Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.09.1996, Side 19

Læknablaðið - 15.09.1996, Side 19
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 629 útu. Flotinu var hellt ofan af botnfallinu og því hent en botnfallið leyst upp í 8 ml af mettaðri MgS04 lausn (eðlisþyngd 1,26) og þessari blöndu hellt í 10 ml tilraunaglas sem síðan var barmafyllt með mettaðri MgS04 lausn. Þekju- gleri var komið fyrir ofan á tilraunaglasinu í 20 mínútur meðan egg, þolhjúpar og lirfur fljóta upp að yfirborðinu. Þekjuglerið var flutt var- lega yfir á smásjárgler og sníkjudýra leitað í dropanum sem loðir neðan á því í ljóssmásjá við 48, 120 og 600 falda stækkun. Einnig var sníkjudýra leitað á Mc Master gleri (13) í ljós- smásjá í sýnum sem tekin voru með dropatelj- ara efst úr tilraunaglösunum. B. Skoðun saursýna: í skítnum var leitað að eggjum sníkjuorma og þolhjúpum einfrumu sníkjudýra með saltfleytiaðferð (1,13) og formalín-etýlasetat botnfellingaraðferð (13). Niðurstöður Enginn kassanna sem sýni voru tekin úr var með yfirbreiðslu. Skipt hafði verið um sand sumarið 1995 í ríflega þriðjungi kassanna. Meira en ár var liðið frá því að skipt hafði verið um sand í hinum. Kattaspor sáust í 20 sandkössum (63%) og skítur fannst í 21 kassa (66%). Fjöldi skíta í hverjum kassa var frá einum upp í 12 þar sem þeir voru flestir. í flestum tilfellum var um kattaskít að ræða en í að minnsta kosti einum kassa fannst hundaskítur. Dauð rotta fannst í sandinum í einum kassa. Alls fundust fimm tegundir sníkjudýra í kössunum; þrjár tegundir spóluorma og tvær tegundir einfrumu sníkjudýra. Við skoðun á sandsýnum fundust egg katta- spóluorms T. cati (mynd 1) í þremur kössum (9%), egg „ljónaspóluormsins" Toxascaris leonina í tveimur kössum (6%) og egg hunda- spóluormsins T. canis í einum kassa (3%). Við skoðun á kattaskítnum fundust þolhjúp- ar svipudýrsins Giardia sp. og þolhjúpar bog- frymilsins T. gondii í sitt hvorum kassanum (5%). Auk katta- og hundasníkjudýra fundust lirf- ur frítt lifandi þráðorma af ættkvíslinni Rhab- tidis í öllum kössunum nema fjórum (88%). Ymsir hryggleysingjar sem ekki eru snfkjudýr, og mönnum stafar engin hætta af, fundust einnig í flestum kössum. Umræða T. cati, T. canis, T. leonina: Lengi hefur Fig. 1. Toxocara cati egg with mature second stage larvae. Photo: Karl Skírnisson. verið vitað að kettir, hundar og refir á íslandi væru með spóluorma. Danski læknirinn H. Krabbe fann kattaspóluorm í 16 köttum af 31 og hundaspóluorm í tveimur af 100 hundum sem hann krufði hér á landi árið 1863 (3). Ný- legar rannsóknir á sníkjudýrum katta á höfuð- borgarsvæðinu sýndu að áttundi hver köttur var með kattaspóluorm (2). „Ljónaspóluorm- urinn“ er algengur í köttum og refum hér á landi (14) en hann lifir ekki í mönnum (1). Egg katta- og hundaspóluorma berast með saur hýslanna út í umhverfið. A nokkrum vik- um eða mánuðum þroskast í egginu lirfa sem skiptir einu sinni um ham og verður að annars stigs lirfu. Þroskatíminn fer eftir hita- og raka- stigi umhverfisins og geta lirfurnar lifað inni í eggjunum (mynd 1) mánuðum og jafnvel árum saman. Berist egg með þroskaðri lirfu niður í melt- ingarveg manna (eða annarra dýrategunda, meðal annars húsdýra) rofnar egghjúpurinn og annars stigs lirfan borar sig út úr þörmunum inn í blóðrásina. Lirfan þroskast ekki frekar né stækkar í manninum en yfirgefur blóðrásina út í vefjum eða líffærum og við tekur flakk í lík- amanum (visceral larva migrans). Stundum geta lirfur endað í auga (ocular larva migrans) og valdið sjóntruflunum (1,15-18). Erlendar at- huganir hafa sýnt að slíkt lirfuflakk kemur einkum fram í börnum sem setja upp í sig sand og mold eða hafa umgengist hvolpa eða kett- linga sýkta af spóluormum (1,15-21). Sjúkdómsgreining er tiltölulega auðveld þegar lirfurnar sjást í augum en yfirleitt er erfitt

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.