlagnir eða stuttar innlagnir vegna skyndilegra, bráðra veikinda. Mjög mikilvægt er að sinna þessum börnum á sómasamlegan hátt, hvort heldur er með innlögn eða án. Nauðsynlegt er að ræða kostnað heilbrigðis- þjónustunar á sanngjarnan hátt. Sparnaður og endurtekinn niðurskurður getur orðið dýr þegar til lengri tíma er litið. Framfarir og þró- un eru lykill að árangursríkri meðferð, bættri heilsu og betra lífi. Við útreikninga á kostnaði heilbrigðiskerfisins þarf að taka tillit til allra þátta. Og það má ekki gleymast að þótt kostn- aður við bætta heilsu og betra líf sé mikill og verðið hátt — þá er verðmætið miklu meira. Asgeir Haraldsson prófessor Barnaspítala Hringsins

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.