Læknablaðið - 15.09.1996, Blaðsíða 18
Trinovunr — Reynslan tryggir gæðin
TRINOVUM TÖFLUR; G03AA05 RO
Hver pakkning inniheldur 7 hvitar, 7 Ijósferskjulitar og 7 ferskjulitar töflur (7 grænar töflur). Hver hvít tafla inniheldur: Norethisteronum INN 0,5 mg, Ethinyleslradiolum
INN 35 míkróg. Hver Ijósferskjulit tafla Inniheldur: Norethisteronum INN 0,75 mg, Ethinylestradiolum INN 35 míkróg. Hver ferskjulit tatla inniheldur:
Norethisteronum INN 1 mg, Ethinylestradiolum INN 35 mikróg. (Hver græn tafla inniheldur: Lactosum 93,5 mg). Eiginleikar: Getnaðarvarnatöflur sem eru blanda
af östrógeni og gestageni. Gestagenmagníð er aukið smám saman. Lyfið telst til lágskammta getnaðarvarnataflna. Bæði efnin frásogast vel frá meltingarvegi og
helmingunariími þeirra í blóði er 6-8 klst. Þau umbrotna í lilur og skiljast út með þvagi og saur. Ábendingar: Getnaöarvörn. Frábendingar: Þar sem lyfið eykur
storknunartilhneigingu blóðs, á ekki að gefa það konum með æðabólgur í fólum, slæma æðahnúta eða sögu um blóörek. Lifrarsjúkdómar. Óll æxli, ill-eða góðkynja
sem hormón geta haft áhrif á. Sykursýki og háþrýstingur geta versnað. Tíðatruflanir af óþekktri orsök. Grunur um þungun. Aukaverkanir: Vægar; Bólur (acne),
húðþurrkur, bjugur, þyngdaraukning, ógleði, höfuðverkur, mígreni, þunglyndi, kynkuldi, sveppasýkingar (candidiasis) I fæðingarvegi, útferð, milliblæðing, smáblæðing,
eymsli í brjóstum. Porfyria. Alvarlegar: Æðabólgur og stíflur, segarek (embolia) til lungna, treg blóðrás I bláæðum. Háþrýstingur. Sykursýki. Tiðateppa i pilluhvíld.
Varúd: Konum sem reykja er miklu hættara við alvarlegum aukaverkunum af notkun getnaðarvarnataflna en öðrum. Milliverkanir: Getnaðarvarnatöflur hala áhrif á
virkni ýmissa lyfja, t.d. blóðþynningarlyfja, lyfja gegn sykursýki o.fl. Barbltúrsýrusambönd, lyf gegn flogaveiki og rffampícín geta hins vegar minnkað virkni
getnaðarvarnataflna séu þau gefin samtímis. Einnig hafa getnaðarvamalyf áhrif á ýmsar niðurstöður mælinga I blóði, svo sem hýdrókortisóns, skjaldkirtilshormóns,
blóösykurs o.fl. Skammtastærðir: Meðferð hefst á1. degi tiðablæðinga og er þá tekin ein talla á dag I 21 dag. gert hlé í 7 daga og byrjaö aftur á sama vikudegi og
síðast. (Trinovum 28 skulu leknar samfleytt án þess að hlé sé gert á töflutöku, 7 síðustu töflurnar eru án virkra efna og eru grænar). Fyrst eru teknar 7 hvítar töflur, þá
7 Ijósferskjulitar töflur, 7 ferskjulitar töflur (loks 7 grænar töllur).
Pakkníngar og verð 1.maí.1996: 21stk. x 3 (þynnupakkað) - kr. 1116 28 stk. x 3 (þynnupakkað) - kr. 1116.
Skráning lyfsins er bundin þvi skilyrði, að leiðarvísir á íslensku fylgi hverri pakkningu með leiðbeiningum um notkun þess og varnaðarorð.
Cilag