Læknablaðið - 15.09.1996, Page 16
628
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
spóluormsins Toxocara canis í einum kassa
(3%).
Katta- eða hundaskítur fannst í 21 kassa
(66%). Þolhjúpar bogfrymils Toxoplasma
gondii og þolhjúpar svipudýrsins Giardia sp.
fundust í kattaskít úr sitt hvorum kassanum
(5%).
Ályktun: Að minnsta kosti þrjár tegundir
sníkjudýra, katta- og hundaspóluormarnir T.
cati og T. canis auk bogfrymilsins T. gondii
fundust í sandkössum á leiksvæðum barna í
Reykjavík og Kópavogi. Allar þessar tegundir
geta lifað í mönnum og valdið í þeim sjúkdóm-
um. Fjórða tegundin, svipudýrið Giardia sp.
fannst einnig í kattaskít en skiptar skoðanir eru
um hvort þessi tegund er sú sama og veldur oft
alvarlegum niðurgangi í mönnum.
Inngangur
Kettir og hundar eru algeng heimilisdýr á
íslandi. Engar tölur liggja fyrir um fjölda þess-
ara gæludýra en höfundar giska á að 10.000-
15.000 kettir og 4000-6000 hundar séu hér á
landi.
Mikill munur er á atferli katta og hunda.
Þorri katta hér á landi gengur frjáls ferða sinna
og eyðir drjúgum hluta dags og nætur utandyra
án nokkurra afskipta eigendanna. I þéttbýli
lúta hundar yfirleitt forsjá eigendanna og er
gert að fylgja þeim eftir í bandi á almannafæri.
Til sveita ganga hundar aftur á móti oftast
lausir. Þetta er rifjað upp hér vegna þess að
bæði kettir og hundar geta verið með sníkjudýr
sem geta borist frá skít þeirra í menn og valdið í
þeim sjúkdómum.
Mikill munur er á því hvar og hvernig kettir
og hundar skilja við hægðir sínar. Kettir hafa
þá sérstæðu náttúru að grafa úr sér skítinn.
Þegar frost er í jörðu og snjólaust grafa þeir
hann stundum í sandkassa sem ætlaðir eru
börnum til leiks, eða í moldarbeð upp við hús-
veggi þar sem jarðvegur hefur ekki náð að
frjósa. Liggi snjór á jörðu er skíturinn oft graf-
inn í fönn og liggur hann þá á yfirborði jarðar
þegar snjóa leysir. Hundar hafa annan hátt á
því þeir skíta á yfirborð jarðar. Sé hundaskítur
ekki fjarlægður getur mikið af honum safnast
saman á svæðum sem eigendur fara reglulega
um, meðal annars gagngert til að láta hundana
skíta.
Eftir því sem best er vitað eru fjórar tegundir
sníkjudýra í köttum hér á landi sem geta farið í
menn. Um er að ræða eina þráðormstegund
(Nematoda), kattaspóluorminn Toxocara cati
(1-4) og þrjár tegundir einfrumu sníkjudýra
(Protozoa); svipudýrið Giardia sp. (2,4,5),
bogfrymilinn Toxoplasma gondii (5-11) og gró-
dýrið Cryptosporidium parvum (6,12).
í hundum er nú vitað um tvær tegundir land-
lægra sníkjudýra sem einnig geta farið í menn;
hundaspóluorminn Toxocara canis (2-4) og
gródýrið C. parvurn sem einnig lifir í köttum
(12). Rétt er að minna hér á sullaveikiband-
orminn Echinococcus granulosus. Hann var al-
gengur í hundum hér á landi og sullir hans
algengir í mönnum og sauðfé. Ekki eru nema
tæpir tveir áratugir síðan sullir fundust síðast í
sauðfé hér á landi!
Markmið þessarar rannsóknar var að kanna
hvaða sníkjudýr er að finna í sandkössum á
leiksvæðum barna í Reykjavík og Kópavogi,
athuga hversu algengar einstakar tegundir
voru og ræða hættuna sem mönnum getur staf-
að af þeim sníkjudýrum sem einnig geta lifað í
mönnum. í umræðukaflanum er fjallað um líf-
fræði sníkjudýranna og bent á leiðir sem miða
að því að hindra eða minnka stórlega hættuna á
að fólk og þá einkum börn, smitist af þeim.
Þessi rannsókn er sú fyrsta sinnar tegundar
hér á landi.
Efniviður og aðferðir
Sýni voru tekin úr 32 sandkössum í Reykja-
vík og Kópavogi á tímabilinu 27. október til 2.
desember 1995. Sjö sandkassanna voru við
leikskóla, þrír á gæsluvöllum, 11 á opnum
svæðum, sjö við fjölbýlishús og fjórir við ein-
býlishús. Annarsvegar voru tekin 30 ml sand-
sýni úr hverjum fermetra hvers kassa, alls 411
sýni. Hins vegar var leitað beint að skít, fyrst á
yfirborði en síðan ofan í sandinum. Var það
gert með því að sigta kúfaða skóflu af sandi úr
hverjum fermetra. Sigtið var með 8 mm
möskvastærð og var skít safnað úr því.
A. Skodun sandsýna: I sandsýnunum var leit-
að að einfrumungum og eggjum sníkjuorma
með breyttri MgS04 fleytiaðferð: Fimm 30 ml
sandsýni og 240 ml af vatni voru sett í 600 ml
bikarglas ásamt 10 dropum af efninu Triton X
100® (20% Alkýlarýl pólýeter alkóhól) sem
minnkar yfirborðsspennu og kemur í veg fyrir
loftbólumyndun. Sandurinn var hrærður vand-
lega saman við vatnið og flotinu hellt í 220 ml
skilvinduglas. Sníkjudýr og aðrar lífrænar leif-
ar voru síðan felldar til botns skilvinduglassins
við 10 mínútna skiljun við 1800 snúninga á mín-